Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 21

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 21
BÖRN 06 MENN|N6 Anna Heiða Pálsdóttir, bókmenntafrœðingur: „Hvað er með ásum? Hvað er með álfum?" Norræn goðafrœði í íslenskum barnabókum Þessi grein er byggð á fyrirlestri sem greinarhöfundur flutti á fundi íslandsdeildar IBBY og SIUNG (Samtaka íslenskra barna- og unglingabókahöfunda) í Gunnarshúsi haustið 1999 en þar var jjallað um hlut norrænnar goðafræði í íslenskum barnabókum. Fyrst var rætt um hlut- verk goðsagna yfirleitt og þátt þeirra í mótun sjálfsvitundar, síðan voru athugaðar nokkrar bœkur eftir íslenska og erlenda höfunda sem hafa norrœna goðafræði að viðfangsefni. Þá voru rakin ýmis ajbrigði norrænnar goðafræði og hvernigþau koma fram í íslenskum barnabókum. Að lokum voru skoðaðar nokkrar hugsanlegar ástœður fyrir því að íslenskir barnabóka- höfundar leituðu ekki í ríkari mœli til þessa sagnabrunns - sem er þó svo samojinn íslenskri menni ngarvi tund. Bækur, myndasögur og tölvuleikir með hetjum úr norrænni goðafræði hafa að sögn bókavarða notið mikilla vinsælda hjá íslenskum bömum og unglingum á undan- fömum ámm. Böm heillast af ævintýrum goðanna og viðskiptum þeirra við jötna og dverga; þau hlæja að klækjunum sem Loki beitti goðin og þeim úrræðum sem goðin beittu á móti. Um leið og þau njóta skemmtunar- innar em þau að eignast hlutdeild í þeirri aldagömlu hefð að hlusta á goðsögur. Sögumar um Óðin, Þór og Freyju og átök þeirra við umhverfið eru þær goðsagnir sem fyrstu íslensku landnemamir höfðu í farteskinu og þær áttu sinn þátt í að móta upphaf íslenskrar menn- ingar. Á Eddukvæðunum og Snorra-Eddu, sem eru helstu heimildir heimsbyggðarinnar um norræna goða- fræði og lífssýn manna í heiðni, hvílir gmnnurinn að ís- lenskri sjálfsvitund. Þannig er norræn goðafræði að miklu leyti samtvinnuð okkar menningarvitund þó svo að meginhluti þjóðarinnar aðhyllist nú kristna trú. Því kemur ekki á óvart að íslensk böm skuli njóta þess að heyra sögur sem em byggðar á norrænni goðafræði. Hitt kemur meira á óvart þegar litið er á höfundamöfn þess- ara verka að þau em flest erlend að uppmna. Af ein- hverjum ástæðum hafa íslenskir barnabókahöfundar ekki nýtt sér þennan menningararf okkar sem skyldi, þannig að til þess að íslensk böm fái notið hans þarf að þýða verk erlendra höfunda yfír á íslensku. Goðsagnir Goðsagnir (eða mýtur eins og sumir vilja kalla þær) hafa fylgt mannkyninu í þúsundir ára og þær eiga ríkan þátt í menningarsögu heimsins. Þær hafa verið notaðar í ýmsum menningarsamfélögum til að hjálpa mönnum að útskýra samband sitt við umhverfið, tilgang lífsins og óumflýjanleika dauðans. Goðsagnir eiga ríkan þátt í að halda menningarsamfélagi saman, ásamt tungumáli og hefðum. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir skilgreindi hlutverk goðsagna þannig í hringborðsumræðum um þjóðemi við H.Í., sem Þorvarður Ámason stýrði: í mannfræðinni fáumst við við mýtur, eða goð- sögur, og höfum tvær meginaðferðir til að skoða þær. Annars vegar að líta á goðsögur sem nokkurs konar réttlætingu fyrir status quo, þ.e. að goðsagan útskýri af hverju samfélagið og menningin em eins og þau em, af hverju þetta er svona og ekki öðruvísi. Mýtan verður þannig nokkurs konar grundvallarlög eða stjómarskrá samfélagsins... Og svo er hin aðferðin, kennd við Lévi-Strauss 19

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.