Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 6
Tímapantanir á opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
Fjárveitingar á Filippseyjum
Íbúi í Manilla, höfuðborg Filippseyja, ljósmyndaður eftir að hafa þegið fjárstyrk frá ríkinu. Atvinnulausir íbúar Manilla eiga rétt á styrk upp á
1.000 filippseyska pesóa sem jafngilda um 2.600 íslenskum krónum. Strangar sóttvarnaaðgerðir standa yfir á Filippseyjum, en þar hafa 813 þús-
und greinst með COVID-19. Mannréttindasamtök segja að lögreglan þar í landi beiti líkamlegu of beldi gegn sóttvarnabrotum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
TAÍLAND Phra Ajarn Manas, 46 ára
gömlum munki frá Taílandi, var
bjargað í gær eftir að hafa verið
lokaður inni í helli í fjóra daga. BBC
greinir frá.
Manas fór inn í hellinn síðast-
liðinn laugardag til að stunda hug-
leiðslu en daginn eftir gekk stormur
með miklum rigningum yfir svæðið
sem varð til þess að vatnsmagn í
hellinum jókst og útgönguleiðin
lokaðist.
Sautján björgunarsveitarmenn
köfuðu inn í hellinn þar sem þeir
fundu Manas og komu honum út úr
hellinum. Hann var við ágæta heilsu
þrátt fyrir að hafa þurft að kafa tólf
metra leið út úr hellinum og fékk
hann aðhlynningu í sjúkrabíl.
Málið minnir óneitanlega á það
þegar tólf drengir og þjálfari þeirra
lokuðust inni í helli í Taílandi í níu
daga árið 2018. – bdj
Var fastur inni í
helli í fjóra daga
Munkinnn sakaði ekki eftir dvölina
í hellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
DÚBAÍ Þoka sem lagðist yfir Dúbaí
í Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum olli 28 bíla árekstri í gær-
morgun. Ein manneskja slasaðist en
búið var að vara við erfiðum veður-
skilyrðum á Emirates veginum sem
tengir Abú Dabí og Dúbaí.
Áreksturinn hófst með tveimur
bílum en slæm veðurskilyrði gerðu
það að verkum að næstu bílar sáu
ekki áreksturinn í tæka tíð til að
geta stansað. Yfirmaður umferðar-
öryggismála í Dúbaí, Saif Muhair
Al Mazroui, greindi frá því að 28
bílar hefðu orðið fyrir skemmdum
í árekstrinum og að ein kona væri
slösuð en þó ekki alvarlega. – kpt
Þoka olli fjölda-
árekstri í Dúbaí
Slæmt veður olli árekstri 28 bíla í
Dúbaí í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SAMFÉLAG Að setja saman Billy-
hillu eða Ektorp-sófa getur verið
skemmtilegt púsluspil fyrir suma
en andleg þrekraun fyrir aðra.
Samk væmt ný r ri g reining u
breska miðilsins Houshold Quotes
eiga Íslendingar langerfiðast með
að setja saman IKEA-húsgögn og
láta pirring sinn í ljós á samfélags-
miðlum.
Greiningin var gerð með því að
skoða orðalag streitu á samfélags-
miðlapóstum merktum IKEA í
hverju landi. 64 prósent íslenskra
pósta innihéldu orðalag sem bentu
til streitu.
Í öðru sæti lentu Ísraelsmenn
með 50 prósent en f lestar þjóðir
voru með á bilinu 20 til 30 prósent
stress. Í Svíþjóð, heimalandi IKEA,
mældist tæplega 38 prósenta stress
en lægst mældist það í Suður-Kóreu,
aðeins tæplega 8 prósent.
Greiningin náði ekki til þeirra
landa þar sem engin IKEA-búð er
til staðar. Einnig voru Bandaríkin
greind eftir fylkjum. Hafnaði Miss-
issippi efst á stresskvarðanum með
tæplega 49 prósent en Kansasbúar
voru rólegastir með 24.
Karlar skrifa almennt mun meira
um IKEA á samfélagsmiðlum en
konur og því eru flestir gremjupóst-
arnir frá þeim. Er konur pósta um
IKEA er stresshlutfallið hins vegar
ögn hærra en karla, eða 2 prósentu-
stig.
Sófar eru þau húsgögn sem fólk
sýndi mestu stressviðbrögðin við að
setja saman. Rétt rúmlega helming-
ur lét gremju sína í ljós á samfélags-
miðlum við að setja saman sófa.
Ekki langt á eftir eru stórir stofu-
skápar, náttborð og vöggur. Auð-
veldara virðist að setja saman litla
skápa, hægindastóla og skrif borð.
Þrátt fyrir að Íslendingar sýni
gremju sína heitast allra á sam-
félagsmiðlum má segja að þeir séu
IKEA-sjúkir. Ísland var eitt af 10
fyrstu löndunum sem húsgagna-
risinn opnaði verslun í, árið 1981 en
þá sem litla deild innan Hagkaupa.
Fljótlega f lutti IKEA í Hús versl-
unarinnar þar sem búðin var allt til
ársins 1994 þegar opnað var í Holta-
görðum í 9 þúsund fermetra rými.
Árið 2006 var núverandi húsnæði
reist, tæplega 21 þúsund fermetrar
að stærð, með tveimur veitingastöð-
um, bakaríi og matarbúð. Verslunin
er í eigu félagsins Hofs sem rekur
einnig IKEA-verslanir í Eistlandi,
Lettlandi og Litháen. Var hagnaður
af íslensku versluninni 210 milljónir
króna á síðasta ári.
kristinnhaukur@frettabladid.is
IKEA-húsgögn virðast
flókin fyrir Íslendinga
Samkvæmt greiningu sýna Íslendingar mestu streituviðbrögðin á samfélags-
miðlum við það að setja saman IKEA-húsgögn. Flestir gremjupóstar koma frá
körlum. Þrátt fyrir þetta hefur IKEA vaxið hratt á Íslandi undanfarna áratugi.
Að setja saman IKEA-húsgögn er misróandi fyrir fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Mikið stress kom fram
við samsetningu sófa en
minna við skrifborð.
BRASILÍA Um 4.200 manns létust
af völdum COVID-19 í Brasilíu á
þriðjudaginn. Daglegur fjöldi lát-
inna af völdum veirunnar færist
enn í aukana og hafa nú að minnsta
kosti 337 þúsund látist af völdum
veirunnar þar í landi.
Einungis í Bandaríkjunum er
heildarfjöldi látinna hærri. Jair
Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir að
aðgerðir í landinu verði ekki hertar.
„Það verður ekkert útgöngubann
um land allt,“ sagði Bolsonaro.
„Herinn okkar mun ekki fara á göt-
urnar til að halda fólki heima hjá
sér. Frelsið er ómetanlegt.“ – atv
Rúmlega fjögur
þúsund létust á
einum degi
Jair Bolsonaro,
forseti Brasilíu.
8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð