Börn og menning - 01.09.2009, Page 5

Börn og menning - 01.09.2009, Page 5
Frá ritstjóra 5 Hvað er það sem grátandi börn? heillar við Fólk um allan heim hefur öldum saman heillast af myndum af börnum með tár á hvarmi. Myndir af grátandi börnum héngu víða á veggjum þegar ég var að alast upp og þær má enn sjá hér og þar. Ég held að myndin sem köiluð er „Drengurinn með tárið" og merkt er listamanninum Bragolin hafi verið algengust í Hafnarfirði, en aðrar myndir í svipuðum anda mátti víða finna. í bókinni Guðirnir eru geggjaðir, segir Stefán Jón Hafstein frá starfi sínu fyrir Rauða krossinn í Afríku. í bókinni er kafli með yfirskriftina „Drengurinn sem grætur" en þar rifjar höfundurinn upp þegar hann var sjúkraflutningamaður i Reykjavík og rakst ósjaldan á drenginn með bústnu kinnarnar og tárvotu augun á veggjum heimila Breiðholtsbúa. Þegar Stefán Jón fór síðan löngu síðar að starfa að nýju á hvítum bíl með rauðum krossi, en þá i fjarlægri heimsálfu, endurnýjaði hann kynnin við eftirprentunina af tárvota barninu. í kofunum i þorpum Afriku rakst hann hvað eftir annað á drenginn sorgmædda sem hafði forðum starað á hann af veggjum Reykvíkinga. Sömu tárvotu augun og sama mæðan heillar fólk og hrærir í Súdan og Grímsnesinu, svo gripið sé til klisjunnar. íbúar Eþíópíu og íslands elska þetta tárvota barn og sjálfsagt íbúar allra landa þar á milli. Máiarinn og myndirnar Eftir flandur um Internetið hef ég fundið merkilega lítið bitastætt um frægasta málara myndanna af grátandi börnunum. Myndirnar eru yfirleitt merktar með nafninu Bragolin en sami listamaður er þekktur undir nafninu Bruno Amadio, Giovanni Bragolin og J. Bragolin og samkvæmt Wikipediu var hann uppi á árunum 1911- 1981. Fjöldaframleiddar eftirprentanir þessa málara virðast fyrst hafa komist í umferð um 1950 í Feneyjum en tuttugu og sjö mismunandi myndir af grátandi börnum eru merktar Bragolin. Þó að þekktastar séu myndir af grátandi drengjum eru líka til myndir af grátandi stúlkum. Stundum er frægasta myndin af drengnum með tárið kölluð „Grátandi sígaunadrengurinn", en ekkert bendir til þess að myndin eigi að vera af dreng úr flokki Rómafólksins. Bruno Amadio hefur verið vel drátthagur,

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.