Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 41

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 41
BÖRN oc mENN|N6 Þórarinn Eldjárn (f.1949) Þórarinn Eldjám er fæddur í Reykjavík 22. ágúst 1949. Hann gekk í skóla að hefð- bundnum Vesturbæjarhætti: Tjamarborg 1953-56, Melaskóli 1956-62, Haga- skóli 1962-65, Mennta- skólinn í Reykjavík 1965- 69, stúdentspróf vorið 1969 frá máladeild. Nam bókmenntir og heimspeki við Háskólann í Lundi 1969-72, íslensku við Háskóla íslands 1972-73, bókmenntir í Lundi 1973-75 og lauk þaðan fil kand prófivorið 1975. Búsettur í Stokkhólmi 1975-79 en frá 1980 í Reykjavík. Dvaldist rúmt ár í Kantaraborg 1988-89. Rithöfundur og þýðandi að aðalstarfi frá 1975. Hefur setið í stjóm Rithöfundasambands íslands, Bandalags íslenskra listamanna og Foreldra- og vinafélags Kópa- vogshælis. Fulltrúi RSÍ í íslenskri málnefnd. í ritnefnd Þroskahjálpar, tímarits Landssamtakanna Þroskahjálpar. „Mestu skiptir að börn verði lesendur, ánetjist bókum, heltekin af lestrarþörf. Þar skiptir magnið mestu, (gæðin geta svo komið síðar ef verkast vill). Til að þetta megi verða þarf að lesa af kappi fyrir ólæs börn og nýlæs, eða alveg þangað til þau segja: nú get ég. Og þau verða að finna að okkur þyki bæk- urnar skemmtilegar. Þess vegna er brýnt að svokall- aðar barnabækur séu einnig við hæfi fullorðinna. Annars lendir allt í ólestri.“ Útgefin verk: Ljóðabœkur handa börnum, myndskreyttar af Sigrúnu Eldjárn: Óðfluga (1991, 2. útg. 2000) Heimskringla (1992) Halastjarna (1997) Ljóðaskreytingar við myndabœkur eftir Sigrúnu Eldjárn: Gleymmérei (1981, endurbætt 1996) Stafrófskver (1993) Talnakver (1994) Asamt Brian Pilkington: Jólasveinaheimilið (1982) Asamt Tryggva Ólafssyni: Litarím (1992) Leikrit: Völuspá (Möguleikhúsið 2000) Auk þess fjöldi fullorðinsbóka og engin þeirra bönnuð bömum. Viðurkenningar fyrir barnabœkur: Sérstök viðurkenning Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar 1992 fyrir Óðflugu (ásamt Sigrúnu Eldjám). IBBY-viðurkenning 1993. Verðlaun Reykjavíkurborgar 1998 fyrir Halastjörnu (ásamt Sigrúnu Eldjám). Auk þess verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi ís- lenskrar tungu 1998. Óðfluga, Heimskringla og Halastjarna tilnefndar af íslands hálfu til norrænu bamabókaverðlaunanna 1998 og 1999, lagðar fram í danskri þýðingu Bjöms Sigur- björnssonar. 39

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.