Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 10
 Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör Lífsverks lífeyrissjóðs Engjateigi 9 – Reykjavík – aðalfundur þriðjudaginn 20. apríl kl. 17.00 Engjateigur 9 105 Reykjavík www.lífsverk.is Rafrænt stjórnarkjör 12. til 16. apríl Rafrænt stjórnarkjör fer fram á vef sjóðfélaga á www.lifsverk.is dagana 12. – 16. apríl. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal kjósa um tvö laus stjórnarsæti, karls og konu, til þriggja ára. Eva Hlín Dereksdóttir, núverandi varaformaður stjórnar, sóttist eftir endurkjöri og er hún sjálfkjörin í stjórn. Kjósa þarf um stjórnar- sæti karls. Í framboði eru Agnar Kofoed-Hansen, Gnýr Guðmundsson, Jóhann Þór Jóhannsson og Thomas Möller. Kynningar frambjóðenda eru á vefsvæði sjóðsins. Allir sjóðfélagar njóta kosningaréttar og á það einnig við um elli- og örorku- lífeyrisþega. Eru sjóðfélagar hvattir til að nýta kosningarétt sinn. Aðalfundur þriðjudaginn 20. apríl kl. 17.00 Aðalfundur sjóðsins verður þriðjudaginn 20. apríl kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn að Engjateigi 9, kjallara. Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá þátttöku með því að hafa samband við skrifstofu sjóðsins með tölvupósti á lifsverk@lifsverk.is. Hægt verður að fylgast með fundinum í beinu streymi. Ef nauðsynlegt reynist að fresta fundinum vegna samkomutakmarkana verður það auglýst á vefsvæði sjóðsins. 9,0% 8,0% 7,0% 6,0% 5,0% 4,0% 3,0% 2,0% 1,0% 0,0% 2016 2017 2018 2019 2020 10,0% Um Lífsverk lífeyrissjóð: Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða en allir geta greitt til séreignardeilda sjóðsins. Sérstaða sjóðsins er m.a. • Sjóðfélagalýðræði • Rafrænt stjórnarkjör • Góð réttindaávinnsla • Hagstæð sjóðfélagalán Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2020 var samtals 123,0 milljarðar kr. og hækkaði um 18,5 milljarða kr. á árinu. Hrein eign í samtryggingardeild var 100,1 milljarðar kr. og hækkaði um 14,1 milljarða kr. á árinu. Heildartryggingarfræðileg staða samtryggingardeildar var jákvæð um 1,2%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar er 5,1% sl. 5 ár og 5,0% sl. 10 ár. Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Samtryggingardeild 13,1% 9,3% Lífsverk 1 16,2% 12,3% Lífsverk 2 11,3% 7,6% Lífsverk 3 5,8% 2,3% Ávöxtun 2020: 5 ára meðaltal 10 ára meðaltal Hrein raunávöxtun – Samtryggingardeild AÐALFUNDUR Spoex, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga boða til aðalfundar á Zoom streymi fimmtudaginn 15. apríl næstkomandi kr 17:15-18:15 Hefðbundin dagskrá aðalfundar skv. lögum Spoex: ■ Skýrsla formanns ■ Stjórnarkjör Sjá nánar á www.spoex.is Syndsamlega góð kaka með engri fyrirhöfn! Áhugi Bolsonaro á sóttvörnum hefur aukist. Nær þrettán milljónir tilfella hafa nú greinst í Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY BRASILÍA Daglegur fjöldi látinna af völdum COVID-19 hefur aldrei verið hærri í Brasilíu. Á þriðju- daginn létust um 3.780 manns af völdum veirunnar og hafa alls 318 þúsund nú látist af völdum COVID- 19 þar í landi. Um átta prósent þjóð- arinnar hafa verið bólusett. Þá jókst atvinnuleysi í landinu í janúar í fyrsta skipti í fjóra mánuði og er nú komið yfir fjórtán prósent. Jair Bolsonaro sætir vaxandi gagnrýni vegna viðbragða ríkis- stjórnarinnar við veirunni. Sam- kvæmt skoðanakönnunum segja um 43 prósent íbúa Brasilíu að for- setinn beri ábyrgð á ástandinu. Bolsonaro hefur frá upphafi gert lítið úr veirunni sem hann hefur kallað „væga f lensu“. Hann hefur ítrekað talað gegn samkomutak- mörkunum, grímuskyldu og öðrum sóttvarnaaðgerðum. Hann virðist þó hafa skipt um skoðun og sagði fyrir skömmu að árið 2021 yrði „ár bólusetninga“ og daglegt líf í Bras- ilíu myndi bráðum komast aftur í eðlilegt horf. Einnig hefur borið á ólgu innan ríkisstjórnarinnar. Nýlega tók við nýr heilbrigðisráðherra í landinu, sjá fjórði síðan faraldurinn hófst. Á mánudag sauð upp úr þegar Bolsonaro rak Fernando Azevedo e Silva, varnarmálaráðherra lands- ins. Að sögn fjölmiðla í Brasilíu hafði ráðherrann sagt við Bolsonaro að her landsins hefði skyldur gagnvart fólkinu í landinu en væri ekki rekinn á vegum forsetans. Í kjölfarið sögðu y f irmenn hersins, f lughersins og sjóhersins upp störfum. Það er í fyrsta skipti í sögu landsins sem allir yfirmenn hersins segja af sér vegna deilna við forsetann. arnartomas@frettabladid.is Hitnar undir Bolsonaro Í Brasilíu er fjöldi látinna af völdum COVID-19 í hámarki. Forsetinn er í klípu því yfirmenn hersins sögðu af sér eftir brottrekstur varnarmálaráðherrans. Alls hafa 318 þúsund nú látist af völdum COVID-19 í Brasilíu frá því faraldurinn hófst í fyrra. Kirsuberjatré eru vorboðar í Japan. JAPAN Kirsuberjatrén í Japan blómstruðu fyrr í ár en frá því að formlegar athuganir á þeim hófust fyrir um 70 árum. Blómgun trjánna, sem eru vor- boðar í japanskri menningu, nær venjulega hápunkti í apríl en í ár náðu trén þessu viðmiði 26. mars.  Kirsuberjatré í Japan  hafa aldrei blómstrað svona snemma síðan veðurstofa landsins  hóf að skrásetja athuganir á þeim á sjötta áratugnum. „Við getum sagt að þetta sé lík- legast vegna áhrifa hnattrænnar hlýnunar,“ sagði Shunji Anbe, sér- fræðingur japönsku veðurstofunn- ar í viðtali við fréttastofu AP. Anbe segir kirsuberjatré vera viðkvæm fyrir breytingum á hita- stigi og geta því gefið dýrmæt upp- lýsingar fyrir rannsóknir á loftslags- breytingum. – atv Blómstra óvenju snemma með hækkandi hita Sérfræðingur segir að hnattræn hlýnun valdi því að kirsuberjatré í Japan blómstri fyrr en áður. 1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.