Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 26
Sólveig Matthildur, Laufey Soffía og Margrét Rósa í Kælunni miklu völdu föstudaginn langa til þess að senda frá sér smáskífu og myndband með laginu Sólstöður, sem er fyrsta lagið sem frá þeim kemur síðan þriðja platan þeirra, Nótt eftir nótt, kom út 2018. Þær lýsa laginu sem óði til dimm- ustu nætur ársins. „Þegar nornir kveða upp vetraranda í frosinni víðáttu Íslands á stysta degi ársins. Lagið táknar styrk þríeykisins, Kæl- unnar miklu í sinni sönnustu mynd, knúnu áfram af kröftugri og hrárri náttúrunni.“ Persónuna, eða hugmynd þeirra um Kæluna miklu, segja þær bæði lausbyggða á Kælu Tove Jansson í sögunum um múmínálfana og íslensku landslagi í mannsmynd. Tækifæri í faraldrinum Þótt nokkuð sé liðið frá því að Nótt eftir nótt kom út, sem skilaði Kæl- unni tilnefningu til Íslensku tón- listarverðlaunanna sem bestu plötu þess árs hafa stelpurnar síður en svo setið auðum höndum. „Við höfum ferðast með síðustu plötu víða um heiminn frá því við gáfum hana út og spiluðum meðal annars með hljómsveitunum The Cure, Pixies og Deftones og opn- uðum fyrir Placebo á stórtónleikum í London,“ segir Sólveig. „Við fórum á tónleikaferðalög í Bandaríkjunum og um Evrópu með frönsku hljómsveitinni Alcest rétt áður en COVID skall á. Þá vorum við bókaðar á ýmsar hátíðir eins og Roskilde Festival og Psycho Las Vegas sem var því miður frestað þannig að við notuðum því tímann til að hefja upptökur á fjórðu plöt- unni með Barða Jóhannssyni úr Bang Gang.“ Fegurðin í drunganum Kælan tók Sólstöður upp í Reykja- vík ásamt Barða, en stelpurnar segjast aðspurðar ekki telja að lagið marki sérstaka stefnubreytingu hjá þeim þótt nokkur ár séu liðin milli platna. „Við höfum einhvern veginn aldrei fylgt einni ákveðinni stefnu og frekar fylgt því sem við viljum á þeim tíma sem við erum að semja tónlist. Þannig eru allar þær plötur sem við höfum gefið út alveg mis- munandi og gætu allar f lokkast til sitthverrar tónlistarstefnunnar.“ Laufey bendir þó á að væntanleg plata verði kannski stærri. „Því við höfum lært svo ótrúlega mikið á síðustu árum. Við erum að notast við f leiri hljóðfæri og á sama tíma höfum við svo frábært aðgengi að öllu því sem Barði hefur upp á að bjóða.“ Þegar samstarfið við Barða berst í tal segja þær það búið að vera alveg fullkomið. „Við höfum unnið saman núna stanslaust í nærri heilt ár og varla hitt aðra en hvert annað út af COVID, en það er bara búið að ganga eins og í sögu. Dularfullar systur Við erum öll ótrúlega stolt af þessu verki sem við höfum skapað saman og það er mjög gaman að vinna með fólki sem hefur sama smekk á tónlist og fagurfræði og þar passa Kælan mikla og Barði mjög vel saman. Enda sjáum við öll það fal- lega í því drungalega.“ Kælan sveiflar sverðum í myrkrinu Kælan mikla kveður sér hljóðs með nýju lagi sem er fyrirboði þess sem koma skal á nýrri breiðskífu sem kemur í kjölfar Nótt eftir nótt frá 2018. Margrét, Sólveig og Laufey segja lagið nornalegan óð til dimmustu nætur ársins. Sólveig Matt- hildur, Laufey Soffía og Mar- grét Rósa minna helst á hina ógurlegu hringvoma úr Hringadrótt- inssögu þegar þær sveima í kuldanum með merkingar- þrungin sverð á lofti í mynd- bandinu við Sólstöður. MYND/POLA MARIA Sólveig, Laufey og Margrét í Kælunni miklu rjúfa nokkurra missera þögn með smáskífunni Sólstöður. MYND/YUME NO YUKARI Fyrsta mynd- skreytingin af þeim sex