Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 13
ALLT
K Y N N I NG A R B L A Ð
FIMMTUDAGUR 8. apríl 2021
Freyja Eilíf Draumland, myndlistar- og spákona, býður fylgjendum sínum á Instagram upp á ókeypis spádóma í næstum því beinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Listamenn eru í raun spámenn
Freyja Eilíf Draumland hefur starfað sem myndlistarkona undanfarin ár en hún stofnaði
Skynlistasafnið árið 2019. Freyja Eilíf hefur sótt námskeið í heilun og skyggni og á Skyn-
listasafninu blandar hún samtímalistsköpun saman við yfirnáttúrulegar athafnir. 2
Fólk nýtur útivistar í vetrarfötum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands var veturinn
2020-2021 tiltölulega hlýr og þurr,
og var óvenju snjólétt, sérstaklega
suðvestanlands. Meðalhitinn í
Reykjavík var tæplega einni gráðu
hærri en meðalhiti sömu mánaða
síðustu þriggja áratuga.
Alhvítir dagar þessa fjóra
mánuði í Reykjavík voru ekki
nema níu sem er 38 dögum færra
en meðaltalið frá 1991-2020. Það
er því ekki að undra að margir hafi
velt því fyrir sér hvort veturinn
hafi hreinlega gleymt að mæta á
suðvesturhorn landsins að þessu
sinni. Fólk fylltist jafnvel bjart-
sýni og setti vetrarfötin í geymslu
og dró fram léttari yfirhafnir því
vorið var mætt óvenju snemma.
Páskahretið mætt
En páskahretið er mætt, síðustu
daga hefur snjóað í borginni og
því skynsamlegt að draga aftur
fram vetrarfötin og njóta þessara
síðustu daga vetrar en þeim er
spáð köldum þessa vikuna um allt
land.
Þrátt fyrir að sumardagurinn
fyrsti komi eftir tvær vikur er lík-
legt að það sé ögn lengra í sumarið.
Það er að segja, daga þar sem dugar
að ganga um í léttum sumarfötum.
Það getur verið freistandi að pakka
vetrarúlpunni niður og skipta
henni út fyrir léttan jakka þegar
komið er fram í apríl. En það er
um að gera, úr því að snjórinn og
frostið hafa heilsað höfuðborgar-
búum, að gera það besta úr því og
njóta síðustu daga vetrarins og
birtunnar frá snjónum í hlýjum
vetrarfatnaði. Sumarið kemur von-
andi áður en langt um líður.
sandragudrun@frettabladid.is
Snjóléttur vetur