Fréttablaðið - 08.04.2021, Qupperneq 16
Á skömmum tíma
hefur mikil breyt-
ing átt sér stað á fatavali
mínu. Ég vil ekki sjá
þröng föt í dag!
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
torg.is
Lína er þrítug að aldri, lærður
förðunarfræðingur, stílisti og
einkaþjálfari og kann vel að flétta
þessum fræðum saman með góðri
útkomu. Útgeislun hennar smitar
frá sér og hún kann svo sannarlega
að laða að sér fólk með sinni fal-
legu framkomu. Einnig rekur hún
sitt eigið fyrirtæki og nýtur sín á
þeim vettvangi.
Skósjúk eins og amma var
„Ég vinn við samfélagsmiðla og rek
eigið fyrirtæki. Ég er að hanna og
selja æfingafatnað og hversdags-
fatnað undir vörumerkinu Define
The Line Sport. Ég er einnig að
læra viðskiptafræði með áherslu á
markaðsmál og samfélagsmiðla.“
Listrænir hæfileikar Línu Birgittu
skína í gegnum hönnun hennar
og koma sér vel í öllu því sem hún
tekur sér fyrir hendur, meðal ann-
ars í vinnu hennar við samfélags-
miðla. Lína Birgitta spáir mikið í
allt sem tengist tísku á einn eða
annan hátt.
„Mitt helsta áhugamál er að
ferðast og allt sem tengist tísku. Ég
hef lengi haft áhuga á fötum, skóm
og fylgihlutum en ætli mitt helsta
áhugamál í þeim efnum séu ekki
skór í dag. Það má segja að ég sé
skó-sjúk eins og amma mín var.“
Vill ekki sjá þröng föt í dag
Lína segist ávallt hafa haft skoðun á
því hvernig fötum hún vilji klæðast.
„Það má segja að ég hafi alltaf haft
skoðun á þeim fötum sem ég hef
viljað vera í. En það hefur mikil
breyting átt sér stað á fatavali mínu
á skömmum tíma. Ég vil ekki sjá
þröng föt í dag!“
Hvernig myndir þú lýsa fatastíl
þínum?
„Afslappaður, þægilegur og
töff. Mér finnst mjög mikilvægt
að klæðast því sem manni finnst
þægilegt og fílar sig í, annars ber
maður sig illa.“
Lína Birgitta elskar að vera í víðu
að ofan og þrengra að neðan.
„Ég elska „halter-neck“ snið á
bolum og skyrtum, það fer mér
extra vel.“
Dolfallinn aðdáandi Louis
Vuitton og Victoriu Beckham
Þegar Lína Birgitta er spurð hvort
hún eigi sína uppáhalds flík í dag
stendur ekki á svari.
„Í augnablikinu er það nýjasta
peysan frá Define The Line Sport.
Töffaralegur og afslappaður stíll Línu Birgittu
Lína Birgitta
fílar sig vel í
víðu að ofan
og þröngu að
neðan. Hér í
víðri, þægi-
legri peysu sem
nýtur sín vel við
þröngar buxur.
Hún er hrifin
af hvers kyns
höfuðbúnaði og
barðahatturinn
klæðir hana vel.
Fjær sést hvað
töffaralegur
og afslapp-
aður íþróttastíll
klæðir Línu
Birgittu vel.
Hún klæðist
kósí fötum,
hvítum striga-
skóm og með
derhúfu sem
toppar útlitið.
MYNDIR/STEFÁN
JOHN TURNER
Lína Birgitta vill
að sér líði vel í
fatnaðinum og
að hann þrengi
ekki að en um
leið sé hann
smart. Hún er
hrifin af fylgi-
hlutum og hér
toppa fylgihlut-
ir heildarútlitið,
sólgleraugun og
veskið frá Louis
Vuitton setja
punktinn yfir
i-ið.
Gallabuxur og strigaskór koma sterkt inn hjá Línu Birg-
ittu og víðar opnar kápur undirstrika frelsið.
V-hálsmál gerir mikið fyrir stílinn og hálsmenið nýtur
sín vel. Kasmírbrún kápan á vel við ljósa og dökka liti.
Lína Birgitta Sigurðardóttir
hefur vakið mikla athygli fyrir
fallegan og smekklegan klæða-
burð sinn og er vinsæl í hlutverki
sínu sem áhrifavaldur.
Hún er bæði kósí og mjög töff.
Síðan eru það sneakers-skórnir
mínir frá Alexander McQueen og
Dolce&Gabbana, þeir eru geggjaðir
við allt.“
Áttu þinn uppáhalds hönnuð?
„Ég er dolfallinn Louis Vuitton
aðdáandi og lít mikið upp til
Victor iu Beckham.“
Þau tískuvörumerki sem heilla
Línu Birgittu mest eru Louis
Vuitton, Alexander McQueen og
Balenciaga.
Heillast mest af hvítum striga-
skóm með þykkum botni
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni eða
áttu þér þína uppáhalds liti sem þér
finnst klæða þig best?
„Ég er mjög beisik þegar kemur
að litavali. Ég elska svartan, gráan,
hvítan og brúnan. Þessir litir
eru alltaf beisik og maður getur
poppað þá upp með áberandi
fylgihlutum í lit.“
Hvernig myndir þú lýsa skótísk-
unni sem þú heillast helst af?
„Hvítir strigaskór með þykkum/
grófum botni. Ég fæ ekki nóg af
þeim.“
Þeir fylgihlutir sem Línu Birgittu
finnst vera ómissandi í dag eru
fallegt veski, góður trefill og sól-
gleraugu. Hún er dugleg að poppa
klæðnað sinn upp og klára heild-
arútlitið með þessum fylgihlutum
og sólgleraugun gera mikið og setja
punktinn yfir i-ið.
Þegar kemur að því að klæða sig
finnst Línu Birgittu mikilvægt að
hafa það í huga að það eru engar
reglur.
„Ef þig langar að klæðast ein-
hverju, gerðu það!“
4 kynningarblað A L LT 8. apríl 2021 FIMMTUDAGUR