Fréttablaðið - 13.04.2021, Blaðsíða 39
HVÍTANES
Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
MÁR Tveggja laga regnjakki
Kr. 18.990.-
VIÐEY Hanskar
Kr. 3.300.-
Embla Thermore® Ecodown®
dúnjakki kr. 17.990.-
ATLI Softshell buxur
Kr. 17.900.-
HELLY HANSEN
Bowstring kk skór
Kr. 22.990.-
HELLY HANSEN
M Odin Minimalist
Kr. 32.990.-
BRIMNES
Meðalþykkir
göngusokkar
Kr. 2.150.-
SALEWA Firepad 16 BPi
Kr. 9.990.-
SALEWA
MS Dropline GTX
Kr. 29.990.-
SNÆDÍS
Prjónað ennisband
Kr. 2.990.-
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
Þín útivist - þín ánægja
CrimeFest-glæpasagnahátíðin í Bretlandi hefur opinberað hvaða bækur eru tilnefndar
til verðlauna hátíðarinnar í ár.
Marrið í stiganum eftir Evu Björgu
Ægisdóttur er tilnefnt sem frum-
raun ársins en bókin kom út hjá
Orenda Books í fyrra. Eva Björg
hlaut fyrst allra Svartfuglinn –
glæpasagnaverðlaunin sem Yrsa
Sigurðardóttir og Ragnar Jónas-
son stofnuðu til í samvinnu við
útgefanda sinn, Veröld, árið 2019.
Alls eru fimm nýliðar tilnefndir
til CrimeFest-verð-
launanna og eru þar á
meðal The Thursday
Murder Club eftir
hinn þekkta sjón-
varpsmann Richard
Osman en hún var
þaulsætin á metsölu-
listum í Bretlandi í
fyrra og The Man on
the Street eftir Trevor
Wood sem hlaut einn-
ig nýliðaverðlaun Gull-
rýtingsins þar í landi.
Það er því ljóst að Eva
Björg keppir við miklar
kanónur um þessi eftir-
sóknarverðu verðlaun.
„Þetta er frábært.
C r i me Fe s t e r e i n
stærsta glæpasagnahátíðin í Bret-
landi þannig að ég er mjög ánægð,“
sagði Eva Björg þegar blaðamaður
hafði samband við hana. Spurð
hvort hún geri sér vonir um að
vinna svarar hún: „Richard Osman
er tilnefndur og honum hefur geng-
ið gríðarlega vel með sína fyrstu
bók. Hann er mjög þekktur og hefur
því ákveðið forskot. Ég vona samt
vitanlega að dómnefndin verði mér
hliðholl.“
Bretar hafa tekið Marrinu í
stiganum opnum örmum. Gagn-
rýnandi The Times sagði að „þessi
framúrskarandi fyrsta skáldsaga
Evu Bjargar væri ekki aðeins safarík
ráðgáta heldur líka hrollvekjandi
lýsing á því hvernig skrímsli verða
til.“ Þá sagði einn helsti glæpa-
sagnasérfræðingur Englendinga,
Barry Forshaw, í Financial Times:
„Eva Björg Ægisdóttir sýnir hér og
sannar að hún er jafn mikill snill-
ingur í þessari kuldalegu list og
starfsbræður (og -systur) hennar.
Elma er ógleymanleg og flókin per-
sóna,“ og glæpasagnahöfundurinn
Ann Cleeves sagði:
„ Að d áendu r nor-
rænna glæpasagna
munu kunna að meta
þessa heillandi frum-
raun. Hún er þaul-
hugsuð, blæbrigðarík
með geðþekkri aðal-
persónu og ber með
sér fyrirheit um fleiri
magnaðar sögur.“
Eva Björg hefur
nú sent frá sér þrjár
glæpasögur á jafn
m ö r g u m á r u m .
Stelpur sem ljúga
kom út 2019 og
Næturskuggar 2020.
Hún vinnur nú að
sinni fjórðu bók sem
kemur út hjá Veröld í haust. Allar
bækur hennar, einnig sú sem hún er
að skrifa núna, hafa verið seldar til
Bretlands. Stelpur sem ljúga kemur
út í Bretlandi í sumar. „Þetta hefur
gerst ótrúlega hratt og gefur mér
mikið,“ segir Eva Björg. Velgengnin
í Bretlandi hefur greitt fyrir samn-
ingum í öðrum löndum. Stórt bóka-
forlag í Frakklandi hefur til dæmis
keypt útgáfurétt að bókum hennar
og Marrið í stiganum kemur út þar
í sumar.
Á meðal annarra höfunda sem
tilnefndir eru í hinum ýmsu flokk-
um CrimeFest-verðlaunanna eru
Peter James, Ian Rankin, Robert
Galbraith og Anthony Horowitz.
