Fréttablaðið - 08.04.2021, Side 4
Og þá er spítalinn
ekki samkeppnis-
hæfur um sérhæfða vinnu-
aflið.
Nanna Briem,
forstöðumaður
geðþjónustu
Landspítalans
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR.
• 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• 570 NM TOG
• HÁTT OG LÁGT DRIF
• RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN
• HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU
• BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI
• RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
• FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• BLINDHORNSVÖRN
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
SKÓLAMÁL „Sumir strákar hafa
áhuga á fótbolta eða handbolta en
aðrir að prjóna en áhugahvötin er
kveikjan,“ segir Eyrún Halla Skúla-
dóttir, skólastjóri Glerárskóla, en
skólinn fékk næst hæsta styrkinn
frá Sprotasjóði, 2,9 milljónir,
Sjóðurinn styður við þróun og
nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn-
og framhaldsskólum í samræmi við
stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá
viðkomandi skólastiga.
Ve r k e f n i s k ó l a n s , S t r á k-
ar, lesum saman! – að ef la
læsi drengja út frá áhugahvöt þeirra,
verður unnið með Naustaskóla, en
Eyrún segir að skólarnir á Akureyri
vinni vel saman.
Eyrún segir um að ræða framhald
þróunarverkefnis frá í vetur sem
heitir Læsi fyrir lífið.
„Við erum að útvíkka okkur
aðeins og vinna út frá áhugahvöt
nemenda. Leggja áherslu á að nýta
öll þau verkfæri sem upplýsinga-
tæknin getur boðið upp á og stuðla
þannig að auknu læsi hjá drengjum,
og stúlkum auðvitað líka, en aðal-
punkturinn er Strákar lesum saman
en auðvitað nýtist þetta fyrir alla
krakka.“ segir Eyrún.
Strandlínurannsókn nemenda
í Víkurfjöru fékk 1,2 milljónir úr
sjóðnum. Elín Einarsdóttir skóla-
stjóri segir að allir nemendur muni
taka þátt eins mikið og þeir geta.
Verkefnið gengur út á að rann-
saka strandlínu- og fjörubreytingar
í Víkurfjöru á næstu árum.
Nemendur í 5. til 10. bekk mæla
upp sex snið í fjörunni, mæla korna-
stærðir á sandinum og taka myndir
af formgerðunum í fjörunni.
Nemendur í 1. til 4. bekk munu
síðan stunda sjálfstæðar rann-
sóknir á sandinum í Víkurfjöru,
dýralífinu sem þar er að finna og
rannsaka rusl sem skolast þar á
land. „Ströndin hér er sérstök og
skemmtileg og hún hefur lítið verið
mæld,“ segir Elín.
Markmiðin með rannsóknar-
verkefninu eru að nemendur kynn-
ist því hvernig sé staðið að vísinda-
legum rannsóknum og fái að taka
þátt í þeim, svo sem mælingum,
söfnun upplýsinga og úrvinnslu
gagna, en slík reynsla mun vonandi
nýtast þeim vel í framtíðinni.
Jóhannes Marteinn Jóhannesson,
jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi,
stýrir verkefninu í samstarfi við
Kolbrúnu Hjörleifsdóttur verkefna-
stjóra Geo-skóla Víkurskóla.
Fyrir utan nemendurna munu
flestallir starfsmenn skólans koma
að verkefninu með einum eða
öðrum hætti.
benediktboas@frettabladid.is
Vísindaferð í Víkurfjöru styrkt
Leikur að læsi með kubbum, lagasmíðar, textagerð, vísindaferð í Víkurfjöru og efling læsis drengja út frá
áhugasviði, eru meðal 42 verkefna sem fá styrk úr Sprotasjóði sem styður þróun og nýjungar í skólastarfi.
Í hverri vettvangsferð í Víkurfjöru verður kornastærð á sandinum greind og gps-mælingar gerðar. MYND/VÍKURSKÓLI
Gögnin úr Víkurfjöru nýtast í að
meta hvort fjaran sé að hörfa eða
byggjast út. MYND/VÍKURSKÓLI
Skiptu 54 milljónum á 42 verkefni
Heildarupphæð styrkjanna
er rúmlega 54 milljónir króna.
