Börn og menning - 2016, Síða 7

Börn og menning - 2016, Síða 7
„Mér finnst svo gaman að vera svona hrædd!“ 7 indi, fátækt og dauða. Í einni sögunni er til dæmis sagt frá matvöndum dreng sem geldur matvendninnar með lífi sínu enda gilti sú hugmyndafræði í barnauppeldi að ekki mætti spilla börnum með eftirlæti. Það eimdi lengi eftir af þessum hræðsluáróðri í barnauppeldi og viðvörunarævintýrin og barnasögur sem samdar voru á nítjándu öld eru til vitnis um það. Litlu breytti þótt áhrifa rómantísku stefnunnar gætti þá í ríkara mæli og hugmyndir um bernskuna sem sérstakt æviskeið ryddu sér til rúms. Hlýðni og refsing héldu áfram að haldast í hendur í barnauppeldi. Sögur í anda upplýsingarinnar héldu áfram að verða til og þrátt fyr- ir aukinn áhuga á ævintýrum og aukið umburðarlyndi gagnvart þeim var boðskapur þeirra í raun hinn sami.2 „Ókind þoldi illa spaug“ Löngu mun aflagt að hóta börnum með Grýlu ef þau eru óþæg og reyndar veit enginn hversu algengt slíkt var fyrr á tíð. En það þurfti ekki að hóta börnum til að hræða þau, það gat verið nóg að heyra sagt frá óvætt- unum til finna fyrir hræðslu eða heyra farið með kvæði á borð við „Ókindarkvæði“. En sögur af meinvættum geta líka verið til skemmtunar. Grýla hefur lifað ágætu lífi í barnabókum frá því að hún birtist þar fyrst í kvæðakveri Jóhannesar úr Kötlum Jólin koma, árið 1932. Þar eru þau Grýla og Leppalúði sögð dauð því ekki séu lengur til óþekk börn. En þó er betra að vara sig og börnin eru beðin að haga sér vel áfram svo þau skötuhjúin lifni nú ekki við aftur: 2 Lesa má nánar um uppeldisstefnu og ævintýri í Dagný Krist- jánsdóttir (2001), „Blóðug fortíð …“, í Börn og menning 16, 2:26−33. Sjá einnig Dagný Kristjánsdóttir (2015) Bókabörn, einkum bls. 22−66. „Nú íslensku börnin / þess eins ég bið / að þau láti ekki hjúin / lifna við“ (bls. 8) segir í lokaerindi kvæðisins um Grýlu. Kvæðakverið hefur notið mikilla vinsælda og hefur verið endurútgefið margsinnis svo ætla má að nær hvert mannsbarn á Íslandi þekki það. Það var snjallt hjá Jóhannesi að halda opnum möguleikanum á nýju lífi Grýlu og það greiddi henni leið inn í barnabækurn- ar. Líklega er þó Grýla einna eftirminnilegust eins og hún birtist Vísnabókinni sívinsælu sem fyrst kom út árið 1946 en hefur, eins og Jólin koma, verið gefin út mörg- um sinnum. Þar eru þulur og vísur um þessa illræmdu óvætti og síðast en ekki síst lífseig mynd af Grýlu eftir myndskreyti bókarinnar, Halldór Pétursson. Grýla hefur svo birst nokkuð reglulega í barnabókum Í einni sögunni er til dæmis sagt frá matvöndum dreng sem geldur matvendninnar með lífi sínu Mynd Halldórs Péturssonar af Grýlu sem finna má í Vísnabókinni.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.