Skákblaðið - 01.05.1935, Blaðsíða 13
SkákMaðið
Rkákfélag Akureyrar sá uiu skáþingið að öllu leyti, og sá einnig
aðkomnum keppendum fvrir ókeypis uppihaldi á meðan þingið stóð
yfir. — Að skákþinginu loknu var efnt til kaffidrykkju á þingstaðn-
uro, Hótel Akureyri. Var þá úthlutað verðlaunum og nokkrar ræður
fluttar. Skyldu menn svo glaðir og reifir. — Væri óskandi að hægt
væri að halda Skákþing Norðlendinga árlega.
Nokkor orð um B — R,
eftir A. Hinds (lauslega þýdd).
Ef skýra ætti frá öllum taílaðferðum skákmeistara á ýmsum
tfmum, gæti það orðið efni í langa bók. Tilgangurinn með þessum
íáu linum er aðeins sá að taka til athugunar þær tvær stefnur, sem
mestum umbrotum hafa valdið í skáklífinu, og hafa þess vegna sögu-
legt gildi. — Fyrri stefnuna mætti kenna við ameríska skákmeistar-
ann Paul Morphy (1837--1884), því að hann mun hafa komizt lengst
þeirra, er hana hafa aðhyllst. — Hún byggist fyrst og fremst á því
að brjótast í gegn á miðborðinu fcentrum).
Upphafsmaður seinni stefnunnar var austurríski skákmeistarinn
Wilhelm Steinitz (1836- 1900). Hún byggist á því að brjótast í gegn
á jaðarlínunum, enda sé þá miðborðið tryggt. Aðferð Morphy’s var
að gefa miðpeðin (e og d), koma mönnum sínum sem fyrst fratn á
borðið og tryggja kóngsstöðuna sem bezt. Öll skákin hefir þá feng-
ið sérstakan svip Staðan er frjáls og óbundin. Upp úr slíkum tafl-
stöðum vann Morphy oítast sína glæsilegusiu sigra. — Á hinn bóg-
inn naut hann sín ekki eins vel í bundnum stöðum seinni hluta tafls
eða endatafls —
Steinitz leit öðru vísi á málið. Hann hélt því fram, að ásóknin
yrði aldrei giftusamlega til enda leidd með því að brjótast strax í
gegn á miðborðinu eða leysa það upp Hann áleit að bezt væri að
hafa miðborðið lokað og tryggt og reyna smám saman að fæia sér
í nyt veiklun í stöðu andstæðingsins og binda loks enda á viðureign-
ir.a með snöggri árás á jaðarlínunutn. Samtíðarmenn hans skildu hann
ekki, og það varð af þessu skilningsleysi að Zukertort og Tschigorin
biðu ósigur fyrir Steinitz og voru þeir þó að líkindum jafn gáfaðir
skákmenn og hann. Skákaðferð Steinitz, endurbætt af dr. Tarrasch
og Nimzowitsch, er undirstaðan að taflstí! nútíma skákmeistaia.