Börn og menning - 01.09.2009, Side 21

Börn og menning - 01.09.2009, Side 21
Prumpað í Óslo Ingólfur Gíslason Prumpað í Osló '\jr Doktor Proktor og prumpuduftið eftir Jo Nesbo í þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl í gamla daga var ekki mikið fjallað um líkamlegar þarfir i barnabókum. Ómar Ragnarsson söng að vísu um mismunandi gerðir hláturs en nær okkur í tíma eru prumpulag doktors Gunna, bókin um moldvörpuna sem vildi vita hver skeit á hausinn á sér og fleiri verk ætluð börnum. Þetta er til marks um aukið frjálsræði og viðurkenningu á líkamleika manneskjunnar. Engu að síður þykir ennþá hvorki snoturt né snyrtilegt að tala mikið um hluti eins og prump eða kúk, og fremur dónalegt að ropa hástöfum. Þess vegna er líka svona skemmtilegt að gera það. Hetjusaga af agnarlitlum strák Þrátt fyrir titil bókarinnar þá er prump í sjálfu sér ekkert aðalatriði í bókinni. Sagan er að formi til hetjusaga af agnarlitla stráknum Búa. ( upphafi sögunnar flytur hann á Fallbyssustíg í Osló. Hann kynnist nágrannastúlkunni Lísu og brjálaða prófessornum doktor Proktor sem finnur upp bæði venjulegt prumpuduft og geimprumpuduft sem er svo öflugt að það má nota til að prumpa sér til tunglsins. Slík vara er augljóslega verðmæt og því verða þrjótarnir, herra Þráinn og synir hans, að stela því. Um tíma dúsa Búi og doktor Proktor „í öruggasta fangelsi í Norður-Evrópu að Finnlandi undanskildu." En þó að Búi sé alveg óvenjulega lítill er hann hugrakkur, orðheppinn og útsjónarsamur og hann kann að nýta sér smæð sína til að sigrast á erfiðum aðstæðum. Við lesum í leiðinni um glæpi og refsingu og undirheima klóakröranna fyrir neðan Osló, þar sem skíturinn flæðir, túrtappar fljóta um og rottur mega vara sig á kyrkislöngu með flugbeittar tennur. Litli strákurinn Búi er hugprúður, lífsglaður og fullur af húmor, en allt um kring eru hinir ýmsu sígildu lestir mannkynsins að verki. Gráðugur og tillitslaus vondikarl, kennari sem er fastur í formi og reglum, hégómlegur hljómsveitarstjóri, fullorðið fólk sem tekur ekki mark á börnum, heimskir lögregluþjónar. Kannski er það allt í lagi, og jafnvel nauðsynlegt, en vísindamaðurinn (sem er mikilvæg persóna í bókinni) er nokkuð staðalímyndaður sem brjálaður prófessor, og þeir sem teljast vondir eru líka feitir - ég veit ekki alveg hvað á að segja um það. Fyndin og spennandi Ég las bókina fyrir son minn, sjö ára, og hann segir að hún sé spennandi og skemmtileg. Textinn er líka víða fyndinn, og sver sig í ætt við stíl Ole Lunds Kirkegaards, að minnsta kosti á köflum, þar sem lesanda er komið á óvart með fáránlegum lýsingum eða óvæntu

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.