Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 13

Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 13
ALLT K Y N N I NG A R B L A Ð ÞRIÐJUDAGUR 13. apríl 2021 Umbru Ensemble skipa þær Guðbjörg fiðluleikari, Lilja söngkona, Alexandra Kjeld á kontrabassa og Arngerður píanó- og orgelleikari. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Krassandi skuggahliðar tónlistar Umbru skipa fjórar klassískmenntaðar tónlistarkonur sem brenna fyrir fornum, krassandi lagstúfum úr gleymdum handritum. Þótt fornt sé á efnið fullt erindi við nútímamanninn. Umbra varð til árið 2014 úr hópi fjögurra ólíkra kvenna. „Það var einhver kraftur sem dró okkur saman, sameiginlegur og einlægur áhugi á fornri og miðaldatónlist. Við Arngerður María Árnadóttir þekktumst vel fyrir en kynntumst- hinum tveimur, Alexöndru Kjeld og Guðbjörgu Hlín Guðmunds- dóttur, í gegnum önnur verkefni og fundum fyrir sameiginlegri ástríðu gagnvart þessari tegund tónlistar. Með stofnun hljómsveitarinnar vildum við vinna skapandi með fornan tónlistararf og færa nær hlustendum í nútímanum,“ segir Lilja Dögg Gunnarsdóttir, hljóm- sveitarmeðlimur í Umbru. Klassískur bakgrunnur „Við höfum allar lært á hljóðfæri frá fimm til sex ára aldri og erum atvinnumenn í dag í tónlist. Í klass- íska heiminum er oftast spilað eftir nótum en í Umbru spilum við yfir- leitt aldrei eftir nótum. Við komum saman og leyfum sköpunargáfunni að njóta sín. Við hefjum sköpunina á fornri laglínu og vinnum tónverk út frá henni. Þá gerum við okkar útsetningar sjálfar. Þetta er svolítið annað en í klassíska geiranum og við þurftum allar á þessu að halda,“ segir Arngerður. „Þetta er mjög náið samstarf og hefur orðið enn nánara með tím- anum. Það er líka mjög dýrmætt að við erum allar gerendur. Við erum með skýra sýn sem hefur hjálpað okkur að framkvæma. Þá þurfum við ekki mikið til þess að rúlla boltanum og vitum alltaf hvað þarf að gera næst. Þá erum við mjög listrænar og fjölhæfar og þó svo við séum allar með grunn í ákveðnu hljóðfæri, erum við liðtækar á ýmislegt annað líka,“ segir Lilja. Löngu gleymd handrit Efniviðurinn segir Lilja að komi úr ýmsum áttum. „Við köfum djúpt í heimildir í leit að efnivið. Þá höfum við nýtt okkur fornar heimildir og löngu gleymd handrit frá Orkn- eyjum og Hjaltlandseyjum. Okkar mottó er að fara alltaf í elstu varð- Hjartagarðurinn var fagurlega skreyttur graffiti-listaverkum þegar sól hans reis sem hæst. Sumarið 2010 varð til eitt skemmti- legasta og áhugaverðasta útisvæði sem borgin hefur nokkru sinni átt; Hjartagarðurinn, einnig nefndur Hljómalindarreiturinn. Reiturinn hafði verið í niðurníðslu þar sem viðamiklar framkvæmdir áttu að hefjast á svæðinu stuttu eftir 2008 en frestuðust um ófyrirséðan tíma. Gert var ráð fyrir hóteli, bílakjallara og upphituðu torgi. Þegar leið á árið 2010 var ekki sjón að sjá svæðið. Húsin í kring voru niðurnídd og plássið var síður en svo fýsilegt. Grasrótin tekur við sér Þá gerðist nokkuð sem átti eftir að hrinda af stað listagrósku í grasrót Reykjavíkur. Lítill en ört stækkandi hópur hóf að lappa upp á garðinn. Listafólk skreytti veggina á niður- níddum húsum og fyrr en varði var fólk farið að halda viðburði í garðinum. Boðað var til tónleika, flóamarkaðir voru haldnir, úti- listasýningar og gjörningar áttu sér stað. Hjartagarðurinn var fæddur og sló fjörlega í brjósti miðbæjarins. Ungir sem aldnir mættu þangað á fjölbreytta listviðburði og hverja helgi var garðurinn fullur af fólki sem hafði nú tækifæri til þess að kynna sér grasrótina undir berum himni, án aðgöngumiða. Á haustmánuðum 2012 var botninn sleginn úr gleðitunnunni og borgin kynnti nýtt deiliskipulag á Hljómalindarreitnum. 2013 var garðinum lokað og teiknistofa fékk það verkefni að hanna nýtt torg í brostnu hjarta miðborgarinnar. Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur og það á svo sannar- lega við í tilfelli Hjartagarðsins. johannamaria@frettabladid.is Brostið hjarta miðborgarinnar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.