Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 30

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 30
BÖRN 06 /v\ENN|N6 hugrekki og staðfesta. Ekki má gleyma því að í ævintýrum og þjóðsögum birtast þjóðlífsmyndir sem sýna forna hætti af ýmsu tagi: bóndasonur slær, konan spinnur, Signý sækir eldi- við, uppeldisleg harðneskja blasir víða við, lestarferðir yfir fjöll að sækja fisk og svo mætti lengi telja. Ævintýri eru skyld goðsögnum, sem eiga raunar ótrúlega margt sameiginlegt með ævintýrum en helstu einkenni þeirra eru eftirfarandi: • Ótrúleg (en samt svo sönn!) • Óbundin tíma og rúmi • Imyndunarafl í öndvegi • Vandamál eru leyst • Alþjóðleg minni Það sem hér hefúr verið sagt um ævintýri gildir einnig um goðsagnir. Böm og unglingar njóta þeirra en lesa ekki nógu mikið af þeim; ætli goðsagnir Gamla testamentisins fái ekki meiri tíma en menningararfleifð okkar á þessu sviði? Niðurstaðan er þessi. Böm og unglingar eiga að lesa sem mest af þjóðsögum, ævintýmm og goðsögum, því þar er málfarslegur fjársjóður, lifandi ímyndunarafl, boðskapur og skemmtun. Greinarhöfundur er skólameistari í Fjöl- brautaskólanum við Armúla. r "\ Börn og bækur - Islandsdeild IBBY Ef þið viljið gerast meðlimir í Bömum og bókum, eða fáið góðar hugmyndir og viljið leggja eitthvað af mörkum til starfseminnar eða tímaritsins, þá hafið samband! Þið getið sent okkur línu: Börn og bœkur - íslandsdeild IBBY Pósthólf7191, Reykjavík Einnig getið þið hingt í fonnanninn, IðunniSteinsdóttur, í síma 553 2804 eða ritstjórann, Kristínu Birgisdóttur, í síma 696 3714. V 28

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.