Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Qupperneq 6

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Qupperneq 6
6 FÉLAGSTÍÐINDI Björn Arnórsson: KJARA- BARÁTTAN Mikiö hefur verið rætt og ritaö um aÖgerðir ríkis- stjómarinnar nýju, sem því miöur treysti sór ekki til að setja kjara- samninga opinberra starfs- manna í gildi. Samningar BSRB, sem fengust eftir mikla vinnu og verkfall, urðu semsagt aldrei nema þriggja mánaöa gamlir. Þaö er umhugsunarefni aö eihhverjir meölimir verkalýð shreyfingarinnar hafi talið sjálfsagt að skeröa samningsrétt BSRB. Samningsréttinum má aldrei hvika frá, um það verða samtök launafolks aö vera einhuga. Ef latið er eftir undan átroðningi á samningsrétt eins stéttarfélags er hætt við að vörnin veröi veikari þegar lagt er til atlögu við samningsrétt hins næsta. Hvað sjálf launin varðar ber hins ve^ar að viður- kenna að stort skref er stigið í rétta átt með nýju lögunum, þrátt fyrir það að þak sé sett á vísi- töluna við 15. launaflokk. Félagsmönnum SFR til glöggvunar birtum við hér dreifingu félagsmanna í launaflokka eins og hún er í stórum dráttum. Lfl. Fjöldi Lfl. Fjöldi 1 0 16 105 2 9 17 83 3 22 18 55 4 65 19 26 5 259 20 32 6 418 21 25 7 358 22 14 8 257 23 9 9 298 24 9 10 305 25 2 11 236 26 4 12 230 27 4 13 168 28 4 14 140 29 2 15 165 30 4 Af þessum tölum kemur Réttur til ráðn- ingar í 12 mánuði Starfsmannafélag ríkisstofnana hefur með bréfi til for- stöðumanna skólastofnana lagt þunga áherslu á að nú í upp- hafi skólaárs verði þess gætt, að starfsfólki ríkisrekinna skólastofnana verði gefinn kostur á að njóta ákvæða þess samkomulags, sem náðist við gerð aðalkjarasamnings BSRB x fyrra um ráðningarkjör starfsmanna skólastofnana annarra en kennara. Umrædd samningsákvæði segja til um, að þeir, sem ráðnir séu að skólastofnunum til annarra starfa en kennslu, og ekki sfarfa allt árið, skuli hafa 40 klukkustunda vinnu- txma á viku til jafnaðar yfir árið sé um fullt starf að ræða, og að semja megi um tilflutning vinnuskyldunnar milli árstíða. í bréfi SFR er minnt á, að ekki hafi verið tök á að gefa starfsmönnum þessum abmennt kost á tilflutningi á síðastliðnu ári vegna þess hversu liðið var á árið þegar samkomulagið var gert. Hins vegar hafi þá náðst samkomu- lag milli aðila um verklagsreglur um tilflutning vinnu- skyldu milli árstíða. NÚ sé að framkværidum komið. "Þessum starfsmönnum, sem oftast eru laklega launaðir, væri það gífurleg kjarabót að fá 12 mánaða ráðningar- samning í stað 9 mánaða eins og venja var", segir enn- fremur í bréfi félagsins. "Með því öðlast það visst starfsöryggi árið um kring, jafnaðarlaun, rýmri veikinda- réttindi, þriggja mánaða barneignaleyfi auk fullrar að- ildar að lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna." Sjúkraliðar fengu loks hækkanir Franhald af bls. 5 Þá var einnig samþykkt að röðun sjúkraliða á St. Jósefs- spítala yrði með sama hætti að meginreglu til og á rxkis- spítölunum. Undir ákvæðin í ofangreindu samkomulagi um "sérdeildir" falla einnig sjúkraliðar, sem starfa við maga- speglanir og hjartalínurit á Landakoti. Samanburður í þessu samkomulagi felst veruleg kjarabót fyrir sjúkra- liða, eins og best sést þegar gerður er samanburður við fyrri samninga, eins og gert er í eftirfarandi yfirliti: Röðun sjúkral. í lfl. 6.lf1. 7.lfl. 8.lf1. 9.lfl lO.lfl. Lfl. sjúkral. f. samn. 0-4 ár 1-0 i—1 1 ; 15 ár (Dalbr.) 1 lfl. Krafa SFR alm.sjúkral. 0-2 - 2-4 - 4-15 - 15 ár " " sérh. " 0-2 - 2-15 - 15 - Tilboð rík. í upphafi 0-4 - 4-5 - 5-15 - 15 - Krafa rík.f. kjaranefnd 0-4 - 4-15 - 15 (óbr.f.f.samn. NÝR SAMNINGUR alm. 0-3 - 3-6 - 6-9 - 9-15 - 15 ár sérh. 0-2 - 2-4 - 4-6 - 6-15 - 15 -

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.