Börn og menning - 01.09.2000, Page 16

Börn og menning - 01.09.2000, Page 16
BÖRN o C /v\ENN|N6 Ana Maria Machado Ana Maria Machado er fædd í Rio de Janeiro árið 1941 og hefiir skrifað 105 bækur, flestar fyrir böm og unglinga. Auk þess hefur hún þýtt fjölmargar sígildar bamabækur á portúgölsku þar á meðal Lísu í Undra- landi, Pétur pan og Leynigarðinn. Ana Maria stundaði tungumálanám í Bandaríkjunum og á Ítalíu en tók að lokum doktorspróf í málvísindum í París undir handleiðslu Roland Barthes. Hún bjó um árabil á Englandi og hefur starfað sem blaðamaður og háskólakennari en hóf að skrifa fyrir böm árið 1969 þegar herforingjastjóm var við völd í Brasilíu. Verk hennar hefðu að öllum líkindum verið bönnuð af yfir- völdum hefði þeim verið ljóst að í þessum meinleysis- legu bamabókum var fólgin bæði þjóðfélagslegur og sið- ferðislegur boðskapur. Ana Maria hefur áunnið sér mikla virðingu fyrir meistaralega meðhöndlun á portúgalskri tungu. Hún hefur skrifað fjölmargar bækur fyrir byrjendur í lestri og þannig lagt mikið af mörkum til að efla læsi meðal al- mennings í Brasilíu. Fmmleg notkun Önu Mariu á tungumálinu gerir það að verkum að fantasíur hennar öðlast blæ raunveruleik- ans og hefúr henni verið skipað á bekk með Gabriel García Márquez, Jorge Luis Borges og öðmm suður-am- erískum höfundum sem skrifa undir merkjum töfraraunsæis. Þrátt fyrir það að verk Önu Mariu geti ekki talist einföld hafa þau náð miklum vinsældum og selst feikivel. Einnig hafa þau verið þýdd á ljölmörg tungumál en fram að þessu hefur ekkert þeirra verið þýtt á íslensku. Enda þótt Ana Maria hafi tekið virkan þátt í að efla lestrarkunnáttu í heimalandi sínu telur hún lestur ekki hafa gildi í sjálfu sér. Gildið felist í því sem lesið er. Henni er í nöp við ógagnrýna notkun bamabóka í skóla- starfi og telur að kennarar sem hvetja til lesturs létt- vægra og jafnvel kjánalegra bóka eingöngu vegna þess að krakkamir laðast að þeim séu um leið að kasta á glæ tækifæmm til að víkka sjóndeildarhring bamanna og birta þeim fegurð góðra bókmennta. Anthony Browne Anthony Browne er fæddur í Sheffíeld á Englandi 1946 og hefúr verið að myndskreyta bækur í aldarijórð- ung. Hann hefur myndskreytt sögur annarra höfúnda en þó einkum sínar eigin undanfarin ár. Fyrsta bók hans, Through the Magic Mirror, kom út 1976 en sú nýjasta, Voices in the Park, 1998. í þeirri síðamefndu hefúr Ant- hony tekið annað verk sitt, A Walk in the Park, til endur- skoðunar og breytt fúllorðna fólkinu í górillur en böm- unum í simpansa. Segja má að þessi breyting á persón- unum sé liður í þróun sem orðið hefur á persónum í bók- um Anthonys og hófst með bókinni Górilla sem kom út 1983. Hún er jafnframt eina bók hans sem komið hefur út í íslenskri þýðingu (1994, bókaútgáfan Himbrimi, Kópavogi). Þessi árátta Anthonys að teikna menn sem górillur (eða górillur sem hafa mannlega eiginleika) hef- ur að vonum vakið spumingar og kallað á mismunandi túlkanir. Sjálfur segir Anthony að sýn hans á górillur tengist afstöðu hans til föður síns sem var atvinnuboxari og virtist óbugandi í huga bamsins. Hann hvatti Ant- hony og bróður hans til að taka þátt í íþróttum en gaf sér jafnframt tíma til að yrkja með þeim ljóð og teikna myndir. Það var kaldhæðni örlaganna að þessi líkamlega sterki maður dó skyndilega úr hjartaslagi tiltölulega ungur. Þessi lífsreynsla birtist hvað eftir annað í górill- unum í bókum Anthonys sem em að sönnu stórar og sterkar en líka tilfinninganæmar og viðkvæmar. Sögur Anthonys gerast venjulega innan veggja heimilisins og segja frá hverdagslífi fjölskyldna og at- vikum sem margir þekkja af eigin raun, til dæmis þeirri reynslu að eignast systkini eða vinna heimilisstörf. En í hugarheimi Anthonys umbreytist þessi sameigin- lega reynsla okkar fyrir áhrif súrrealískrar tækni og absúrdisma. í myndum hans er þar að auki að finna fjöl- margar vísanir í þekkt málverk, styttur, persónur úr ævintýmm og persónur og atvik úr hans eigin bókum. Allt þetta vekur sterk hughrif og dregur lesendur að myndunum aftur og aftur. Aðalfundur Barna og bóka Aðalfundur Bama og bóka - íslandsdeildar IBBY var haldinn í Lækjarbrekku 11. maí síðastliðinn. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var lögð fram tillaga að breytingu á fyrirkomulagi við boðun aðalfundar. Aðal- fundarboðið hefúr verið sent félagsmönnum í pósti ffam að þessu en með tilliti til þess hve fáir mæta þykir þetta fyrirkomulag of kostnaðarsamt. Samþykkt var að boða framvegis aðalfúnd með tilkynningu í dagblöðum. Á fúndinum var einnig samþykkt að bjóða Önnu Heiðu Pálsdóttur setu í stjóm Bama og bóka og nú hefúr verið ákveðið að að bjóða auk hennar Oddnýju Jónsdóttur, bamabókaritstjóra hjá Vöku-Helgafelli sæti í stjóminni. 14

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.