sem Førtifem gerðu fyrir Kæluna prýðir nýju smáskífuna. MYND/FORTIFEM Kælan leggst yfir heiminn Margrét, Sólveig og Laufey stofn- uðu Kæluna miklu 2013 eftir sigur á ljóðaslammi Borgarbóka- safnsins. Síðan þá hefur hljóm- sveitin fikrað sig frá ljóðrænu gjörningapönki yfir í fínpússað drungapopp. Kælan mikla hefur frá upphafi fetað ótroðnar slóðir og unnið hart á eigin forsendum að því að koma sér á framfæri í útlöndum og telst nú með þekktustu drungabylgju hljómsveita heims og hafa komið fram á heims- þekktum stöðum eins og Royal Festival Hall í London, Rose Bowl Arena í Los Angeles og Hyde Park í London. Þær hafa meðal annars fangað athygli þungavigtarfólks á borð við tónlistarmanninn Robert Smith, úr The Cure, og leik- stjórann Lukas Moodysson sem notaði tónlist þeirra í þáttaröð sinni Gösta á HBO. Þá hefur þeim verið boðið að spila á tónlistar- hátíðunum Roskilde Festival, Psycho Las Vegas og Pasadena Daydream ásamt The Cure og The Pixies. Seiðmögnuð dulúð svífur yfir myndbandinu við Sólstöður, svo ekki sé fastar að orði kveðið og Kælurnar segja vinnuna við það hafa verið magnaða. Vefurinn post-punk.com fer fögrum orðum um myndbandið þar sem það er sagt bæði fallegt og áhrifaríkt og að það feli í sér fögur fyrirheit um það sem koma skal. Þá segir að í myndbandinu bregði fyrir heillandi myndum af dularfullu systrunum Laufeyju, Sólveigu og Margréti sveif landi sverðum, kal- eikum og fleiri dularfullum táknum í tignarlegu landslagi heimalands þeirra. Myrkar tilfinningar „Þetta tónlistarmyndband var alveg magnað ferli. Við unnum mikið í gerð handritsins og lögðum mikla áherslu á myndlíkingar við náttúru- öflin,“ segja þær og bæta við að þær hafi einnig sótt tákn úr tarot-spilum til þess að ná fram fjölbreyttum senum sem öðluðust þannig um leið dýpri merkingu. „Það var líka mjög gaman að taka myndbandið upp. Við keyrðum með Polu Mariu, sem leikstýrði og tók myndbandið upp, og kærust- unni hennar, Ester Borg, til Ólafs- víkur þar sem við höfðum aðgang að húsi yfir helgi. Það var fullt tungl og mikið óveð- ur og dagsbirtan lítil sem engin en það er einmitt fullkomið fyrir til- finningarnar sem við viljum koma á framfæri.“ Kælan dularfulla Þegar kom að myndskreytingu smá- skífunnar segjast þær hafa fengið til liðs við sig hið goðsagnakennda franska teikniteymi Førtifem sem dregur fram Kæluna miklu, per- sónu sem hljómsveitin hefur skapað í sínum eigin dularfulla og kalda heimi. „Við eignuðumst ótrúlega góða vini á tónleikaferðalagi okkar með Alcest í byrjun árs 2020. Ferðalagið stóð í fimm vikur og við fengum að kynnast öllum þeim sem tengjast hljómsveitinni. Þar á meðal teikni- fyrirtækinu Førtifem. Þau hafa unnið með Alcest í mörg ár og einn- ig hljómsveitum eins og Ramm- stein, Gojira og Slipknot.“ Þær segjast hafa verið mjög hrifn- ar af verkum Førtifem og hafi langað mjög til þess að vinna með þeim, sem hafi verið auðsótt þar sem þau hlusti á tónlist Kælunnar og hafi því verið til í samstarf. „Við sendum þeim leiðbeiningar um hvað við vildum að þau myndu teikna fyrir okkur,“ segir Margrét og bætir við að þegar upp var staðið hafi teikningarnar orðið sex talsins. „Þetta er bara fyrsta brotið af því sem við eigum eftir að sýna.“ Smáskífan með Sólstöðum er aðgengileg á helstu streymisveitum og hana má meðal annars sækja á Bandcamp og Apple Music. toti@frettabladid.is 8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.