Börn og menning - 01.09.2009, Side 8

Börn og menning - 01.09.2009, Side 8
8 Börn og menning mér ffinnst - - . ... heppilegt að börn fæðist ekki iæs, það gefur okkur foreldrunum tækifæri til að lesa skemmtilegarsögurúrokkareigin barnæsku og kynnast nýjum barnabókahöfundum og jafnvei spreyta okkur á að búa til okkar eigin ævintýri og sögur. í fyrsta sinn sem ég heyrði einhvern gera tilraun til að skilgreina menningu var ég um það bil átta ára, staddur fyrir utan stórt hús í miðborg Stokkhóms og spurði foreldra mina hvað orðið, Kulturhuset, þýddi. Þau fóru að tala um menningu og þá lá beint við að spyrja hvað menning væri. Ekki man ég nákvæmlega hvaða útskýringa þau gripu til við útskýringar á fyrirbærinu menning og trúlegast hefur mér ekki þótt þær fullnægjandi því allar götur síðar hef ég verið að velta þessu fyrir mér. Fetað út á menningarbrautina Ein fyrstu kynni barna af menningu eru trúlegast f gegnum bækur, það má vel vera að ég hafi rangt fyrir mér í því og að mann- og félagsfræðingar séu löngu búnir að fylla heilu bókasöfnin með kenningum um það hvernig menningin berist fyrst til mannsungans er móðir syngur sefandi söngva fyrir slefandi ungabarn, hvað veit ég. Ég og sonur minn fetuðum okkur alla vegana út á menningarbrautina saman með lestri bóka. í fyrstu voru ritverkin með hörðum og helst vatnsheldnum spjöldum sem á voru litríkar myndir og einfaldar setningar og náðum við feðgar fyrst saman á menningarlegum grundvelli á þeim vettvangi. í okkar tilviki var nánast hoppað yfir vögguvísutímabilið og farið beint í mjúkan faðm bókmenntanna en það skrifast að mestu eða öllu leyti á lagleysi föðurins og næmt tóneyra sonarins. Drengurinn var nánast ómálga er hann baðst undan gaulinu í mér og mótmælti kröftulega á sinn hátt er ég hóf upp raust í tilþrifamiklu bíumbíumbambi, en sefaðist við að skoða myndir og hlýddi hugfanginn á frásagnír tengdar þeim og því eigum við okkar bóka- og sögustundir. Endurtekning og sköpun Það kannast allir við að börn eru íhaldssamar verur sem eru lítið fyrir breytingar en eru hins vegar mjög hrifin af endurtekningu, sem er skiljanlegt því það er erfitt að læra á heim sem tekur sífelldum breytingum, og þegar allt er nýtt fyrir manni þá er ekkert eðlilegra en að halda fast í það sem maður telur sig hafa náð tökum á. Því er það að góðar barnabækur verða að þola mikla endurtekningu ef þær eiga að ná vinsældum meðal foreldra. Það er til dæmis dásamlegt að lesa skrímslabækur Áslaugar Jónsdóttur og samrithöfunda hennar og Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar, eftir Margréti Tryggvadótturog HalldórBaldursson, þarsem mynd- og lesmál stangast á í skemmtilegri mótsögn og foreldrar fá blikk frá höfundum. Sjálfum finnst mér skemmtílegast þegar barnabókahöfundar leyfa hinum fullorðna lesara að vera með og taka tillit til þess að foreldrarnir taka þátt í því að miðla innihaldi bókarinnar. Skáldskapur er einskisnýtur ef enginn er lesandinn og nýlega heyrði ég verðlaunaskáld halda því hikstalaust fram að helmingur sköpunarferlisins ætti sér stað við sjálfan lesturinn. Leiðinlegir prentgripir Sonur minn á það til að taka ástfóstri við leiðinlegar bækur, þar er yfirleitt á ferðinni einhver óútskýranlegur áhugi á tækjum á borð við gröfur og þyrlur og það er lítið sem maður getur gert annað en að bíta á

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.