Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 6
Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að rétta upp hönd og taka þátt í umræðum • Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Námskeið hefjast: 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 21. júní 8.45-17.00 4 dagar í röð 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 9. ágúst 8.45-17.00 4 dagar í röð 10 til 12 ára 14. júní 9.00-13.00 átta dagar í röð 10 til 12 ára 4. ágúst 9.00-13.00 átta dagar í röð 13 til 15 ára 14. júní 13.30-17.00 átta dagar í röð 13 til 15 ára 4. ágúst 13.30-17.00 átta dagar í röð 16 til 19 ára 4. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 27. maí 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti Sumarnámskeið fyrir ungt fólk Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk Copyright © 2021 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Youth_Ad_031521 COVID -19 Með nýjum reglum á landamærum sem taka gildi í dag er öllum farþegum sem koma hingað til lands frá skilgreindum áhættu- svæðum skylt að dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi á milli fyrri og seinni sýnatöku. Enn er öllum farþegum skylt að fara í sýnatöku við komuna til landsins og í aðra sýnatöku fimm dögum síðar. Á milli sýnataka er farþegum skylt að vera í sóttkví. Þá skulu einnig allir farþegar sýna neikvætt PCR-vottorð áður en þeir stíga um borð í f lugvél eða skip á leið til landsins og einnig við kom- una, prófið má ekki verða eldra en 72 klukkustunda gamalt. Í dag er von á þremur vélum frá sk ilg reindum áhættusvæðum hingað til lands og segist Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður far- sóttarhúsa Rauða krossins, búast við hundruðum manna í farsóttar- hús. Frá því í febrúar á síðasta ári hefur verið rekið farsóttarhús á Rauðarárstíg í húsnæði Íslandshót- ela. Í dag var Fosshótel Reykjavík í Þórunnartúni tekið í notkun undir slíka starfsemi en það er einnig í eigu Íslandshótela. „Við sendum út verðfyrirspurnir til hótela ásamt fyrirspurnum um hversu mörg herbergi hótelin gætu útvegað,“ segir María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. María segir Íslandshótel hafa boðið lægsta kostnað við heildar- lausnina og uppfyllt kröfur Rauða krossins og almannavarna. „Við vorum að leita að rýmum þar sem ekki er í gangi önnur starf- semi og aðrir gestir og svo var litið á heildarkostnaðinn,“ segir María. „Þá er litið til kostnaðar við að setja upp þjónustuna, mönnun og reksturinn.“ Spurð um verðið sem náðist með samningi við Íslandshótel segir María það verulega undir markaðsverði. „Frá og með 11. apríl munu svo íbúar greiða tíu þúsund krónur fyrir nóttina og kostnaður hins opinbera er háður nýtingunni,“ útskýrir María. Með breyttum reglum mun fjöldi þeirra sem dveljast í farsóttarhúsi aukast og þar af leiðandi er nauð- synlegt að bæta við starfsfólki í húsin. Gylfi segir vel hafa gengið að manna lausar stöður. „Ég er að reyna að ráða þá 20-30 sem eftir standa en þeir verða von- andi ráðnir í dag eða á morgun,“ sagði Gylfi við Fréttablaðið í gær. Þá segir Gylfi að starfinu fylgi alltaf einhver áhætta en að öllu starfsfólki sé kynnt starfsemin vel, ekki sé hægt að lofa þeim bólu- setningu en þeir sem starfað hafa á Rauðarárstígnum og hann sjálfur hafa nú þegar verið bólusettir. Gylfi hefur staðið vaktina í far- sóttarhúsinu frá því að það var opnað fyrir rúmu ári síðan og segist hann ekki sjá fram á að að taka sér páskafrí í ár. „Ég tók mér ekki jólafrí og ekki páskafrí síðustu páska en það er bara þannig að þegar ríkisstjórnin segir að það verði að gera eitthvað þá bara gerir maður það.“ birnadrofn@frettabladid.is Hundruð sett á sóttvarnahótel Þrjár farþegaþotur koma til landsins í dag frá skilgreindum áhættusvæðum. Frá og með í dag þurfa allir sem koma frá þessum svæðum að dvelja í fimm daga á sóttvarnahóteli á milli fyrri og seinni sýnatöku. Fosshótel Reykjavík í Þórunnartúni verður tekið í notkun sem nýtt sóttvarnahótel í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við sendum út verðfyrirspurnir til hótela ásamt fyrirspurnum um hversu mörg herbergi hótelin gætu útvegað. María Heimis- dóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands SEYÐISFJÖRÐUR Byggðarráð Múla- þings vill að sérfræðingar ofan- f lóðavarna meti kostnað við gerð varanlegra varna við svæðið við Búðará á Seyðisfirði þar sem mikil aurflóð ollu stórtjóni í desember. Á fundi byggðarráðsins var lagt fram minnisblað frá Veðurstofu Íslands varðandi endurskoðað hættumat fyrir svæðið frá Búðará að Skuldalæk á Seyðisfirði. Sveitar- stjórinn sagði frá fundi með sér- fræðingum Veðurstofunnar, Eflu og fulltrúa Ofanf lóðasjóðs varðandi innihald minnisblaðsins. Hann gerði einnig grein fyrir matsgerðum vegna tjóns á sex húsum og íbúðum við Hafnargötu og fundi með full- trúa Ofanflóðasjóðs um matsgerð- irnar. Byggðarráð samþykkti síðan að óska eftir stuðningi Ofanflóða- sjóðs vegna fyrirhugaðra kaupa á húseignunum. – gar Ofanflóðasjóður kaupi sex eignir Múlaþing vill varanlegar ofanflóðvarnir fyrir svæðið við Búðará á Seyðisfirði. Frá Seyðisfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKÓLAMÁL Fundist hefur mygla í Korpuskóla og verður unnið að við gerðum þar um páskana. Tekin voru sýni í húsnæðinu og reyndust sjö þeirra innihalda myglu en ellefu ekki. Beðið er niðurstöðu úr sex til viðbótar. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Reykjavíkurborg. Talið var nauðsynlegt að bregðast við til að tryggja heilnæmi húsnæð- isins. Fram kemur að samráð hafi verið haft við starfsfólk og foreldra nemenda í Fossvogsskóla vegna framkvæmdanna en nýverið var ákveðið að flytja starfsemi skólans tímabundið í húsnæði Korpuskóla sem hefur staðið ónotað. Ekki er talið að náist að ljúka öllum viðgerðum áður en skólastarf hefst á ný eftir páskafrí og því verður sérstök áhersla lögð á að klára það sem snýr að íverurými nemenda og starfsfólks. – jþ Viðgerðir um páskana í Korpuskóla vegna myglu Korpuskóla er ætlað að hýsa starfsemi Fossvogsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ekki er talið að náist að ljúka viðgerðum áður en skólastarf hefst eftir páska. SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna- stofnun leggur til að veiða megi allt að 9.040 tonn af grásleppu fisk- veiðiárið 2020 til 2021. Það telst vera 74 prósenta aukning frá fyrra fisk- veiðiári. Fram kemur í tilkynningu að ráð- gjöfin byggi að mestu leyti á stofn- mælingu botnfiska í nýliðnum mars- mánuði. Reyndist hún sú hæsta frá upphafi mælinga árið 1985. Jafnframt kemur fram að stofnar hrognkelsa hér við land, það er rauð- maga og grásleppu, sveiflist milli ára sem endurspegli að hluta til óvissu í mælingunum. – jþ  Hafró leggur til stóraukna veiði Stofnmæling var sú hæsta frá 1985. 1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.