Fréttablaðið - 08.04.2021, Page 28

Fréttablaðið - 08.04.2021, Page 28
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Hvernig segir maður Jarðarförin mín á þýsku? En frönsku? Laddi mun í það minnsta tala tungum tveim þegar ARTE tekur íslensku þættina um jarðarför Benedikts til sýninga í Þýskalandi og Frakklandi. MYND/AXEL SIGURÐARSON Hörður Rúnarsson hjá Glassriver hefur ástæðu til að brosa eftir að hafa selt ARTE sýningarréttinn á Jarðarförinni minni. MYND/AÐSEND Höfundurinn Jón Gunnar Geirdal er í súrrealísku þakklætisáfalli. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þýsk-franska menningar-sjónvarpsstöðin ARTE hefur tryggt sér sýn-ingarréttinn á íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Jarðarförinni minni sem gerði mikla lukku hér á landi þegar Síminn Premium frumsýndi hana um páskana í fyrra. „ARTE er meðal stærstu sjón- varpsfyrirtækjanna í Frakklandi og Þýskalandi og er þekkt fyrir að leggja áherslu á gæðaefni og eitt- hvað sem hristir upp í fólki,“ segir Hörður Rúnarsson hjá Glassriver sem framleiddi Jarðarförina mína fyrir Sjónvarp Símans. Hörður lætur fljóta með að sjón- deildarhringur ARTE sé mjög víður þegar kemur að efnisleit og að fyrir- tækið sé annálað fyrir að handvelja það sem á einhvern hátt sker sig úr á markaðnum. „Þau hafa alveg verið iðin við að taka inn efni frá Skandinavíu en hafa ekki verði með mikið íslenskt efni þannig að þetta er skemmti- legt.“ Súrrealískt sjokk „Ég sá alltaf fyrir mér að þessi góða hugmynd gæti ferðast en að sjá það svo raungerast er súrrealískt í meira lagi,“ segir Jón Gunnar Geirdal sem átti grunnhugmyndina að þátt- unum og skrifaði síðan handritið ásamt öðrum. „Glassriver hefur fengið frábær viðbrögð við seríunni erlendis og þessi sala til ARTE er svo sannarlega staðfesting á því og maður er eigin- lega bara í einhverju auðmýktar og þakklætis-sjokki gagnvart þessu öllu saman.“ Þórhallur Sigurðsson, Laddi sjálf- ur, var miðpunkturinn í Jarðarför- inni minni þar sem hann lék hinn dauðvona Benedikt sem er stað- ráðinn í því að undirbúa og halda sína eigin glæstu jarðarför með því að vera viðstaddur til að kveðja sína nánustu. „Á sama tíma er ótrúlega fallegt að milljónir Frakka og Þjóðverja fái tækifæri til að sjá Ladda fara á kostum,“ segir Jón Gunnar og bætir við að persónur þáttanna hafi ekki sagt sitt síðasta. „Ferðalagið á þess- um skemmtilegu persónum er rétt að byrja og vonar maður að þetta opni enn fleiri tækifæri fyrir þessa dásamlegu seríu okkar.“ Döbbaða jarðarförin mín Á meginlandi Evrópu er löng hefð fyrir því að talsetja sjónvarpsefni og þar eru Þýskaland og Frakkland engar undantekningar og Hörður segir því alls ekki útilokað að ein- hverjar kanónur í öldungadeildum leikara landanna verði fengnar til þess að ljá Ladda raddir sínar. „Ég á bara eftir að fá frekari upp- lýsingar um það en þegar leikarar eru komnir á þennan aldur og eiga ef til vill langa sögu þá er alls ekki ólíklegt að reyndir menn veljist í hlutverk eins og Benedikts. Það væri gaman að heyra einhverjar goðsagnir frá þessum svæðum, svipaða og Laddi er hjá okkur, í þessu hlutverki.“ Brúðkaupið mitt Jarðarförin mín er með vinsælasta leikna efninu sem sýnt hefur verið í Sjónvarpi Símans frá upphafi og var um skeið á toppi þess lista. „Þangað til þriðja sería af Venjulegt fólk sló metið. En þeir þættir eru reyndar líka frá okkur,“ segir Hörður og bætir við að fyrirtækið sé þegar byrjað að þróa framhald Jarðar- fararinnar og þau séu Símanum afskaplega þakklát fyrir að hafa stuðlað að því að þessar þáttaraðir gætu orðið að veruleika. „Ég, Kristófer Dignus og Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir erum að skemmta okkur konunglega við að þróa framhaldið sem ber heitið Brúðkaupið mitt,“ skýtur Jón Gunn- ar inn í. „Jarðarförin hans Ladda búin, næst á dagskrá brúðkaup. Og það verður gaman fyrir fólk að fylgjast með Ladda fara á kostum í þeim undirbúningi og takast á við allar mögulegar hindranir á leiðinni. Ástin og ástarsambönd í mjög víðu samhengi verða í brennidepli í framhaldinu og nýjar persónur banka upp á með miklum og líf- legum látum,“ segir Jón Gunnar og boðar Brúðkaupið mitt í Sjónvarpi Símans Premium árið 2022. toti@frettabladid.is Laddi talar þýsku og frönsku í jarðarför Sjónvarpsstöðin ARTE hefur tryggt sér réttinn á Jarðarförinni minni. Laddi talar því bæði frönsku og þýsku þegar hann undirbýr jarðarför sína í hlutverki hins bráðfeiga Benedikts síðar á árinu. ÉG SÁ ALLTAF FYRIR MÉR AÐ ÞESSI GÓÐA HUGMYND GÆTI FERÐAST EN AÐ SJÁ ÞAÐ SVO RAUNGERAST ER SÚRREALÍSKT Í MEIRA LAGI. Jón Gunnar TAKE AWAY Strandgata 34 220 Hafnafjörður kryddveitingahus.is takeaway_frettabladid2.indd 1 22/02/2021 17:48:38 8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.