Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Page 7
FÉLAGSTÍÐINDI
7
Iðnó
Framhald af bls.
Leikurinn fjallar um oliufund
í hjarta Parísarborgar og tilraunir litríkrar heföar-
frúar til aö bjarga þjóðarsál Frakklands frá tortýmingu. I
Gamanríkur skáldskapur og lífsspeki. Þýðandi er Vigdís
Finnbogadóttir. Frumsýning 11. janúar 19791
4. INNKáSIN (Los invasores). Sjonleikur frá Chile
eftir Egon Wolff, eitt kunnasta leikskáld Suöur-Ameri-
ku. Þetta er í fyrsta sinn, sem leikrit eftir chile'
anskan höfund er sýnt á íslandi. Innrásarliðið sest
upp á heimili góðborgara með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Þýðandi er Örnólfur Arnason. Frumsýning
í byrjun mars 1979.
5. VORVERKEFNI. Leikfélag Reykjavíkur hefur sem fyrr
leitað til ýmissa leikskálda okkar og tónlistarmanna
um verkefni og gerir sér vonir um andsvör a við þau,
sem svo oft áður hafa öðlast ríkan hljómgrunn í leik-
húsinu við Tjörnina. Fyrirhuguð frumsýning x maí
. 1979.
Framhald af bls. 3
7. Mál nokkurra einstaklin^a sem ráðnir voru í starf (til
sumarafleysinga) hjá rikinu frá 1. júní s.l. og
rituðu undir ráðningarsamning þar um, þar sem m.a. var
tiltekinn launaflokkur og launaþrep. Mánuði síðar
þegar þetta fólk fær launaseðil kemur í ljós að launa-
deildin hefur lækkað laun þess um allt að 4 launaflokk-
um.
í stað þess að greiða þessu fólki þau laun er fylgja
viðkomandi starfi (eins og sumir af þessum einstakling-
um fengu í fyrrasumar), greiddi ráðuneytið laun eftir
töflu um "laun unglinga og námsfólks", sem það sjálft
hefur gefið út og auglýst. Byggist sú ákvörðun á því
að BSRB hafi ekki samningsrétt fyrir þetta fólk þar
sem starf þess hjá ríkinu sé ekki aðalstarf, þetta sé
námsfólk sem hafi nám að aðalstarfi.
BSRB heldur hinsvegar fram samningsrétti sínum. Telur
augljóst að með ákvæðum í lögunum um kj arasamninga, að
starf verði að teljast aðalstarf, sé átt við það tíma-
bil þegar starfið er innt af hendi. Ef manneskja starfi
hjá ríkinu um 3ja mánaða skeið geti það talist hennar
aðalstarf þaö tírnaöil.
RÍkið hafnaði erindum BSRB. Stjóm BSRB hefur því fal-
ið lögfraðingi sínum að höfða mál fyrir Félagsdómi.
Þessi upptalning getur aldrei orðið taaxiandi. Fjöldamörg
oformleg erindi og fyrirspurnir hafa verið lagðar fyrir sam-
starfsnefnd að frumkvasmi starfsmannafélagsins. Nefna má
erindi almenns eðlis um: fyrirkomulag á greiðslu orlofs-
framlags, um réttindi kvenna sem starfa hjá ríkinu á árstíð-
arbundnum samningum til launa x bameignarleyfum, um ráðn-
ingarkjör starfsmanna á skattstofum o.fl. o.fl.
Þá má nefna mál sem nú er hjá lögfræðingi bandalagsins og
snertir allnarga félaga SFR. Hvernig skilja beri grein
1.1.13 í aðalkjarasamningi, um færslur milli 1. og 5. launa-
flokks, en allmikill ágreiningur er milli aðila um það hve
langan txma það skuli taka.
Að lokum má geta þess að fyrir frumkvæði starfsmannafélags-
ins hafi fulltrúar BSRB í samstarfsnefnd lagt fram fyrirspurn-
ir og rekið á eftir framkvæmd ákvæða aðalkjarasamnings um
fæði og mötuneytisaðstöðu.
fram að helmingur félags-
manna er í 9. launaflokki
og þar fyrir neðan og að
um 88% félagsmanna fá
fullar vísitölubætur.
Meöferðar-
fulltrúar
fá hækkun
Kjaranefnd hefur haákkað
störf "meðferðarfulltrúa"
úr sjötta launaflokki í
níunda launaflokk, en
byrjendur í starfi skulu
taka laun samkvæmt
áttunda launaflokki
fyrstu tvö ár starfstímans.
Meðf erðarfulltrúar
starfa á barnageðdeildinni
við Dalbraut.
Hækkanir til
aðstoðarmanna
Náðst hefur samkomulag
um röðun aðstoðarmanna
iðjuþjálfa og sjúkra-
þjálfara, og felur það í
sér hækkun á vissu ára-
bili úr 5. launaflokki
í 6., 7. og 8. launa-
flokk.
Samkomulagið kveður á
um að fyrstu tvö árin
taki aðstoðarmaður laun
samkvæmt 5. launaflokki,
en eftir tvö ár sam-
kvaarvt 6. flokki, eftir
fimm ár samkvæmt 7.
flokki og eftir átta ár
samkvamt 8. flokki.
Slxkar reglur hafa ekki
áður gilt um aðstoðar-
menn þessa.
Starfsþjálfun ávinnst í
hálfu starfi eða meira, þó
minnst í þrjá mánuði.
Hafi aðstoðarmaður menntun
eða sérhæfingu, sem nýtist
í starfi, er heimilt að
meta slíkt jafngildi allt
að þriggja ára starfs-
þjálfun, segir í samkomu-
laginu.