Börn og menning - 01.09.2000, Qupperneq 12

Börn og menning - 01.09.2000, Qupperneq 12
BÖRN OC ^aEN|N|N6 í fótspor frumbyggjanna Einn þeirra höfunda sem hlaut viðurkenningu Barna og bóka síðastliðið vor var Stefán Aðal- steinsson fyrir bók sína Landnámsmennirnir okkar: Víkingar nema land sem gefin var út af Máli og menningu 1999. Þegar nánar er að gáð hefði viðurkenningin fullt eins mátt vera fyrir framlag Stefáns til útgáfu íslenskra frœðibókafyrir börn, svo stór er þáttur hans íþeim eyði- lega afkima bókaútgáfunnar hér á landi. Stefán Aðalsteinsson er ættaður úr Norður- Múlasýslu og lauk stúdentsprófi frá MA árið 1950. Hann er bú- fræðingur frá Bænda- skólanum á Hólum, bú- fræðikandídat frá Land- búnaðarháskóla í Nor- egi og var í framhalds- námi við ullarrannsókn- ir, tölfræði og kynbóta- fræði við háskólana í Leeds, Edinborg og Cambridge. Stefán lauk doktorsprófi frá tölfræðideild Edinborgarháskóla 1969. Stefán hefúr verið afkastamikill á ýmsum sviðum, bæði í búfræði, erfðaífæði, tölffæði, náttúmffæði og ýmsu öðru. Hann hefúr kennt við Bændaskólann á Hvanneyri, Tækniskólann og Háskóla íslands og verið virkur í alls konar félagsstörfúm. Stefán hefur einnig verið iðinn við ritstörf. Eftir hann liggur fjöldi greina og ritgerða um fræðileg efni, meðal annars um uppruna bæði íslensku þjóðarinnar og húsdýranna sem hér hafa þreytt þorrann í fleiri aldir ásamt mannfólkinu. Það var þvi engin tilviljun að forstöðukonur bókaút- gáfúnnar Bjöllunnar leituðu einmitt til Stefáns árið 1981 í þeim erindagjörðum að fá hann til að skrifa bók um sauðfé sem átti að vera auðlæsileg fyrir böm og unglinga og nýtast sem ítarefni í skólum. í kjölfarið kom frá Stef- áni bókin Sauðkindin, landið og þjóðin. En þetta var að- eins upphafið að gjöfúlu samstarfi Stefáns og Bjöllunnar því á eftir fylgdu fleiri bækur um náttúru- og dýralíf: Húsdýrin okkar (1982), Fuglarnir okkar (1985), Villtu spendýrin okkar (1987) og Blómin okkar (1992). Fyrstu þrjár bækumar hafa verið endurútgefnar á undanfömum ámm eftir að bókaútgáfan Bjallan sameinaðist Máli og menningu. Auk þess hefúr Stefán unnið að gerð ffæðslu- myndbanda fyrir böm í samvinnu við Námsgagna- stofnun. Þá tengdi Stefán á skemmtilegan hátt borgarlíf og sveitalíf í augum bams í bamabókinni Kappi á kross- götum: af ævintýrum Jóa í borg og sveit, sem MM gaf út 1997. Víkingar nema land 1 bókinni Landnámsmennirnir okkar heldur Stefán áfram að fræða bömin en nú er viðfangsefnið hvorki nátt- úm- né dýralíf heldur upprunasaga okkar íslendinga. Um efni bókarinnar segir svo aftan á bókarkápu: „Þessari bók er ætlað að fræða unga lesendur um upphaf byggðar á íslandi, hvaðan fólkið kom sem settist hér að, og hvemig lífi það lifði. Á landnámsöld sigldu víkingar víða um heiminn, oft fóm þeir með ófriði en hingað komu þeir með friði til þess að nema óbyggt land. í bók- inni em sögur af nokkmm forfeðrum okkar í heimalandi 10

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.