Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 16
Á skömmum tíma hefur mikil breyt- ing átt sér stað á fatavali mínu. Ég vil ekki sjá þröng föt í dag! Sjöfn Þórðardóttir sjofn@ torg.is Lína er þrítug að aldri, lærður förðunarfræðingur, stílisti og einkaþjálfari og kann vel að flétta þessum fræðum saman með góðri útkomu. Útgeislun hennar smitar frá sér og hún kann svo sannarlega að laða að sér fólk með sinni fal- legu framkomu. Einnig rekur hún sitt eigið fyrirtæki og nýtur sín á þeim vettvangi. Skósjúk eins og amma var „Ég vinn við samfélagsmiðla og rek eigið fyrirtæki. Ég er að hanna og selja æfingafatnað og hversdags- fatnað undir vörumerkinu Define The Line Sport. Ég er einnig að læra viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál og samfélagsmiðla.“ Listrænir hæfileikar Línu Birgittu skína í gegnum hönnun hennar og koma sér vel í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur, meðal ann- ars í vinnu hennar við samfélags- miðla. Lína Birgitta spáir mikið í allt sem tengist tísku á einn eða annan hátt. „Mitt helsta áhugamál er að ferðast og allt sem tengist tísku. Ég hef lengi haft áhuga á fötum, skóm og fylgihlutum en ætli mitt helsta áhugamál í þeim efnum séu ekki skór í dag. Það má segja að ég sé skó-sjúk eins og amma mín var.“ Vill ekki sjá þröng föt í dag Lína segist ávallt hafa haft skoðun á því hvernig fötum hún vilji klæðast. „Það má segja að ég hafi alltaf haft skoðun á þeim fötum sem ég hef viljað vera í. En það hefur mikil breyting átt sér stað á fatavali mínu á skömmum tíma. Ég vil ekki sjá þröng föt í dag!“ Hvernig myndir þú lýsa fatastíl þínum? „Afslappaður, þægilegur og töff. Mér finnst mjög mikilvægt að klæðast því sem manni finnst þægilegt og fílar sig í, annars ber maður sig illa.“ Lína Birgitta elskar að vera í víðu að ofan og þrengra að neðan. „Ég elska „halter-neck“ snið á bolum og skyrtum, það fer mér extra vel.“ Dolfallinn aðdáandi Louis Vuitton og Victoriu Beckham Þegar Lína Birgitta er spurð hvort hún eigi sína uppáhalds flík í dag stendur ekki á svari. „Í augnablikinu er það nýjasta peysan frá Define The Line Sport. Töffaralegur og afslappaður stíll Línu Birgittu Lína Birgitta fílar sig vel í víðu að ofan og þröngu að neðan. Hér í víðri, þægi- legri peysu sem nýtur sín vel við þröngar buxur. Hún er hrifin af hvers kyns höfuðbúnaði og barðahatturinn klæðir hana vel. Fjær sést hvað töffaralegur og afslapp- aður íþróttastíll klæðir Línu Birgittu vel. Hún klæðist kósí fötum, hvítum striga- skóm og með derhúfu sem toppar útlitið. MYNDIR/STEFÁN JOHN TURNER Lína Birgitta vill að sér líði vel í fatnaðinum og að hann þrengi ekki að en um leið sé hann smart. Hún er hrifin af fylgi- hlutum og hér toppa fylgihlut- ir heildarútlitið, sólgleraugun og veskið frá Louis Vuitton setja punktinn yfir i-ið. Gallabuxur og strigaskór koma sterkt inn hjá Línu Birg- ittu og víðar opnar kápur undirstrika frelsið. V-hálsmál gerir mikið fyrir stílinn og hálsmenið nýtur sín vel. Kasmírbrún kápan á vel við ljósa og dökka liti. Lína Birgitta Sigurðardóttir hefur vakið mikla athygli fyrir fallegan og smekklegan klæða- burð sinn og er vinsæl í hlutverki sínu sem áhrifavaldur. Hún er bæði kósí og mjög töff. Síðan eru það sneakers-skórnir mínir frá Alexander McQueen og Dolce&Gabbana, þeir eru geggjaðir við allt.“ Áttu þinn uppáhalds hönnuð? „Ég er dolfallinn Louis Vuitton aðdáandi og lít mikið upp til Victor iu Beckham.“ Þau tískuvörumerki sem heilla Línu Birgittu mest eru Louis Vuitton, Alexander McQueen og Balenciaga. Heillast mest af hvítum striga- skóm með þykkum botni Þegar kemur að litavali, fylgir þú tískustraumunum hverju sinni eða áttu þér þína uppáhalds liti sem þér finnst klæða þig best? „Ég er mjög beisik þegar kemur að litavali. Ég elska svartan, gráan, hvítan og brúnan. Þessir litir eru alltaf beisik og maður getur poppað þá upp með áberandi fylgihlutum í lit.“ Hvernig myndir þú lýsa skótísk- unni sem þú heillast helst af? „Hvítir strigaskór með þykkum/ grófum botni. Ég fæ ekki nóg af þeim.“ Þeir fylgihlutir sem Línu Birgittu finnst vera ómissandi í dag eru fallegt veski, góður trefill og sól- gleraugu. Hún er dugleg að poppa klæðnað sinn upp og klára heild- arútlitið með þessum fylgihlutum og sólgleraugun gera mikið og setja punktinn yfir i-ið. Þegar kemur að því að klæða sig finnst Línu Birgittu mikilvægt að hafa það í huga að það eru engar reglur. „Ef þig langar að klæðast ein- hverju, gerðu það!“ 4 kynningarblað A L LT 8. apríl 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.