Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 46

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 46
BÖRN 06 /v\ENN[N6 verknaði. Jaínvel Clinton Bandaríkjaforseti slóst í þennan hóp vandlætara þegar hann hélt því fram að auk þess að merkja þyrfti hverja myndbandsspólu við hæfí að utan- verðu, skipti innihald myndbandsins miklu máli sem og þau áhrif sem það hefur á innviði bama okkar. Forsetinn var vissulega að vísa til þeirrar ábyrgðar sem kvik- myndagerðarmenn bera gagnvart samfélagi sínu en um leið virtist hann velta upp þeim möguleika að beint sam- hengi gæti verið milli áhorfs og hegðunar, að óþroskuð böm og ungmenni túlki ofbeldisverk á tjaldi og skjá sem hvatningu til að gera slíkt hið sama. Kvikmyndin Basketball Diaries með Leonardo Di Caprio frá árinu 1995 dróst inní þessa umræðu vegna atriðis sem í henni er að finna, þar sem Di Caprio slátrar skólafélögum sínum í draumi. Aðstandendur myndar- innar eiga einnig í málaferlum við ljölskyldur þriggja ungmenna sem myrt voru af 14 ára pilti í Kentucky árið 1997. Fjölskyldumar halda því fram að myndin hafí orðið piltinum innblástur til morðanna. Þegar hinn tæplega þriggja ára gamli James Bulger var myrtur af tveimur strákum í Bretlandi árið 1993 var mikið gert úr því að strákamir hefðu sótt sitt andlega fóð- ur í hryllingsmyndir á borð við Child 's Play seríuna þar sem sála raðmorðingja flyst yfir í saklausa drengjabrúðu og tekur uppá óskunda. Fljótlega hurfu þessar myndir úr hillum myndbandaleiga og í Bretlandi verða þær um langan aldur tengdar órjúfanlega við hið hryllilega morð. Þegar harmleikir á borð við fyrmefnda eiga sér stað spyr fólk sig fyrst af öllu; hversvegna? Og ljölmiðlar telja það auðvitað hlutverk sitt að veita einhver svör, helst skjótt og ömgglega. Ofbeldiskvikmyndir em auð- veldur skotspónn. Oft virðast fréttaskýrendur og álits- gjafar leyfa sér að halda að þær verði til í tómarúmi; ein- hverskonar uppfmning óvandaðra manna til að inn- prenta æskulýðnum vonda siði og græða á öllu saman. Þó að eitthvert sannleikskom megi í því finna á köflum og vissulega geti kvikmyndagerðarmenn ekki skorast undan sinni ábyrgð, em hlutimir því miður ekki svona einfaldir. Þessar myndir em skilgetið afsprengi þeirrar menningar sem getur þær af sér. Það verður nefnilega ekki undan því vikist að horfast í augu við þá staðreynd að þær svala þörfum fjöldans sem fer að sjá þær, það er eitthvað í þeim sem á samhljóm djúpt í sálum svo margra okkar. Sé þetta tekið með í reikninginn neyðist fólk til að horfast í augu við eigið upplegg, sem er auðvitað frekar óþægilegt. Það er svo miklu þægilegra að fínna blóra- böggul. Flest viljum við forðast að horfast í augu við eig- ið djúp því þá um leið horfist djúpið í augu við þig. En þegar betur er að gáð er þar þá ekki í ráúninni ýmislegt að finna sem illa samræmist almennum boðorðum um guðsótta og góða siði? Við verðum að kannast við þessa þætti í fari okkar allra, líka bamanna okkar, líkt og Bmno Bettelheim bendir á. í kvikmyndunum, sem í öðmm frásagnar- formum, fínnum við farveg fyrir hinar margvíslegu og mótsagnakenndu tilfínningar okkar. Eða snýst ekki til- veran um leit og val? Því hljótum við að vilja rækta með bömum okkar þann hæfileika að kunna að leita, velja og hafna og sem mest á eigin forsendum. En kannski, ég segi bara kannski, hafa siðapostul- amir rétt fyrir sér. Vegna hinnar afdráttarlausu náttúm miðilsins hættir okkur svo oft til að taka hann „bókstaf- lega“. Fyrir nokkmm ámm var ég einmitt viðstaddur sýningu á fyrmefndri kvikmynd Friðrik Þórs Friðriks- sonar, Bíódagar, í kvikmyndahúsi hér í bæ. Um mynd- ina miðja er atriði þar sem ungir bíógestir horfa á Roy Rogers á bíótjaldinu. Upptökur þessa atriðis fóm fram í Gamla bíói. Þetta fór fyrir brjóstið á miðaldra bíógesti sem sat fyrir aftan mig og fussaði: Iss, Roy Rogers var aldrei sýndur í Gamla bíói, hann var alltaf í Austur- bæjarbíói! Hvað á maður að gera við svona fólk? Greinarhöfundur er kvikmyndargerðarmaður. 44

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.