Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 26
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi,
afi og langafi,
Sturlaugur J. Þórðarson
vélvirki,
Skaftahlíð 33, Rvk.,
lést sunnudaginn 21. mars á Landspítala
við Hringbraut. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna. Kærar þakkir fær starfsfólk 11-G
og 11-E fyrir einstaka umhyggju og alúð í hans garð.
Hrönn Sturlaugsdóttir Jason Steinþórsson
Elín Sturlaugsdóttir Ásbjörn Ásbjörnsson
Sturlaugur J. Ásbjörnsson
Sara Jasonardóttir Garðar Guðjónsson
Sindri Egill Ásbjörnsson Ellen Björg Jónsdóttir
Rakel Ásbjörnsdóttir Snorri Guðjónsson
og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hallgrímur Þór Hallgrímsson
bryti,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
föstudaginn 26. mars sl.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
fimmtudaginn 8. apríl kl. 11.
Vegna samkomutakmarkana verða einungis nánustu
ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt
á slóðinni: youtube.com/watch?v=lYNX_x9VK5Q&ab_
channel=HafdalFramlei%C3%B0sla
Emil Birgir Hallgrímsson Edda Svavarsdóttir
Guðfinna Björk Hallgrímsd. Brynjólfur Hrafn Úlfarsson
Þóra Björg Hallgrímsdóttir Tjörvi Einarsson
Óðinn Páll, Inga Bjartey, Una Rán, Urður Ása
og Hekla Gná
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Birgir Örn Harðarson
KR-ingur og snillingur,
Kleifarseli 2, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á heimili sínu laugardaginn 20. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Ingibjörg Björnsdóttir
Björk Birgisdóttir Þorsteinn Guðmundsson
Björn Birgisson Hjalma Poulsen
Björg Birgisdóttir Bryndís Birgisdóttir
Berglind Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Nýja bókin mín er ekki komin í búðir, hún er bara í kössum enn þá. Ég er orðin eldri en ég var,“ segir Guðrún L á r a Á sgei r s dót t i r
skólasafnskennari glaðlega, þegar for-
vitnast er um nýjasta afrek hennar á
ritvellinum. Það er fjórða bindið af
endurminningum hennar: Á meðan ég
man – atburðir ævi minnar.
„Ég skrifaði hinar þrjár bækurnar
hverja fyrir sig á einu ári, þær komu
út 2015-16 og 17. Hélt stóra veislu í til-
efni 75 ára afmælisins, þá kom fyrsta
bindið út sem nær til 32 ára aldurs. Bók
númer tvö lýsir annasömustu árunum
mínum, hún endar 1989, þá komum við
Ágúst, maðurinn minn, heim frá Kaup-
mannahöfn eftir sex ára dvöl í Jónshúsi.
Þriðja bókin er um árin á Prestbakka í
Hrútafirði, nám í Háskólanum og f leira,
henni lýkur 2015 þegar ég var 75 ára.“
Tvær heimsreisur
Í nýja bindinu segir Guðrún frá lífi sínu
á hverju ári fyrir sig, 2016, 17, 18, 19 og
20. „Ég lauk ekki við bókina fyrr en 1.
febrúar 2021. Í innganginum er meðal
annars þessi tilvitnun í danska leik-
konu: „Ég á bara stutta endann af lífinu
eftir.“ Leikkonan er nokkru yngri en ég
en orð hennar get ég þeim mun betur
gert að mínum – nema náttúrlega ef
ég verð 117 ára, eins og sú elsta í heim-
inum, þá á ég 37 ár eftir!“ segir Guðrún
og hlær hjartanlega.
Ef einhver heldur að Guðrún hafi
verið tilbúin að taka því rólega þegar
hún varð 75 ára er sá á villigötum því
síðan hefur hún ferðast til fjarlægra
álfa, ein síns liðs. „Ég fór í tvær heims-
reisur, það var árin 2018 og 19. Skrifaði
um þær, upphaf lega bara fyrir mig en
síðan fékk ég þörf fyrir að segja fólki frá
því sem ég hefði verið að gera, því varð
nýja bókin til. Í henni eru 382 myndir,
margar úr ferðalögunum en líka dag-
lega lífinu, meðal annars úr félagsstarfi
og kórum.“
Forðast fín hótel
Guðrún kveðst hafa byrjað fyrri lang-
ferðina á f lugi til Mílanó og skellt sér
um borð í skip á leið til Suður-Amer-
íku. Þar hafi hún stoppað á sjö stöðum
áður en hún sté á land í Santos í Brasilíu
eftir þriggja vikna siglingu. „Ég heim-
sótti fjölskyldu í Curitiba sem ég hafði
kynnst á siglingu nokkrum árum fyrr.
Svo tók ég f lugið, fyrst til Perú, það
hafði verið draumur minn að koma á
slóðir Inka í Machu Picchu og það gerði
ég.“
Í Líma tóku á móti Guðrúnu tveir
bræður Lily frá Perú, sem býr í Mosfells-
bænum. „Ungu mennirnir voru með
nafnið mitt hárrétt skrifað á spjald og
sáu alveg um mig,“ lýsir hún. „Svo hélt
ég áfram og heimsótti frænkur, eina í
Hondúras og aðra í Washingtonríki,
þar var ég um jól og þangað kom María,
sonardóttir mín, sem var að vinna hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York.
