Skákblaðið - 01.11.1934, Blaðsíða 3

Skákblaðið - 01.11.1934, Blaðsíða 3
y* SKÁKBLAÐIÐ Ritstjórn annast: Jón Guðmundsson, Björn Fr. B/'örnsson, Haukur Snorrason og Björn Hdlldórsson■ j I. árgangur. ; 'Október — Nóvertíber 1934. 1. tölublað. Við íslendingar erum fámenn þjóð, og áðstaða okkar að ýmsu ‘ieyti erfið til íþróttaiðkana. Fer því að líkum, að íþrótta-afrek okkar flest eru stórum lakari en annara þióða, sem flestar eru margfaltt stærri og auðugri. 'í einni íþróttagrein má þó telja, að við stöndum utlendum þjöðum jafnfœtis, og er það skáklistin. Ástæðan til þessa hlýtur að mestu leyti að vera góðar gáfur Islendinga í þessa átt, því litlu betur hefir verið hlynnt að þessari íþrótt en öðrum hér á landi. — Eitt hið nauðsynlegasta skilvrði blónilegs skáklífs með hverri /þjóð er gott skákrit. Þetta skilyrði hefir lengst af vantað 'hér á landi, enda iþótt það sé jafn vel enn fremur áríðandi þessu strjálbyggða og erfiða samgöngulandi en í iþéttbýli, þar sem skákmenn eiga auðvelt með að ná hver til annars. Útgefendur þessa rits hafa fœrst þáð í fang, að gera tilraun til að ráða bót á þessu aðalmeini íslenzks skáklífs. Hœtt er við að fyrirtæki þetta reynist erfitt í framkvæmd, einkum fyrst i stað, og fullyrða má að það verði öframlkvæmanlegt, nema áhuga og skiln- ings megins állra skákmanna Islands njóti við. En þessum áhuga og skilningi hafa utgefendur treyst, þrátt fyrir alla flokkadrætti og skákmálapólitík hér á landi, enda munu útgefendur í því starfi forðast það í hvívetna, að sýna á sér nokkurn lit í slíkum deilum, sem hér er átt við. Áhugaefni skákmanna er fyrst og fremst skákin sjálf- Samkvœmt þessu verður tilgangur þessa rits, að efla áhuga Islendinga á skáklist og ftœða þá um skák. Vonum við, et blaðið fœr að lifa, að þessum tilgangi verði náð og merkin verði sýnileg í skáklífi landsins. B. H. "\^Xiásbók aad»

x

Skákblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skákblaðið
https://timarit.is/publication/1555

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.