Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 13

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 13
BÖRN 06 MENN|N6 sínu, Noregi, þar sem þeim þótti þrengt að sér. Þeim er síðan fylgt yfir hafíð til íslands en hingað fluttu þeir með sér trúarbrögð og siðvenjur ásamt hinu foma norræna máli.“ Óhætt er að segja að ætlunarverkið hafi tekist vel og gott betur því auk þessa hefur bókin heilmikið skemmtigildi. En með vísun í það sem segir aftan á bókarkápunni hefði kannski mátt velja friðsamlegra myndefni framan á kápuna en víkingahjálm og spjót! Hvaðan komum við? Landnámsmennimir okkar hefst á forsögu þar sem raktar em ástæður þess að norskir bændur lögðust í vík- ing og tóku síðan að nema lönd á ijarlægum slóðum. Fjallað er um skipasmíðar Norðurlandabúa og hvemig úthafsskipin opnuðu ungum bændasonum nýjan heim, enda vom framtíðarmögu- leikar þeirra í Noregi litlir sökum þröngbýlis. í öðmm kafla víkur sögunni að ofríki Flaralds hárfagra og hvemig það varð til þess að þeir sem hann var óvinveittur flúðu með ljölskyldur sínar til ís- lands sem þá var nýfundið og óbyggt. Áður en kemur að hinum eiginlegu frásögnum af ein- staka landnámsmönnum íjallar Stefán einnig um uppruna okkar íslendinga og hvaða aðferðir hafa verið notaðar til að kanna hann og einnig hvemig fomleifar em rannsakaðar og aldursgreindar. Það hefúr lengi verið mörgum hugleikið að vita sem gleggst um uppruna okk- ar og hafa sumir viljað halda því fram að í okkur sé meira írskt blóð en í fyrstu var talið. Stefán hefur hins- vegar komist að gagnstæðri niðurstöðu og leggur sig í íramkróka við að rökstyðja að landnámsfólkið hafi að mestu komið frá Noregi. Þessi skoðun er þó alls ekki óumdeild og umræðan um uppmna okkar íslendinga sjálfsagt ekki til lykta leidd. Stefán segir firá þessum landnámsmönnum: Ingólfí Amarsyni, Skallagrími Kveldúlfssyni, Þórólfí Mostra- skegg, Auði djúpúðgu, Gísla Súrssyni, Þórði hreðu, Ingi- mundi gamla, Flelga magra, Ásbimi dettiás og Finn- boga ramma og loks Katli þrym og Graut-Atla Þóris- sonum, auk þess sem hann segir frá Hrafna-Flóka. A ferð með víkingum Sé horft á bókina í heild má segja að Stefán fari með lesendur í einskonar hringferð um landið. Hann rekur landnám þessa fólks frá Suðvesturlandi í landnámi Ing- ólfs og fer vestur og norður um land og endar loks aust- ur á Héraði. En þetta er ekki eina ferðalagið sem lesend- ur takast á hendur því þeir fylgja líka hverjum land- námsmanni í ferð sem oftast hefst í Noregi og lýkur hér á landi þar sem hann sest að. Frásagnimar af landnámsmönnunum er mislangar og mismunandi umljöllunarefni verður fyrir valinu í hverjum kafla. Gera má ráð fýrir að þetta helgist annars vegar af því hvaða heimildir em tiltækar og að hinu leytinu hafí Stefán valið það efni sem hann taldi höfða mest til bama. En þegar vel er að gáð má líkja ffásögun- um við myndbrot sem raðast saman og gefa smátt og smátt nokkuð glögga mynd af lífi forfeðra okkar. Við fáum að vita hvers vegna þeir yfírgáfu ættjörðina og freistuðu gæfunnar í ókunnu landi. Við kynnumst stað- háttum þar sem þeir námu land, búskaparháttum, átrúnaði, þjóðfélagsháttum í landinu og þannig mætti lengi telja. Ekki er ósenni- legt að við val á efni hafí verið stefnt að því að draga upp skýra mynd en forðast endurtekningar. Einnig hefur skemmtigildið áreiðanlega verið haft í huga því sumir kaflamir em bráðskemmtilegir og vil ég þar sérstaklega nefna sög- umar um Urðarkött og Þórð hreðu. Til nánari skýringa Stefáni tekst aðdáunarvel að gera þetta foma efni læsilegt fyrir unga lesendur án þess þó að skrifa niður til þeirra. Eins og nærri má geta þarfnast umfjöllunarefnið oft nánari skýringa en í þeim efnum notar Stefán tvær aðferðir. Hann fléttar orðskýringar lipurlega inn í megin- málið þannig að þær verða eins og hluti af frásögninni. Á bls. 53 segir til dæmis: „Bæimir Sæból og Hóll lágu hvor við annan og vom sameiginlegir túngarðar, og bjuggu þeir mágar þar nú í góðum vinskap. Þorgrímur átti goðorð, en það merkti að hann var höfðingi yfír ákveðnum mönnum sem vom þingmenn hans.“ 11 IL

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.