Skákblaðið - 01.05.1935, Blaðsíða 17
I
Skákblaðið
Skákþrauíir.
K. A. KtTBBEL. D. JOSEPH.
5. (Journat de Généve 1933, 1. veiðl) 6. (Brit, Ch. Mag)
Hvítur leikur og vinnur.
Hvítur leikur og vinnur.
Sigurvegari á hinu árlega »Trebitsch-skákþingi« í Wien varð
prófessor A, Becker.
Skákþinginu í Dresden er nú nýlega lokið. -- Úrslit urðu þau
að efstur varð Rudolf Keller, 2. Ullrich og 3. Áini Snævarr.
Hinn ungi ameriski snillingur Reuben Fine, sem undanfarið hefir
verið í heimsókn í Mexico, háði nýlega tveggja skáka einvígi við
Mexico-búann Carlos Torre. Fine vann með 11/3 gegn L/2. — Fyrir
10 árum síðan var Carlos Torre talinn einhver efnilegasti skákmað-
ur heimsins. Hann tefldi þá á stórmeistaraþingum, bæði austan hafs og
vestan, við mjög glæsilegan orðstír. Langvarandi veikindi hafa hamlað
honum að taka þátt í skákstarfsemi undanfarinna ára, en nú er svo
f að sjá sem hann sé orðinn hraustur aftur, og má þá án efa mikils
vænta af honum í framtíðinni. \ð einvíginu loknu tefldi Fine nokkur
fjöltefli með glæsilegum árangri. - í Club de Ajedrez tefldi hann
33 skákir. Hann vann 24, tapaði 5 og gerði 4 jafntefli. — í Carlos
Torre Chess Club tefldi hann við 20, vann 18 og gerði 2 jafntefli.