Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 24.06.1988, Síða 2
2
FÉLAGSTÍÐINDI
Margt óljóst um framkvæmd á
nýju samningsréttarlögunum
Starfsmannafélagi ríkisstofnana hefur á
undanförnum vikum borist úrsagnir fóstra
og meinatækna er hyggjast stofna eigið
stéttarfélag, með tilvísun til ákv. 3.tl.
5.gr. laga um kjarasamninga opinberra starfs-
manna. Stjórn félagsins hefur sarþykkt úr-
sögn þessara einstaklinga, en jafnframt
vakið athygli þeirra á, að úrsögn úr félag-
inu leysi engann undan iðgjaldagreiðslu
meðan viðkomandi tæki laun og önnur starfs-
kjör samkvæmt kjarasamningum félagsins.
Af þessu tilefni hefur stjórn Meinatækna-
félags íslands sent stjórn SFR bréf og mót-
mælt því að iðgjöld renhi til félagsins
eftir að úrsögn hefur tekið gildi. Vísar
MTÍ til 1. kafla l.gr. um gildissvið og
til 4. og 5. grein.laga um kjarasamninga
opinberra starfsmanna og telja að frá þeim
tíma er hópur telur sig hafa rétt til að
gera kjarasamning teljist hann stéttarfélag.
Það er ekki tilgangur eða markmiða stjórnar
SFR að leggja stein í götu þeirra hópa,
sem vilja nýta sér rétt sinn til að stofna
stéttarfélag og fara sjálfir með sín mál.
Hinsvegar er ljóst, að ýmis atriði varðandi
framkvæmd og túlkun tilvísaðra laga, giga
eftir að vera á dagskrá næstu vikur og mánuði.1
Skiptir miklu að sem best takist til og
ábyrgðaraðilum takist að sneiða hjá blind-
götum og skerjum er gætu valdið erfiðleikum
í samskiptum, samningum og samstarfi innan
samtakanna.
Af þessu tilefni hefur SFR skrifað fjár-
ííálæáðuneytinu bréf, þar sem segir m.a:
"Til að forðast eða draga úr líkum á vand-
ræðum vill stjórn SFR leitast við að fá svör
við eftirfarandi spurningum frá þeim, sem
til þess er bærir:
Hver staðfestir tilurð stéttarfélags?
Hvenær hefur hagsmunahópur fullnægt
ákv. laga um samningsrétt opinberra starfs-
manna, til að öðlast samningsumboð til
gerðar kjarasamnings?
Frá hvaða tíma á hagsmunahópur eða
stéttarfélag kröfu til greiðslu iðgjalda
frá félagsmönnum sínum?
Hvenær fellur niður gjaldskylda til
fyrra stéttarfélags?
a) þegar viðkomandi segir sig úr félaginu
Meinatæknar í átökum.
og gengur í annað hagsmuna- eða stétt-
arfélag?
b) eða þegar viðkomandi flyst á nýjan
kj arasamning?
Hvernig og hver hefur eftirlit með
stofnun stéttarfélags skv. lögunum?
Hvaða gögn þarf hagsmunahópur að
leggja fram til fullgildingar rétti sínum
til samningagerðar?
Hverjir eru kjörgengir eða teljast
fullgildir á félagskrá m.t.t. skýringa við
2. og 3. tl. 5.gr. um félaga í fullu starfi?
Hvað er stofnun skv. skilgreiningu tl.
2 í5.gr. laganna um samningsrétt opinberra
starfsmanna? Spurt er vegna starfsfólks á
skattstofum. Er hver skattstofa stofnun
eða má líta á þær sem heild, sama gildi um
bæjarfógeta- og sýslumannsembættin?
Hvaða áhrif hefir það á stofnun stétt-
arfélags, að samningstímabili þeirra er
málið varðar, er ekki það sama. sbr.
bæjarstarfsmenn, samningum þeirra lýkur 31.
12. 1989 en ríkisstarfsmanna 31.12.1988.
Hver er réttur eldri stéttarfélaga til
samninga fyrir einstaklinga, er verða eftir
þegar nýtt félag er stofnað?
Stjórn félagins væntir þess með tilvísun
til ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins um
félagafrelsi, að teknar verði upp viðræður
milli aðila og það fáist fullnægjandi svör
við ofangreindum spurningum, vegna þeirra
hópa er hugsa til félagsstofnana í þeim
tilgangi að taka í eigin hendur samninga
sína.