Skákblaðið - 01.11.1934, Blaðsíða 15
[13] - - Skáklilaðið
Annar merkastiskákviðburður sumarsins er þingið í Ziirich, frá 14,-
29. júlí. Voru þar samankomnir margir helztu skákmeistarar álfunnar.
Auk heimsmeistarans má nefna Bogoljubow, dr. Emanuel Lasker,
sem nú, eftir 10 ára hvíld, kemur fram á sjónarsviðið, dr. Euwe,
Salo Flohr, Nimzowitsch, dr. Bernstein, Stáhlberg og Roselli. Fyrst
framan af leit út fyrir, að Flohr mundi ætla að sigra, en Alechin fylgdi
fast eftir og í síðustu umferðum þingsins komst hann fram úr Flohr
og heppnaðist honum enn einu sinni að ná fyrstu verðlaunum. Sér-
staka athyggli vakti frammistaða dr. Laskers. f*rátt fyrir það, að
hann er orðinn 67 ára að aldri og hefir lítið teflt nú um 10 ára
skeið, náði hann þó 5. verðlaunum.
Heildarúrslit urðu þessi: 1. dr. Alechin, 13 vinningar (12 unnar
skákir, 2 jafntefli og ein töpuð, móti dr. Euwe, af 15 tefldum). 2.—
3. dr. Euwe, Amsterdam, og S. Flohr, Prag, 12 v. 4. E. Bogoljubow,
Triberg lll/2v. 5. dr. Lasker, London, 10 v. 6. — 7. dr. O. S. Bern-
stein, París, og A. Nimzovitsch, Kaupmannahöfn, 9 v. 8. G. Stáhlberg,
Stokkhólmi, 8 v. 9. H. Johner, Ziirich, 7Y2 v. Henneberger 5Y2 v. Gygli
5 v. Roselli del Turco, Florenz, 4Vs v. 13.—14. Grob og Mliller 4 v.
Dr. Nágeli 3 v. 16. dr. Joss, 2 v.
Á fjölmennu skákmeistaramóti í Syracuse í Bandaríkjunum, 13.—
25. ágúst, sigraði Reschewsky; næstir urðu þeir Kashdan, Fine og
Dake. Nánari fréttir af þessu móti koma í næsta blaði.
Skákmeistaratign Oslo-borgar vann M. H. Soelberg.
Sænska skákþingið var haldið í Falun í júnímánuði. E. Lundin
og O. Kinnmark urðu nr. 1—2 í meistaraflokknum. Lur.din sigraði,
er þeir tefldu til úrslita. Hvorki Stáhlberg né Stoltz tóku þátt í mótinu.
Keppnin um meistaratignina fyrir Þýzkaland fór fram í Aachen
í maí mán. s. 1. Þátttakendur voru 17. Sigurvegari varð C. Carls
frá Bremen, fékk I2V2 vinning af 16 tefldum skákum og tapaði að-
eins éinni skák, móti dr. Rödl. 2. varð Reinhardt, Altona, 12 v. og
3. dr. Rödl, Núrnberg, 11 v.
í Bad Liebwerda, í Tékkóslóvakíu, var haldið skákmót í sumar.
I því tóku þátt 12 skákmeistarar. Efstur varð Flohr með 9V2 vinn-
ing. 2. Samisch með 7Vs v. og 3, Gilg með 7 v.