Börn og menning - 01.09.2000, Page 34

Börn og menning - 01.09.2000, Page 34
BÖRN 06 AAENN|N6 Einnig hafa komið inn í þetta japanskar myndasögur sem hafa verið gífurlega áhrifaríkar og ná myndræn áhrif þeirra jafnt yfír myndasögur sem kvikmyndir. Þessi bylgja hefur orðið til þess að myndasögur fyrir fullorðna, sem hafa kannski ekki verið sérlega áberandi í enskumælandi hefðinni, hafa orðið mun fyrirferðameiri, jafnframt því sem borið hefur á ákveðinni kreppu í við- teknum bama- og unglingaformum eins og hefðbundn- um ofurhetjusögum. Og myndasögudeild Borgarbókasafnsins hefur að geyma allt þetta, allt frá Andrési önd og Rasmusi klumpi (sem margir myndu nú illa viðurkenna sem hreint bamaefni) til róttækra framúrstefhulegra mynda- sagna sem em ætlaðar fúllorðnum en em alls ekki við bama hæfi. Þar er stigið fyrsta skrefíð í því að kynna fyr- ir fólki þessa ágætu bókmenntategund. Nokkur dœmi Ég ætla að taka nokkur dæmi og reyna með því að út- skýra muninn á myndasögum fyrir böm og fullorðna. Þetta geri ég með nokkmm fyrirvara, þarsem hér getur aldrei verið um skýrar markalínur að ræða: að margra mati er Tinni til dæmis ekki síður fúllorðinsefni en bamafóður og það sama má segja um Andrés önd. En ég ætla sumsé að lýsa nokkmm sögum í von um að gefa innsýn í þennan heim. Tinn abœkurn ar Tinni er rannsóknarblaðamaður sem er hvað eftir annað flæktur í pólitík og flókin milliríkjamál. Hann leggur metnað sinn í að fletta ofan af svikum og prett- um. Tinni er upphaflega belgískur og tilheyrir evrópsku myndasöguhefðinni sem er gerólík þeirri bandarísku. Þrátt fyrir að allir þekki Tinna myndu flestir nefna ofúr- hetjur eins og Súperman og Batman þegar þeir em spurðir um myndasögur og því virðist svo vera að bandaríska hefðin sé sterkari í hugum fólks. Einkenni evrópsku hefðarinnar koma vel fram í Tinna, söguþráð- urinn er raunsæislegur og myndmálið tiltölulega að- gengilegt: rammamir vel afmarkaðir, þeim skipulega uppraðað og snúa yfirleitt ‘rétt’, öfugt við rammanotkun- ina í bandarískum og sérstaklega japönskum sögum, sem einkennist í ríkari mæli af allskyns snúningum og sveiflum. í franskri sögu fyrir fúllorðna, sem þýdd hefúr verið á íslensku, Vegur Dixie, er mikil áhersla á að nota tækni sem minnir á víkkað/þrengt sjónop í kvikmynd- um; þarsem sama senan er sýnd ýmist mjög nálægt eða úr mikilli fjarlægö en síðan er sviðið víkkað eða þrengt til að ná fram áhrifum. Með þessu em til dæmis tilfínn- ingar persóna undirstrikaðar. Eins og áður sagði er Tinni ýmist álitinn bamaefni eða fyrir fúllorðna, sem þýðir einfaldlega að bæði fúllorðnir og böm geta notið þessara dásamlegu bóka. Vegur Dixie er hinsvegar frekar ætluð fúllorðnum en bömum, enda þar á ferðinni dramatísk raunsæissaga sem er alls ekki víst að böm myndu hafa áhuga eða skilning á? Daredevil Daredevil er ein af þessum klassísku bandarísku ofúrhetju- sögum. Daredevil er í raun blindur lögfræðingur, sem varð fyrir því óláni að missa sjónina vegna geislunar. Þetta olli því jafnframt að önnur skilningarvit hans mögnuðust upp, svo hann hreyfír sig líkt og hann væri sjáandi vegna ofúrheymar og einskonar leðurblökulegrar rat- sjár. Almennt má álíta að ofur- hetjusögur eins og Daredevil séu ætlaðar bömum og ungling- um en sagan sem ég hef í huga Daredevil: Gangwar (skrifúð af Frank Miller, 1981-2), er áhugaverð fyrir það að hún stendur á mörkum hinna hefð- bundnu ofurhetjusagna og þeirrar gerbreytingar sem varð á þeim á níunda áratugnum. Þá komu fram höfundar eins og Frank Miller og Alan Moore sem, eftir að hafa skrifað nokkr- ar tiltölulega hefðbundnar ofur- hetjusögur, tóku sig til og ger- breyttu forminu, gerðu það

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.