Börn og menning - 01.09.2009, Side 16

Börn og menning - 01.09.2009, Side 16
Velkomin á fund Leynifélagins í hinum dularfulla Leynilundi, kæru Leynifélagar. Allir þeir sem hlusta á fundinn eru sjálfkrafa meðlimir í Leynifélaginu, en við mælum með því að fullorðnir hlusti í fylgd barna, til að byrja með. „Hvert er leyniorðið?" Leynifélagið var stofnað sumarið 2007 af Brynhildi Björnsdóttur og Kristínu Evu Þórhallsdóttur. Fyrsti fundurinn var haldinn lO.september 2007 og þá bættust strax leynifélagar í hópinn því allir sem hlusta á fundina verða sjálfkrafa meðlimir í Leynifélaginu. Fullorðnum er þó ráðlagt að hlusta með börnum, fyrst í stað að minnsta kosti. Fundir voru fyrsta veturinn sunnudaga, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga en sunnudagsfundirnir fluttust yfir á föstudaga haustið 2008. Þá bættist Leynifélaginu einnig liðsaukinn Ævar Þór Benediktsson, uppfinningamaður og viðtalari með meiru, sem er nokkuð á sínum eigin vegum, fjallar um uppfinningar og tekur viðtöl en mætir ekki endilega á venjulega fundi. Uppbygging fundanna er alltaf svipuð yfir vetrartímann, aðeins öðruvísi á sumrin. Hurð opnast og fótatak gefur gönguferð til kynna, úlfur ýlfrar í fjarska og svo heyrist kynningarstefið, lagið um Bleika pardusinn og svo er beðið um leyniorð og -persónu. Leyniorðið gefur oftast til kynna efni fundarins og hver einasti fundur hefst á leyniorðinu. Brynhildur og Kristín Eva stýra fundi saman en Ævar Þór yfirleitt einn. Efni fundarins er af ýmsum toga, upp úr hljóðskjóðu Leynilundar eru dregin upp viðtöl við krakka sem eru að gera eitthvað skemmtilegt, við flytjum árstíðabundið efni, kynnumst tómstundum barna, og ungir fréttaritarar Leynifélagsins kynna sér störf fullorðinna með viðtölum. Svo kynnum við auðvitað menningu fyrir krakka, leikhús, tónlist og ekki síst bækur. Á föstudagsfundum fræðumst við um heima og geima eða hlustum á tónlist. Framhaldssaga er lesin alla daga nema föstudaga og svo er fundi slitið með því að farið er með leynikveðjuna „Leynifélag alltaf leyndó alltaf gaman." „Hver ert þú?" Við erum tvær konur á fertugsaldri, mæður og blaðamenn. í raunveruleikanum. Á Leynifélagsfundum erum við hinsvegar á óræðum aldri, stelpukonur sem hafa brennandi áhuga á öllu og göngum inn í ákveðnar, en mjög lausmótaðar persónur sem eru við en aðeins ýktari. Eina skilyrðið er jákvæðni og glaðlyndi, án þess þó að það fari út í öfgar. Við leggjum okkur líka allar fram um að tala við Leynifélaga með virðingu, án þess að verða of háfleygar eða settlegar. Við hlustuðum báðar mikið á útvarp sem börn og reynum að halda fundi sem við hefðum sjálfar haft gaman af því að hlusta á. Við spilum Ifka heilmikið af tónlist frá því við vorum litlar og veljum gjarna bækur sem okkur fannst skemmtilegar til að lesa sem framhaldssögur. Þriðji fundarstjórinn, Ævar Þór, er ólíkur okkur um margt, og þessvegna svo bráðnauðsynleg viðbót við Leynifélagið. Hann er kynslóð yngrí, meira afmörkuð persóna, eilítið stórskrýtinn uppfinningamaður, og svo, auðvitað, strákur. „Velkomin í Leynilund" Leynilundur er félagsheimili Leynifélagsins og þar eru fundirnir haldnir og þeim útvarpað á Rás 1 fjórum sinnum í viku. Leynilundur er galdrastaður þar sem allt getur gerst, síbreytileg gagnvirk veröld þar

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.