Áherslur sjóðsins voru á lær-
dómssamfélög skóla og drengi
og lestur. „Umsóknir í Sprotasjóð
bera vitni um nýsköpun, sam-
vinnu og grósku sem einkennir
íslenska skóla.
Þar er gríðarlegur metnaður og
vilji til góðra verka sem mikil-
vægt er að styðja við,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra.
Alls bárust 66 umsóknir frá
grunnskólastiginu, 10 umsóknir
frá leikskólastiginu, 16 umsóknir
frá framhaldsskólastiginu og 13
umsóknir þvert á skólastig. Akur-
skóli í Reykjanesbæ fékk hæsta
styrkinn, eða þrjár milljónir.
VINNUMARKAÐUR Tólf og hálft pró-
sent félagsráðgjafa sem starfa á
Landspítalanum hafa aðeins starfað
við spítalann í eitt ár eða skemur.
Þetta kemur fram í svari Nönnu
Briem, forstöðumanns geðþjónustu
Landspítalans, við fyrirspurn Frétta-
blaðsins.
27,1 prósent starfandi félagsráð-
gjafa við spítalann hafa starfað þar
í 2 til 3 ár og tæplega 17 prósent í 4 til
9 ár. Þá hafa um 44 prósent starfað
á spítalanum í 10 ár eða lengur. Alls
starfa 50 félagsráðgjafar á spítal-
anum í 43 stöðugildum.
Nanna segir starfsmannaveltu
á félagsráðgjöfum hafa minnkað
umtalsvert undanfarna 12 mánuði
og hún sé nú um 14,5 prósent, sem
hún segir lægra en á öðrum deildum
spítalans en svipað og hjá spítal-
anum í heild.
Nú eru lausar fjórar stöður félags-
ráðgjafa við spítalann og segir
Nanna að samkvæmt niðurstöðum
mats sem lagt var fyrir starfsfólk
spítalans hafi starfsánægja meðal
stéttarinnar aukist um 0,34 stig á
milli ára, „sem þýðir að starfsánægja
hópsins sé nokkuð góð.“
Byrjunarlaun félagsráðgjafa
við Landspítalann eru rúmar 520
þúsund krónur en Nanna segir að
sá þáttur sem mældist áberandi
lægstur í umræddu mati sé laun, „og
endurspeglar það viðhorf hópsins
að hann er óánægður með launin á
spítalanum,“ segir hún.
Nanna segir að með þjálfun og
starfsreynslu sem félagsráðgjafar fái
á Landspítalanum sé auðvelt fyrir þá
að fá önnur störf. „Og þá er spítalinn
ekki samkeppnishæfur um sérhæfða
vinnuaflið,“ segir hún. – bdj
Félagsráðgjafar sagðir óánægðir með laun sín á Landspítalanum
SKIPUL AGSMÁL Skipulagsnefnd
Hvolsvallar áréttaði í vikunni að
prentvilla hafi verið í greinargerð
um skóla- og íþróttasvæði.
Í greinargerðinni kom fram að
stærð fjölnota íþróttahúss verði allt
að 3.500 fermetrar. Rétt er að húsið
getur orðið allt að 9.500 fermetrar,
eða sex þúsund fermetrum stærra.
Þess má geta að skrifstofubygging
fyrir Alþingi mun telja sex þúsund
fermetra og glerið í Smáralind var
um tvö þúsund fermetrar. Það var
þrefalt þannig að það var yfirleitt
sagt vera sex þúsund fermetrar. – bb
Sex þúsund
fermetra villa
Það getur munað um sex þúsund
fermetra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SEYÐISFJÖRÐUR Umhverf is- og
framkvæmdaráð Múlaþings sam-
þykkti á fundi gærdagsins að hefja
hugmyndasamkeppni í samstarfi
við Félag íslenskra landslagsarki-
tekta um útsýnispall við Bjólf.
Kostnaðurinn við hugmynda-
samkeppnina greiðist af fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða og
leggur sveitarfélagið fram vinnu við
verkefnið.
Bjólfur, sem er 1.085 metrar að
hæð, er við Seyðisfjörð en í sex
hundruð metra hæð er að finna
varnargarða sem hægt er að komast
að á fjórhjóladrifnum bílum. – kpt
Vilja útsýnispall
upp á Bjólfinum
8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð