Börn og menning - 01.09.2013, Qupperneq 30
VESTUf?HLlt>
^>- ,4v4^í - :\4-:
Ú?>!'Vá'V/V V
SÁtmkyu
] ^w£?>
'iW/f/j)^
^tWkl n
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir
..[ |
Bræður munu berjast: um
Strokubörnin á Skuggaskeri eftir
Sigrúnu Eldjárn
Sigrún Eldjárn er einn ástsælasti og
afkastamesti barnabókahöfundur landsins
og hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir verk
sin. Árið 2007 varð hún til að mynda fyrsti
handhafi Sögusteins IBBYauk þess sem hún
hefur þrivegis hlotið Barnabókaverðlaun
Reykjavíkurborgar. Sigrún hefureinnig verið
tilnefnd til H.C. Andersen verðlaunanna,
Astrid Lindgren verðlaunanna og Norrænu
barnabókaverðlaunanna.
Síðustu árin hefur Sigrún Eldjárn gefið út
hvern ævintýraþríleikinn á fætur öðrum.
Árin 2003-2005 komu út bækurnar Týndu
augun, Frosnu tærnar og Steinhjartað sem
segja frá þolraunum systkinanna Stínu og
Jonna ( ævintýraheimum. Eyja gullormsins,
Eyja glerfisksins og Eyja sólfuglsins komu út
2006-2008. Þar segir frá sumarævintýrum
Ýmis og Gunnu og barnanna tveggja
sem þau passa. Síðasti þríleikur Sigrúnar,
safnasögurnar svokölluðu, Forngripasafnið,
Náttúrugripasafnið og Listasafnið komu svo
út á árunum 2010-2012.
Safnabækur Sigrúnar hafa verið í sérstöku
uppáhaldi hjá mér en þar leikur höfundurinn
sér skemmtilega með hugmyndir
upplýsingaaldarinnar um heimsmyndina og
stöðu mannsins (veröldinni. Bækurnar segja
frá Rúnari sem flytur til smáþorpsins Ásgarðs
þegar faðir hans er skipaður nýr safnastjóri
bæjarins. Tekin er sú ákvörðun að deila
safngripum Ásgarðs niður í þrjú ný söfn,
forngripasafn, náttúrugripasafn og listasafn.
Söfnin í þessum þríleik Sigrúnar eru
Wunderkammer 18. aldarínnar, söfn
undursamlegra og undarlegra gripa sem
nýlenduherrarnir í Evrópu sönkuðu að sér frá
framandi löndum, flokkuðu og skilgreindu. í
bókunum lýsir Sigrún því hvernig maðurinn
flokkar og skilgreinir undur veraldar, en
ólíkt því sem gerðist á 18. öld þá hverfa
furður veraldar ekki úr Ásgarði þrátt
fyrir að safngripir séu skrásettir. Nei, hið
undursamlega lifir og dafnar í söguheimi
safnabókanna.
Deilt á hervæðingu nútímans
Nú er komin út ný bók eftir Sigrúnu,
Strokubörnin á Skuggaskeri. Sigrún hefur
ekki gefið upp að þetta sé fyrsta bókin í