Fréttablaðið - 13.04.2021, Page 42
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
Það kennir ýmissa grasa þegar kemur að tólum og tækjum sem eru vin-sæl í húðumhirðu. Gíf-urleg sprenging hefur átt sér stað í áhuga á
vönduðum og virkum húðvörum
síðasta hálfa áratuginn. Verðlag
hefur líka sitt um það að segja, en
innkoma kanadíska fyrirtækisins
The Ordinary var mikil bylting á
sínum tíma, því loks voru fáanlegar
á góðu verði hreinar vörur með
virkum efnum sem höfðu verið
rannsökuð í þaula. Það hefur því
reynst mun auðveldara að byggja
upp góða og vandaða húðrútínu
undanfarin ár og fjöldi skemmti-
legra fyrirtækja kominn á mark-
aðinn sem bjóða upp á retínól,
C-vítamín, hýalúronsýru og nías-
ínamíð. Síðustu tvö ár hafa vin-
sældir ýmissa aukahluta sem eiga
að tryggja að maður fái sem mesta
virkni úr olíum á borð við rósaldin-
olíu, jójobaolíu og skvalín aukist.
Þessar vinsældir má að mörgu leyti
rekja til samfélagsmiðla þar sem
ýmsir áhrifavaldar hafa hrósað
þessum tólum í bak og fyrir.
Mörg þeirra eru þó alls ekki ný af
nálinni, má þar nefna rúllur úr jaði
(e. jade roller) og Gua shah-steina
sem eru oftast úr rósakvarsi, en
hvort tveggja hefur verið notað í
Kína frá sjöundu öld. Slétt og stund-
um svalt yfirboðið er sagt hjálpa
olíum og efnum að ná inn í húðina.
Tilgangurinn er einnig að örva
blóðflæðið með því að nudda stein-
unum í hinar ýmsu áttir í andlitinu,
sem á að gera húðina stinnari og ná
óhreinindum upp á yfirboðið. Hver
og einn verður þó að sjálfsögðu að
gera upp við sig hvort vert sé að hafa
trú á virkni þessara tóla. En það er
í það minnsta gaman að fræðast
um þau og margir segja að andlits-
nuddið eitt og sér sé róandi eftir
erfiðan dag, þrátt fyrir að virknin
sé kannski ekki sú sama og margir
heilsugúrúar halda fram.
steingerdur@frettabladid.is
Óhefðbundnar
andlitsmeðferðir
Gua shah-steinar fást í ýmsum
formum og eru oftast úr rósakvarsi.
Þó er hægt að fá Gua shah úr jaði
eða öðrum steinum. Formið sem er
hér fyrir miðju er það vinsælasta.Hér er dæmi um í hvar í andlitinu og í hvaða átt er best
að nudda Gua shah-steininum eða jaðirúllunni.
Mörgum finnst gott að geyma jaði-
rúllurnar og Gua sha-steinana inni
í ísskáp eða frysti. Það er frískandi
eftir langan dag og gerir húðina
stinnari, í það minnsta tímabundið.
Síðustu ár hafa ýmis óvenjuleg
tól rutt sér til rúms í húðrútín-
unni hjá mörgum. Rúllur úr jaði
og Gua shah-steinar hafa slegið
í gegn fyrir óhefðbundnar and-
litsmeðferðir sem byggja á alda-
gömlum kínverskum hefðum.
Ýms-
ir óvenju-
legir fylgihlutir
í húðumhirðu hafa
rutt sér rúms og vin-
sældir þeirra aukist
mikið síðustu árin.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Best
er að nota
góða húðolíu
áður en húðin er
nudduð út á við
með Gua sha-
steininum.
1 3 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R16 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