Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 24.06.1988, Síða 8
8
FÉLAGSTÍÐINDI
Kjarasamningarnir í vor verða sérstaklega metnir af KOS:
Meiri kjarabætur til há-
skólamanna og kennara
Starfsmannafélag rxkisstofnana hefur óskað
eftir því við Kjararannsóknanefnd opinberra
starfsmanna (KOS) að hún leggi mat á ný-
gerða kjarasamninga opinberra starfsmanna
og birti niðurstöður þeirrar könnunar.
Nefndin hefur fallist á að vinna þetta verk
þegar fyrir liggi samanburður á greiddum
launum í max og júní frá launaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins.
Sú endurskoðun sem fram fór á samingum
opinberra starfsmanna í vor vegna breytinga
á samningum á almennum vinnumarkaði, átti í
öllum tilvikum að byggjast á sömu forsendum.
Hins vegar virðist ljóst að sumar stéttir,
svo sem félagar í BHM og kennarar, hafa
fengið mun meiri hækkanir hjá fjármálaráðu-
neytinu en félagar í SFR.
í samningi ráðuneytisins við Kennarasamband
íslands eru til dæmis þessi atriði umfram
það sem SFR-menn fengu:
1. Launahækkun 1. júní 1988 er 0,25%
hærri.
2. Starfsaldurshækkanir koma fjrrr: 10 ár
verða að níu árum, fimmtán að tólf og átján
að fimmtán, auk þess sem nýtt launaþrep, sem
er 4% hærra en 7. þrep, bætist við launa-
töfluna og miðast við átján ára starfsaldur.
3. Reglum um prófaldur er breytt þannig,
að B.ED -próf eða sambærilegt háskólapróf,
gefur þrjú ár í prófaldri: sem sé hækkun
um þrjú ár í launum.
4. Tuttugu námskeiðstundir á námskeiðum
sem menntamálaráðuneytið gengst fyrir skal
nú metið sem eitt stig til launa, en 5-24
stig gefa einn launaflokk, 25-49 stig tvo
launaflokka og 50 stig eða fleiri þrjá
launaflokka.
5. Vinnutími styttist með því að frá
næsta hausti skal ætla 1.65 klst. á nemanda
á ári til umsjónarstarfs. Þá lækkar kennslu-
skylda byrjenda fjrsta árið í starfi um eina
kennslustund á viku.
Aðildarfélög BHM virðast einnig hafa fengið
ýmsar hækkanir umfram til dæmis SFR-menn.
Þeir fá þannig sömu hækkun 1. júní og kennar-
ar. Einnig sömu viðbót við prófaldur, þrjú
ár, fyrir 90 eininga próf eða sambærilegt
háskólapróf. Þau fá einnig starfsaldurs-
breytingar, ásamt nýju launaþrepi, hliðstætt
og kennarar.
Auk þess sem sum félaganna innan BHMR
fengu viðbótar þrep í launastiga sinn
frá l.mars s.l. á ákvæða þar að lútandi
í sínum kjarasamningum.
Við athugun K08 mun koma í ljós hversu mik-
ill munurinn er á þessum samningum og öðrum
samningum opinberra starfsmanna sem allir
áttu þó að byggjast á sömu forsendum.
Á launum á norrænt
kvennaþing í ágúst
Fjármálaráðuneytið hefur tekið jákvætt í
ósk BSRB um að konur innan bandalagsins,
sem starfa hjá ríki og ríkisstofnunum,
fái fjögurra daga leyfi á launum til að
sækja kvennaþingið í Osló, en það verður
haldið í byrjun ágúst í sumar.
Fjármálaráðuneytið hefur sent öllum öðrum
ráðuneytum bréf þar sem fram kemur að æski-
legt sé að verða við þessum óskum og a'ð
fjármálaráðuneytið samþykki það fyrir sitt
leyti.
Leiðrétting um orlof
Villa slæddist inn í frásögn um orlofs-
rétt félaga í SFR í síðasta tölublaði
Félagstíðinda, þar sem fjallað var um or-
lof þeirra sem hafa náð 18 ára starfsaldri
eða 50 ára aldri. Orlof þessara félaga
lengist um 24 klst. eða þrjá daga í sam-
tals 240 klst.
iAAAAAAAA/^AA/WV^AAAAA^^/^AAAAAA.