Með henni fór ég til Seattle og Port-
land. Í Seattle fengum við stórt hús hjá
hjónum sem Sigrún systir hafði kynnst
í kortér í Hallgrímskirkju sumarið áður.
Ég vil ekki vera á fínum hótelum, held-
ur annað hvort á farfuglaheimilum eða
heima hjá fólki, sem mér finnst lang-
skemmtilegast. Svo elti ég Maríu til
New York og Lárus, sonur minn, kom
þangað til fundar við okkur.“
Guðrún kveðst hafa setið þing Sam-
einuðu þjóðanna í New York 1977 og
þótt ævintýri að koma inn í bygging-
una aftur. „Nú er komin stytta af Man-
dela í anddyrinu, en 1977 voru Suður-
Afríkumenn útilokaðir frá þinginu út
af apartheid, svo eitthvað færist til betri
vegar,“ bendir hún á.
Kynnir landið í leiðinni
Í seinni heimsreisunni sigldi Guðrún
í þrjár vikur um Kyrrahafið, frá San
Francisco til Nýja-Sjálands með við-
komu á Havaí og f leiri eyjum og segir
það líka hafa verið æðislega ferð.
„Maður kynnist svo mörgum þegar
maður er svona einn og ég tek gjarnan
með mér eitthvað smálegt, til dæmis
kort eftir Mússu frænku til að gauka að
fólki. Líbani sem býr í Bandaríkjunum
sagði við mig: „Þú hlýtur að geta farið
næstu ferð á kostnað íslenska ríkisins,
þú kynnir landið svo vel!“
Ekki kveðst Guðrún óttast neitt á
ferðum sínum. „Ég er aldrei hrædd,
treysti bara algerlega á Guð,“ segir hún.
„Ég var líka heppin að ljúka langferð-
unum áður en COVID-19 skall á og geta
notað tímann í einangrun heima til að
skrifa. En átti í smá erfiðleikum með
myndirnar. Í fyrri bækur reif ég myndir
úr albúmum, þær voru vel merktar og
í réttri röð, því ég á 120 albúm um líf
mitt. Nú varð ég að sækja myndefnið
í tölvuna og kíkja tíu sinnum á sumt,“
segir kjarnakonan Guðrún Lára. Hún
kveðst hlakka til páskanna með sínu
fólki. „Nú verð ég ekki í jólakúlu heldur
páskaeggi!“ gun@frettabladid.is
Nýtir stutta enda lífsins
Á meðan ég man, nefnast endurminningabækur Guðrúnar Láru Ásgeirsdóttur, eins og þeir
vita sem hafa lesið bækur númer eitt, tvö og þrjú. Nú er fjórða bókin komin úr prentun.
„Maður kynnist svo mörgum þegar maður er svona einn á ferð,“ segir Guðrún Lára
Ásgeirsdóttir skólasafnskennari og kveðst aldrei hrædd. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það hafði verið draumur minn
að koma á slóðir Inka í Machu
Picchu og það gerði ég.
Yndislegi ástkæri sonur okkar, bróðir,
mágur, barnabarn, frændi og vinur,
Ólafur Páll Jónsson
Orrahólum 7,
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans
laugardaginn 27. mars. Útförin fer fram
fimmtudaginn 8. apríl klukkan 13 frá
Fossvogskapellu. Í ljósi aðstæðna verða nánustu ástvinir
viðstaddir, streymt verður frá athöfninni og hægt er að
nálgast það á: mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/
Helene Pampichler Pálsdóttir
Jón Haukur Ólafsson
Linda Björk Jónsdóttir Sveinn Páll Sveinsson
Páll Pampichler
og aðrir ástvinir.
Hjartagullið okkar,
Emilía Þórunn Magnúsdóttir
Svenska vägen 10, Lund, Svíþjóð,
lést á heimili sínu 28. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Píeta samtökin.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórunn Bjarnadóttir Ómar Sigurvin Gunnarsson
Þ. Kolbrún Steinarsdóttir Magnús Örn Friðriksson
Aníta Bech
Styrmir Snær
Óðinn Orri
Hólmfríður Lillý
Lárus Pétur
1855 Íslendingum er leyfð frjáls verslun við þegna allra
þjóða.
1873 Hilmar Finsen er skipaður fyrsti landshöfðingi Ís-
lands.
1896 Ullarvinnsla hefst hjá Álafossi.
1936 Alþýðutryggingalög taka gildi.
1955 Aprílgabb birtist í Tímanum um væntanlegan fund
æðstu ráðamanna heims í Reykjavík.
1970 Richard Nixon bannar sígarettuauglýsingar í sjón-
varpi.
1976 Tölvufyrirtækið Apple er stofnað.
1981 Íslenska hljómsveitin Grýlurnar er stofnuð.
1998 Vefmiðillinn Vísir verður til.
2003 Íslenska kvikmyndin Fyrsti apríll er frumsýnd.
Merkisatburðir
1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT