Börn og menning - 2016, Síða 13

Börn og menning - 2016, Síða 13
 13Ófreskjan innra með þér „Hann réðst á minni máttar“ Einar Áskell liggur uppi í rúmi megnið af bókinni og getur ekki sofnað. Andvökur eru virkilega and- styggilegar en Einar Áskell vakir og vakir því honum „finnst svo ónotalegt í herberginu“, eins og þar sé eitt- hvert skrímsli. Lesendur sjá hvernig pilturinn liggur pinnstífur í rúminu, með hendur niður eftir síðum, grafalvarlegur í framan með uppglennt augun. Opn- an er öll kuldalega blá og í gegnum hálfopinn glugg- ann sést myrkrið og stjörnurnar. Ástæða óttans skýrist þegar Einar Áskell rifjar upp atburði nýliðins dags: Hann hafði verið að spila fótbolta og tókst að skjóta alveg „æðislega harðkýldu ÞRUMU-SKOTI!“ sem fór svo langt að boltastrákurinn, lítill smápolli, sagðist ekki finna boltann. Einar Áskell trúði ekki boltastráknum og við sjáum hvernig hann kúrir sig nú ofan í koddann og skotrar augunum í átt að hugsanablöðrunni þar sem hann sjálfur bendir ásakandi á logandi hræddan smá- pollann og öskrar að hann eigi að finna boltann eins og skot! Viðskiptum Einars Áskels og smápollans lauk á þann hátt að sá stærri lamdi þann minni með kreppt- um hnefa „beint í smettið“. Það rann blóðdropi úr nefi pollans sem hljóp háskælandi í burtu. Áfram liggur Einar Áskell í bólinu í myrkvuðu her- berginu og það er klifað á því aftur og aftur að hann hafi ráðist á minni máttar. Eftir því sem hann hugs- ar meira um viðskipti sín við meintan boltaþjóf, þeim mun stærra verður skrímslið uns það verður að stórri og hryllilegri ófreskju og Einar Áskell þorir ekki fyrir sitt litla líf að gægjast undir rúm. Myndirnar segja hins vegar aðra sögu og lesendur sjá að undir rúmi liggur ekki ófreskja heldur ósköp venjulegur köttur með gul- ar glyrnur. Smám saman tekst Einari Áskeli að sefa skrímslið þegar hann ákveður að hann ætli að vera góð- ur við smápollann og gefa honum leikfangabílinn sinn. Daginn eftir finnst litli strákurinn þó hvergi og þegar Einar Áskell leggst upp í rúm á ný verður skrímslið enn stærra. Það hreyfir sig og másar undir rúmi á meðan Einar Áskell hugsar hvað eftir annað um höggið og blóðið, sem vætlaði úr nefi smápollans, eykst stöðugt eftir því sem hann veltir málunum meira fyrir sér. Loks kemst hann að ógnvekjandi niðurstöðu: Kannski smá- Einar Áskell hugsar hvað eftir annað um höggið og blóðið, sem vætlaði úr nefi smápollans eykst stöðugt eftir því sem hann veltir málunum meira fyrir sér.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.