Fréttablaðið - 13.04.2021, Side 42

Fréttablaðið - 13.04.2021, Side 42
Parket Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14. Komdu við og ræddu við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570 Það kennir ýmissa grasa þegar kemur að tólum og tækjum sem eru vin-sæl í húðumhirðu. Gíf-urleg sprenging hefur átt sér stað í áhuga á vönduðum og virkum húðvörum síðasta hálfa áratuginn. Verðlag hefur líka sitt um það að segja, en innkoma kanadíska fyrirtækisins The Ordinary var mikil bylting á sínum tíma, því loks voru fáanlegar á góðu verði hreinar vörur með virkum efnum sem höfðu verið rannsökuð í þaula. Það hefur því reynst mun auðveldara að byggja upp góða og vandaða húðrútínu undanfarin ár og fjöldi skemmti- legra fyrirtækja kominn á mark- aðinn sem bjóða upp á retínól, C-vítamín, hýalúronsýru og nías- ínamíð. Síðustu tvö ár hafa vin- sældir ýmissa aukahluta sem eiga að tryggja að maður fái sem mesta virkni úr olíum á borð við rósaldin- olíu, jójobaolíu og skvalín aukist. Þessar vinsældir má að mörgu leyti rekja til samfélagsmiðla þar sem ýmsir áhrifavaldar hafa hrósað þessum tólum í bak og fyrir. Mörg þeirra eru þó alls ekki ný af nálinni, má þar nefna rúllur úr jaði (e. jade roller) og Gua shah-steina sem eru oftast úr rósakvarsi, en hvort tveggja hefur verið notað í Kína frá sjöundu öld. Slétt og stund- um svalt yfirboðið er sagt hjálpa olíum og efnum að ná inn í húðina. Tilgangurinn er einnig að örva blóðflæðið með því að nudda stein- unum í hinar ýmsu áttir í andlitinu, sem á að gera húðina stinnari og ná óhreinindum upp á yfirboðið. Hver og einn verður þó að sjálfsögðu að gera upp við sig hvort vert sé að hafa trú á virkni þessara tóla. En það er í það minnsta gaman að fræðast um þau og margir segja að andlits- nuddið eitt og sér sé róandi eftir erfiðan dag, þrátt fyrir að virknin sé kannski ekki sú sama og margir heilsugúrúar halda fram. steingerdur@frettabladid.is Óhefðbundnar andlitsmeðferðir Gua shah-steinar fást í ýmsum formum og eru oftast úr rósakvarsi. Þó er hægt að fá Gua shah úr jaði eða öðrum steinum. Formið sem er hér fyrir miðju er það vinsælasta.Hér er dæmi um í hvar í andlitinu og í hvaða átt er best að nudda Gua shah-steininum eða jaðirúllunni. Mörgum finnst gott að geyma jaði- rúllurnar og Gua sha-steinana inni í ísskáp eða frysti. Það er frískandi eftir langan dag og gerir húðina stinnari, í það minnsta tímabundið. Síðustu ár hafa ýmis óvenjuleg tól rutt sér til rúms í húðrútín- unni hjá mörgum. Rúllur úr jaði og Gua shah-steinar hafa slegið í gegn fyrir óhefðbundnar and- litsmeðferðir sem byggja á alda- gömlum kínverskum hefðum. Ýms- ir óvenju- legir fylgihlutir í húðumhirðu hafa rutt sér rúms og vin- sældir þeirra aukist mikið síðustu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Best er að nota góða húðolíu áður en húðin er nudduð út á við með Gua sha- steininum. 1 3 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R16 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.