Börn og menning - 01.09.2000, Síða 29
BÖRN OG MENN|N6
Sölvi Sveinsson:
Einu sinni var...
Afhverju eiga (þurfa) börn að lesa ævintýri?
I upphafi er rétt að skilgreina hvað mér finnst að prýða þurfi bók til
þess að hún teljist góður lestur fyrir börn: I fyrsta lagi þarf hún að
vera skemmtileg, sýna börnum veröldina og sig sjálf í nýju Ijósi,
höfða til ímyndunarafls og vera á hæfilega ögrandi máli. I öðru lagi
þarfhún að vera gefin út með reisn!
Ævintýri er önnur höfiiðgrein þjóðsagna, sú sem ekki
var ætlast til að menn tryðu. Þau eru óbundin í tíma og
rúmi og ímyndunaraflið er í öndvegi. Þau fjalla um
vandamál sem öllum mönnum eru sameiginleg, enda er
sama ævintýrið til í fjölda landa, lagað eftir aðstæðum á
hverjum stað; Mjallhvít heitir Vilfríður Völufegri hjá
Jóni Ámasyni. Kannski hafa íslendingar þá sérstöðu að
dýr em ógjarnan aðalpersóna nema ef vera skyldi
Búkolla.
Þjóðsögur, aðrar en ævintýri, gérast oft á kunnug-
legum slóðum, persónur em gjaman nafnkunnar, en síð-
an em aðrar sem lýsa alls konar vættum, skrímslum,
draugum og ekki sízt útilegumönnum og huldufólki.
Ekki skal sett á ræða um þessar bókmenntir hér, heldur
einungis viðmð sú hugmynd hvort með sögum af þessu
tagi hafi verið markaður leikvöllur bama, að hættur sem
steðjuðu að í umhverfinu hafi verið persónugerðar: Ef þú
ferð niður að vatni kemur nykurinn og tekur þig! í steini
á gilbarmi býr álfurinn og hann er ekki kátur þegar
hann er tmflaður með ærslum! Skessan er í Svartagili!
Ef þú ferð lengra en að Hádegishóli gæti útilegumaður-
inn hremmt þig! Þess vegna skaltu bara vera á túninu
heima, gæzkan!
En hvers vegna eiga eða jafnvel þurfa böm að lesa
ævintýri? Svörin em af ýmsu tagi en í mínum huga em
þessi atriði brýn:
• Þessar bókmenntir em merkilegur menningararfúr.
• Málfar er kjamyrt og þroskandi.
• Ævintýri em lifandi þjóðlífsmyndir.
• Hvarvetna em vekjandi umræðuefni í þessum bók-
menntum.
• Fjölbreytnin er óendanleg.
• Boðskapur ævintýra er ætíð skýr.
• Sögumar em að jafnaði stuttar og hnitmiðaðar.
• Þetta em bráðskemmtilegar bókmenntir fyrir fólk á
öllum aldri.
Ölfþessi atriði vega þungt og ég held að allir kenn-
arar hafi sömu sögu að segja: Ævintýri höfða til bama
og unglinga, af því að þau em svo grípandi. Ofangreind
atriði tvinnast saman í eina heild sem höfðar til lesend-
anna, á hvaða aldri sem er. Orðfæri ævintýra er einkar
fágað, enda mótuðust ævintýrin í munni manna unz all-
ur óþarfí var á brott. Og ijölbreytni í máli og stíl er
miklu meiri en tíðkast erlendis, því hér vom skrásetj-
arar svo margir. Erlendis fóm skrásetjarar um byggðir
og skrifúðu sögumar; orðalag og stíll em því með sama
sniði í söfnum þeirra.
Mannlýsingar ævintýra höfða sérstaklega til bama.
Söguhetjan er góð, hið illa persónugerist á ýmsa lund og
barátta góðs og ills knýr atburðarásina. Hið illa fær mak-
leg málagjöld í sögulok og aðalpersónan fær verðlaun
fyrir dyggðir sínar, sem em hófsemi, hjartans lítillæti,
27