Fréttablaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 4
Í vetur höfum við
líka fengið inn á
borð hjá okkur ofbeldismál,
bæði þar sem ungmenni eru
gerendur og þar sem ofbeldi
er á heimilum.
Berglind Gunnarsdóttir Strandberg,
framkvæmdastjóri Foreldrahúss
TÖLUR VIKUNNAR 04.04.2021 TIL 10.04.2021
150
þúsund farþegar skemmtiferða-
skipa eru áætlaðir til Reykjavíkur
næsta sumar.
528
íbúa fjölgun varð í Reykja-
víkurborg frá 1. desember
2020 til 1. apríl síðastliðins.
27.801
einstaklingur hefur verið
fullbólusettur á Íslandi.
300
íbúðir í
fjölbýli eru
í byggingu
á Akureyri
samkvæmt
talningu SI.
123
milljónum króna
nemur árleg viðhalds-
þörf á götum
Reykja-
nesbæjar.
Helga Vala Helgadóttir
formaður velferðarnefndar
fagnar því að nýjar
reglur heilbrigðis
ráðuneytisins
um sóttvarnir
við landamærin
séu skýrari. „Að
mínu mati er það
jákvæð breyting að
sömu reglur séu í gildi fyrir alla
farþega óháð því hvaðan þeir eru
að koma. Þetta virðist mun skýrara
sem er mikilvægt þegar íþyngjandi
reglur eru settar. Um leið eru þau
að setja strangari reglur um brot á
sóttkvíarreglum sem er jákvætt,“
sagði hún aðspurð um reglurnar.
Brynjar Níelsson
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
vakti umtal þegar
hann greindi frá
nýlegri utan
landsferð sinni
til Spánar. Á
meðal gagnrýn
enda Brynjars var
Kári Stefánsson, for
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
sem sagði Brynjar reka fingurinn
framan í sóttvarnayfirvöld á
Íslandi með óþarfa ferðalögum.
Brynjar svaraði fyrir sig og sagði að
utanlandsferðin hefði verið vegna
veikinda í fjölskyldunni.
Ewa Maria Przedpelska-
Wasowicz
sérfræðingur hjá
Náttúrufræði-
stofnun
segir fjölgun frjó
korna á höfuð
borgarsvæðinu og
Akureyri á undan
förnum þrjátíu árum ekki vera
línulega og að sveiflur séu miklar á
milli ára. Nýjar tegundir frjókorna
hafi bæst við frá Evrópu, sumar
hverjar ofnæmisvaldandi. „Lofts
lagið er að breytast, plöntunum að
fjölga og þær blómgast fyrr,“ segir
Ewa.
Þrjú í fréttum
Landamæri,
útlönd og
frjókorn
COVID-19 „Það var algjör sprenging
hjá okkur í haust,“ segir Berglind
Gunnarsdóttir Strandberg, fram
kvæmdastjóri Foreldrahúss, um
aukningu í aðsókn til samtakanna
í kjölfar kórónaveirufaraldursins.
„Aukningin í kjölfar COVID var
slík að ég þurfti að ráða inn mann
eskju til að sinna öllum þeim sem
til okkar leita,“ segir Berglind. Í
Foreldrahúsi er boðið upp á ráðgjöf
í formi viðtala og námskeiða fyrir
börn og unglinga í vanda og for
eldra þeirra.
Berglind segir þau mál sem koma
inn á borð Foreldrahúss jafn ólík og
þau séu mörg, Um sé að ræða mál er
tengist ofbeldi, neyslu, samskiptum
og áhættuhegðun. „Núna erum við
svolítið að bíða eftir þeim krökkum
sem voru að byrja í framhaldsskóla
í haust en gátu ekki mikið farið í
skólann,“ segir hún, en nemendur
í framhaldsskólum hafa síðastliðið
ár að miklu leyti verið í fjarnámi
vegna sóttvarnareglna og sam
komutakmarkana.
„Það er mikil vanlíðan hjá þess
um krökkum,“ segir Berglind. „Í
vetur höfum við líka fengið inn á
borð hjá okkur of beldismál, bæði
þar sem ungmenni eru gerendur
og þar sem of beldi er á heimilum,“
bætir hún við.
Berglind segir þráðinn stuttan hjá
stórum hópi foreldra og að faraldr
inum hafi fylgt mikið álag á fjöl
skyldur. „Þar sem ástandið var ekki
gott fyrir, þá hefur það ekki batnað
í faraldrinum, það er óhætt að segja
að það hafi frekar versnað.“
Hvað varðar neyslu unglinga
segist Berglind hafa orðið vör við
að það örli á sofandahætti hjá for
eldrum. „Fólk er ekki alveg vakandi
fyrir því hvað börnin þeirra eru að
gera og að það gæti verið hættulegt,“
segir hún og tekur dæmi um neyslu
á efninu Spice.
„Það er kemískt efni sem erfitt er
að greina og unglingar virðast vera
dálítið að nota það. Um er að ræða
baneitrað og hættulegt efni,“ segir
Berglind. „Svo eru kannabisefni
alltaf vinsæl og þau eru sterkari en
áður,“ bætir hún við.
Spurð að því hvað sé til ráða segir
Berglind að mikilvægt sé að leita til
ráðgjafa sem fyrst. „Það er betra að
koma í viðtal sem fyrst í stað þess
að lenda í miklum vanda,“ segir hún
og hvetur foreldra til að grípa sem
fyrst inn í, gruni þá að börnin þeirra
séu að fikta við vímuefni eða upplifi
vanlíðan.
„Það er betra en að banna hitt og
þetta, slíkar hótanir virka ekki,“
segir Berglind. Þá segir hún að þrátt
fyrir faraldurinn hafi nánast tekist
að halda allri starfsemi Foreldra
húss gangandi. Fresta hafi þurft
námskeiðum fyrir foreldra vegna
plássleysis en samtökin safna nú
fyrir nýju húsnæði.
„Við erum í leiguhúsnæði sem
okkur er ekki tryggt og því fylgir
óvissa, draumurinn er að kaupa
okkar eigið húsnæði,“ segir Berg
lind. birnadrofn@frettabladid.is
Fleiri leitað til Foreldrahúss
eftir að faraldurinn hófst hér
Aðsókn í Foreldrahús hefur aukist í faraldrinum. Framkvæmdastjórinn segir örla á sofandahætti meðal
foreldra sem átti sig ekki á hættunni sem getur skapast sýni börn þeirra áhættuhegðun eða upplifi van-
líðan. Þá hafi álag á fjölskyldur aukist í faraldrinum og mikilvægt sé að leita til ráðgjafa sem fyrst.
Berglind hvetur foreldra til að leita sem fyrst til ráðgjafa sýni börn þeirra áhættuhegðun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
P L U G I N T O M O R E
T H E 2 0 2 1
GOÐSÖGNIN RAFMÖGNUÐ
ALVÖRU JEEP I MEÐ 100% DR IFLÆSINGUM Á VERÐ I SEM Á SÉR ENGAN SAMANBURÐ OG NÚ 374HÖ/637NM
T R Y G G I Ð Y K K U R B Í L Í F O R S Ö L U . V Æ N T A N L E G U R Í B Y R J U N S U M A R S .
NÝR WRANGLER RUBICON
4xe PLUG- IN-HYBRID
VERÐ FRÁ KR. 9.490.000*
LAUNCH EDITION KR. 10.490.000*
*V
ER
Ð
M
IÐ
A
Ð
ST
V
IÐ
G
EN
G
I U
SD
1
28
1 0 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð