Börn og menning - 01.09.2000, Page 38
BÖRN OG /v\ENN|N6
TIL HAMINGJU !
Islensku bókmenntaverðlaunin
Þau tímamót urðu í ár að bamabók var í fyrsta sinn
tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki
fagurbókmennta. Það var bók Andra Snæs Magnasonar,
Sagan af bláa hnettinum, og hlaut hún verðlaunin.
Bókin er myndskreytt af Aslaugu Jónsdóttur og gefín út
af Máli og menningu. Hún hefur þegar verið þýdd á
norsku, dönsku, færeysku og eistnesku.
Möguleikhúsið 10 ára
Bamaleikhúsið Möguleikhúsið varð tíu ára á þessu
ári og er elsta starfandi sjálfstæða leikhúsið á landinu og
sennilega öflugasta ferðaleikhús landsins. Það var stofti-
að af Pétri Eggerz, Bjama íngvarssyni og Grétari Skúla-
syni og em þeir Pétur og Bjami enn höfuðpauramir í
starfseminni. Möguleikhúsið leggjur áherslu á að sýna
ný íslensk leikverk og em þau orðin 19 talsins. Allar
sýningar Möguleikhússins em settar upp með það í huga
að sýna einnig utan Reykjavíkur. Möguleikhúsið sýnir
líka jólaleikrit fyrir bömin á hverri aðventu.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Til verðlaunanna vom tilnefndar bæði frumsamdar
bækur og þýðingar.
Bækumar vom: Grýlusaga eftir Gunnar Karlsson í
útgáfu Skrípó, Kleinur og karrí eftir Kristínu Steins-
dóttur í útgáfu Vöku-Helgafells, Landnámsmennirnir
okkar eftir Stefán Aðalsteinsson gefín út af Máli og
Menningu, Milljón steinar og Hrollur í dalnum eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Sagan afbláa hnettin-
um eftir Andra Snæ Magnason, báðar í útgáfu Máls og
Menningar.
Til verðlauna fyrir þýðingar vom tilnefndar: Harry
Potter og viskusteinninn í þýðingu Helgu Haraldsdóttur
gefin út af bókaútgáfunni Bjarti, Hvalir ogstórir kettir,
fræðibókaflokkur í þýðingu Ömólfs Torlacius í útgáfu
Skjaldborgar, Ógnarlangur krókódíll í þýðingu Hjör-
leifs Hjartarsonar í útgáfu Máls og Menningar,
Ógnaröfl, spennubókaflokkur í þýðingu Guðna Kol-
beinssonar gefin út af Æskunni og Sannleikann eða
áhættuna í þýðingu Sigrúnar Á. Eiríksdóttur einnig í út-
gáfu Æskunnar.
Verðlaunin hlutu Grýlusaga eftir Gunnar Karlsson
og myndskreytt af honum og þýðingar Guðna Kol-
beinssonar á Ógnaröflum.
Sérstök verðlaun hlaut einnig Ragnheiður Gestsdótt-
ir fyrir framlag sitt til bamabókmennta, bæði í máli og
myndum.
36
Dómnefnd Bamabókaverðlauna Reykjavíkur skipa:
Sigrún Elsa Smáradóttir, formaður; Guðrún Pétursdóttir
og Kristrún Ólafsdóttir.
íslensku barnabókaverðlaunin
Á fimmta tug handrita kepptu til íslensku bama-
bókaverðlaunanna í ár en þetta er í sextánda sinn sem
þau em veitt. Að þeim standa útgáfufélagið Vaka-Helga-
fell, fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Bamavina-
félagið Sumargjöf og Böm og bækur. 12. október vom
úrslit tilkynnt og féllu verðlaunin í hlut Ragnheiðar
Gestsdóttur fyrir bókina Leikur á borði.
Ragnheiður hefur samið eða endursagt ellefu bækur
fyrir böm og myndskreytt um tvo tugi bóka. Fyrr á
þessu ári vom henni veitt Bamabókaverðlaun Reykja-
víkurborgar fyrir framlag sitt til bamabóka.
Janusz Korczak verðlaunin
Börn og bækur tilnefndu bók Andra Snæs Magna-
sonar, Sagan af bláa hnettinum, til Janusz Korczak
verðlaunanna. Janusz Korczak var bamalæknir og
þekktur rithöfundur í Póllandi. Hann var Gyðingur og
lét lífíð í fangabúðum nasista í Treblinka ásamt 200
munaðarlausum bömum sem hann hafði stofnað heimili
fyrir. Verðlaunin em veitt núlifandi rithöfundi fyrir bók
sem stuðlar að skilningi og vináttu milli bama. IBBY
deildum um allan heim er boðið að tilnefna bók til verð-
launanna.
Þær fréttir bámst nýverið að Andri Snær hefði hlotið
verðlaunin og óskum við í Bömum og bókum honum
innilega til hamingju.
j