Fréttablaðið - 13.04.2021, Page 34
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
Bílaumboðið Askja og Sleggjan
hafa gengið til samstarfs um
þjónustu við vöru- og hópferða-
bíla frá Mercedes-Benz, Setra og
Unimog. Sleggjan sem er alhliða
þjónustuverkstæði fyrir vörubif-
reiðar og aftanívagna mun frá 1.
maí taka yfir þjónustu, viðgerðir
og viðhald á Mercedes-Benz vöru-
og hópferðabílum og á sama tíma
taka við atvinnubílaverkstæði
Öskju sem mun því alfarið færast
úr húsnæði Öskju til Sleggjunnar.
Starfsemi Sleggjunnar verður
áfram í nýrri og vel búinni aðstöðu
félagsins í Desjamýri í Mosfellsbæ
og í Klettagörðum 4 í Reykjavík.
Starfsmenn félagsins verða við
þessa breytingu hátt í 30 talsins.
Askja sem er umboðsaðili fyrir
Mercedes-Benz, Kia og Honda
mun áfram reka verkstæði sín fyrir
fólks- og sendibíla á Krókhálsi,
ásamt söludeildum bifreiða og
varahluta.
Sleggjan var stofnuð árið 1990
og byggir því á 30 ára grunni.
„Við fögnum mjög þessu sam-
starfi við Öskju um þjónustu við
Mercedes-Benz vöru- og hópbif-
reiðar. Mercedes-Benz er meðal
bestu framleiðenda heims og
jákvæð og spennandi áskorun að
taka við allri þjónustu sem snýr að
þessum bílum,“ segir Guðmundur
Björnsson, framkvæmdastjóri
og eigandi Sleggjunnar. „Jafn-
framt fáum við til Sleggjunnar vel
þjálfaðan mannskap og allan þann
tækjabúnað sem Askja hefur byggt
upp í kringum þessa þjónustu.
Sleggjan mun áfram sinna alhliða
viðhaldi við vörubíla og vagna af
öllum tegundum eins og félagið
hefur gert undanfarna áratugi.
Starfsstöð okkar í Mosfellsbæ
verður með þann fókus áfram en
mun einnig taka við Mercedes-
Benz, á meðan starfsstöðvar okkar
í Klettagörðum munu einbeita
sér að Mercedes-Benz bifreiðum,“
segir Guðmundur.
„Við hjá Öskju fögnum því að
koma að starfsemi Sleggjunnar.
Félagið hefur verið vel rekið fjöl-
skyldufyrirtæki og hefur gott
orðspor. Með okkar innkomu
í félagið verður til enn öflugra
þjónustufyrirtæki sem mun taka
næstu skref í að þjónusta og auka
enn fjölbreytni og aðgengi eigenda
Mercedes-Benz, Setra og Unimog,
vöru- og hópferðabíla að góðri
þjónustu,“ segir Jón Trausti Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Öskju.
„Undanfarin ár hefur Mercedes-
Benz verið annar mest seldi
vörubíllinn á Íslandi og í gegnum
tíðina hafa Mercedes-Benz og
Setra hópferðabílar verið lang-
vinsælustu gerðirnar í hópferða-
akstri með ferðamenn og innlenda
hópa hér um landið. Það er því
gríðarlega mikilvægt að til staðar
sé gott þjónustukerfi sem sinnir
þessum kröfuharða hópi atvinnu-
manna og það mun Sleggjan nú
gera. Með samstarfinu bætum við
þjónustuna enn frekar og verður
viðskiptavinum sinnt af sér-
hæfðum starfsmönnum á einu af
stærstu og best búnu verkstæðum
landsins á tveimur starfsstöðvum
í höfuðborginni sem þýðir enn
meiri sveigjanleiki og hraði fyrir
viðskiptavini okkar,“ segir Jón
Trausti enn fremur.
Askja og Sleggjan í
þjónustusamstarf
Sleggjan mun þjónusta alla stóra
vörubíla ásamt hópferðabílum.
Væntanlegur arftaki hins vinsæla
Mitsubishi Outlander PHEV er
Eclipse Cross PHEV sem frumsýnd-
ur var í fyrra. Fyrstu eintök bílsins
eru komin til landsins en hann fer
í forsölu á næstu vikum. Að sögn
Halldóru Önnu Hagalín, markaðs-
stjóra Heklu, koma fleiri eintök
með sumrinu en verð bílsins byrjar
í 4.990.000 kr.
„Bílinn er ekki búið að frum-
sýna en fólki er velkomið að koma
í heimsókn að skoða gripinn,“
segir Halldóra. Eclipse Cross PHEV
byggir á sama grunni og Outlander
PHEV en sá bíll hefur verið í sölu
síðan 2013 og selst í 260.000 ein-
tökum á heimsvísu. Verður hann
með sömu 2,4 lítra bensínvél ásamt
rafmótor á bæði fram- og afturdrif
sem samtals skila 200 hestöflum.
Bíllinn er búinn 13,8 kWst raf-
hlöðu en drægið á rafmagni
eingöngu er allt að 61 kílómetri
samkvæmt WLTP-staðlinum.
Hefðbundinn Eclipse Cross er
með 405 lítra farangursrými en í
tengiltvinnútgáfunni er það 359
lítrar þar sem rafhlaðan tekur
aðeins frá plássinu. Um vel búnar
útgáfur verður að ræða með sömu
fimm ára ábyrgð og áður.
Fyrstu eintök Mitsubishi Eclipse Cross PHEV komin til landsins
Mitsubishi
Eclipse Cross
PHEV er arf
taki Out
lander tengil
tvinnbílsins
sem notið hefur
óhemju vin
sælda hérlendis.
Eclipse Cross PHEV
verður með sama
vélbúnaði og Outlander.
12 kynningarblað 13. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR