Börn og menning - 01.09.2000, Side 17

Börn og menning - 01.09.2000, Side 17
BÖRN 06 MENN|N6 Vorvindar - viðurkenningar Barna og bóka Viðurkenningar Bama og bóka voru veittar að venju síðastliðið vor í ijórtánda sinn. I stað þess að halda sam- komu í Norræna húsinu á Sumardaginn fyrsta eins og tíðkast hefur fór athöfnin fram 10. maí fyrir hádegi. Ástæðan fyrir því að breytt var út af venjunni var sú að stjómin taldi vera svo margar samkomur á boðstólum fyrir böm og fullorðna á Sumardeginum fyrsta að fáir væm líklegir til að koma í Norræna húsið. Stjóm Bama og bóka hefúr ákveðið að gefa viðurkenningunum nafnið Vorvindar. Að þessu sinni hlutu þrír rithöfundar Vor- vinda - viðurkenningu Bama og bóka: Vilborg Dag- bjartsdóttir, sem nú stendur á sjötugu og er að ljúka síð- asta starfsári sínu sem kennari við Austurbæjarskóla. Hlaut hún viðurkenningu fyrir störf sín og skáldskap í þágu barna. Stefán Aðalsteinsson hlaut viðurkenningu fyrir bók sína Landnámsmennirnir okkar (Mál og menning 1999) og Yrsa Sigurðardóttir fyrir bók sína, Við viljum jólin í júlí (Mál og menning 1999). Öllum nemendum í bekk Vilborgar var boðið á samkomuna ásamt tónmenntakennara og tóku þau lagið fyrir og með gestum. í tilefni af viðurkenningunum er viðtal við Vil- borgu Dagbjartsdóttur í þessu blaði og umljöllun um bók Stefáns Aðalsteinssonar. Grein um bók Yrsu bíður birtingar í næsta blaði. Bókakaffi Barna og bóka Annað bókakaffi Bama og bóka var haldið á Súfist- anum 27. janúar síðastliðinn. Andri Snær Magnason, rit- höfundur fjallaði um „Únglingabækur“ og er erindi hans birt í þessu blaði. Anna Heiða Pálsdóttir, bók- menntafræðingur sagði frá hinum geysivinsæla Harry Potter en heilmikinn fróðleik er að finna um hann á heimasíðu Önnu Heiðu, www.mmedia.is/ah/ Þriðja bókakaffi Bama og bóka var haldið á Sólon ís- landus 24. maí. Þar fjölluð Guðrún Helgadóttir rithöf- undur, Gunnar Helgason leikari og Pétur Eggerz frá Möguleikhúsinu um leikhús fyrir börn og ýmislegt annað sem varðar bamamenningu. Ráðstefna í Gerðubergi 25. mars síðastliðinn var haldin ráðstefha í Gerðubergi undir yfírskriftinni „Galdrar, goðsagnir og fantasía í bamabókmenntum“. Á ráðstefnunni vom haldin fróð- leg erindi og spunnust út frá þeim ijömgar umræður. Erindin voru þess: Frá goðsögnum til œvintýra, Sölvi Sveinsson, skóla- meistari í Fjölbrautarskólanum Ármúla Aðrir heimar, Anna Heiða Pálsdóttir, bókmenntafræð- ingur Börn, fantasía og veruleiki, Sigríður Albertsdóttir, bókmenntafræðingur Að horfa framan í heiminn, Ásgrímur Sverrisson, kvik- inyndagerðarmaður. Erindi Sölva og Ásgríms eru birt í þessu blaði. Aðráð- stefnunni stóðu Menninganniðstöðin Gerðuberg, Böm og bækur, Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsinga- ffæða, Félag skólasafnskennara, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur og SÍUNG, samtök bamabókahöfunda. Norrœnt samstarf Stjórnir IBBY-samtakanna á Norðurlöndum hafa með sér nokkuð náið samband. Einu sinni á ári er hald- inn sameiginlegur fundur norrænu deildanna með full- trúum frá hverju landi og á þeim em kynnt staða félag- anna og framkvæmdir á liðnu ári og lagt er á ráðin um sameiginleg áhugamál. Menntamálaráðuneytið hefur jafnan greitt fyrir þessar fúndarferðir íslenska fulltrúans og er sá stuðningur hér með þakkaður. Síðasti samnorræni fúndurinn var haldinn i Fred- rikstad í Noregi í apríl síðastliðnum. Fundinn sótti nor- rænn tengiliður Bama og bóka, Guðrún Hannesdóttir. Norrænu félögin standa einnig saman að útgáfú Nordisk blad einu sinni á ári. Blaðinu er dreift til allra félags- manna Bama og bóka. Nordisk blad 2000 mun fjalla um verðlaun og verðlaunabækur síðustu þriggja ára á Norðurlöndum. 15

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.