Það var verðlaunaþýðandinn Vic-
toria Cribb sem snaraði Marrinu í
stiganum yfir á ensku.
Marrið í stiganum tilnefnt sem
frumraun ársins í Bretlandi
Kona fer í gönguferð – 799 kílómetrar – 34 dagleiðir er ný ljóða-bók eftir Hönnu Óla-dóttur. Umfjöllunar-ef ni ljóða nna er
gönguferð sem kona fer eftir hinum
heilaga Jakobsvegi á Spáni. Nokkuð
sem Hanna gerði í tveimur hlutum,
árið 2016 og 2017.
Tákn fyrir lífsgönguna
Spurð hvaða áhrif það hafi haft á
hana að ganga Jakobsveginn segir
Hanna: „Það að ganga þessa leið
hafði mjög djúp áhrif á mig. Þarna
hafði ég tíma til að hugsa og vera
með sjálfri mér án þess að vera
truf luð. Þetta var dálítið eins og
að vera í annarri vídd. Ég lýsi því
á einum stað í bókinni að þegar
konan er á gangi er um leið eins og
hún horfi á líf sitt á Íslandi úr hliðar-
veruleika.
Það sem er svo áhrifamikið við að
ganga þessa leið er að allir ganga í
sömu átt. Gangan er tákn fyrir lífs-
gönguna. Fyrsti hluti göngunnar,
fjallgangan, er fæðingin og ung-
dómsárin, það er erfiðasti hlutinn.
Miðjan er sléttan þar sem reynir á
úthaldið og í síðasta hlutanum sér
maður í mark en vill samt ekki að
gangan endi. Það var búið að segja
mér að á síðustu 100 kílómetrunum
yrði mikið fjölmenni því það er
nóg að ganga þá vegalengd til að fá
syndaaflausn. Þarna var gríðarlegt
fjölmenni og mikið af Asíubúum. Ég
fékk sterka tilfinningu fyrir því að
vera hluti af mannkyninu og fann
svo greinilega hversu margir hafa
gengið þarna í gegnum tíðina.“
Ákveðin heilun
Þetta er önnur ljóðabók Hönnu en
árið 2019 kom ljóðabókin Stökk-
brigði. Hún segir að sú bók hefði
ekki orðið til nema vegna þess
að hún gekk Jakobsveginn. „Það
opnuðust ákveðnar gáttir og sú
ljóðabók varð til. Hún fjallar um
barnsmissi, ég missti tvö börn, eins
og hálfs og tveggja ára, úr óútskýrð-
um erfðasjúkdómum sem herjuðu
á þau. Slíkt áfall er stórt fyrir eina
tilf inningaveru. Mér fannst ég
verða að gera eitthvað meira við
þær tilfinningar en að láta þær bara
velkjast um í höfðinu. Ljóðin settu
missinn í stærra samhengi og gáfu
tilfinningunum þann sess sem þær
áttu skilið. Þannig að sú ljóðabók
var ákveðin heilun. Ég reyndi þó
að skrifa hana þannig að hún væri
ekki einungis lýsing á persónulegri
reynslu,“ segir Hanna sem bætir við
að þau hjónin hafi í framhaldinu
ættleitt tvö börn.
„Eftir að ég orti Stökkbrigði fór
Jakobsvegurinn að leita mjög á
mig. Kona fer í gönguferð fjallar
samt ekki um mig þótt hún sé vissu-
lega byggð á reynslu minni. Í fyrsta
ljóðinu er konan til dæmis svipt
ökuréttindum sínum en það hefur
aldrei hent mig!“
Þetta var dálítið eins og
að vera í annarri vídd
Kona fer í gönguferð er ljóðabók eftir Hönnu Óladóttur þar
sem fjallað er um gönguferð sem kona fer eftir hinum heilaga
Jakobsvegi á Spáni. Hanna gekk þessa leið í tveimur hlutum.
ÉG FÉKK STERKA
TILFINNINGU
FYRIR ÞVÍ AÐ VERA HLUTI AF
MANNKYNINU OG FANN SVO
GREINILEGA HVERSU MARGIR
HAFA GENGIÐ ÞARNA Í
GEGNUM TÍÐINA.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Þarna hafði
ég tíma til að
hugsa og vera
með sjálfri
mér, segir
Hanna Óla-
dóttir ljóðskáld
um gönguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
CRIMEFEST ER EIN
STÆRSTA GLÆPA-
SAGNAHÁTÍÐIN Í BRETLANDI
ÞANNIG AÐ ÉG ER MJÖG ÁNÆGÐ.
Þetta er frá-
bært, segir
Eva Björg um
tilnefninguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 1 3 . A P R Í L 2 0 2 1