Börn og menning - 2016, Side 9

Börn og menning - 2016, Side 9
 9„Mér finnst svo gaman að vera svona hrædd!“ − Heyrðu, veistu dáldið, ég er hreinlega ekki ætt, alltof lítið, rýrt og sætt. En heimsins mestu matargöt mikið um það tala að allra best sé ókindakjöt, ofnsteikt, klætt í spariföt. Þessu barnið blákalt laug en bjargaði sér þannig. Ókind þoldi illa spaug, upp um gatið barnið flaug. (Þórarinn Eldjárn 2007, án blaðsíðutals) Kvæðið byrjar á því eins og í fyrirmyndinni að barn dettur ofan í gat þar sem Ókindin situr og bíður. Ekki er sagt hér að hún sé ljót heldur er hún klædd í sitt fínasta púss eins og hún eigi von á veislumat. Ókindin býður barninu umsvifalaust í mat og slefar af tilhlökk- un. En barnið er ráðagott og snýr aðstæðum sér í hag og tekst af sjálfsdáðum að bjarga sér úr lífshættu, gagnstætt barninu sem segir frá í „Ókindarkvæði“. Ókindin þolir nefnilega illa spaug um sjálfa sig þótt hún bregði á glens við barnið í fyrsta erindinu þegar hún telur sig hafa yfir- höndina. En þannig er það oft með spaugara, þeir þola ekki þegar grínið snýr að þeim sjálfum. Ljóðið „Barn í Dalnum“ er eitt af mörgum barnaljóð- um Þórarins þar sem hann sækir fyrirmyndir og vísar til efnis úr innlendri og erlendri menningarsögu, til dæmis ljóðum, sögum og myndverkum. Það gerir systir hans Sigrún Eldjárn einnig í mörgum mynda sinna. Þannig notar hún áður nefnda mynd Halldórs Péturssonar af Grýlu í Vísnabókinni við kvæðið „Grýla og Leppalúði“ og einnig frægt málverk Jóns Stefánssonar af Þorgeirs- bola við kvæðið um bola. En hún breytir myndunum í samræmi við breyttar forsendur í kvæðum Þórarins. Mynd Sigrúnar við kvæðið „Barn í dalnum“ er líka bráðfyndin og greinilegt hvert hún sækir fyrirmyndina að höfði Ókindarinnar því það minnir sterklega á hinn gráðuga Mr. Burns í sjónvarpsþáttunum The Simpsons. Ókindin er hins vegar í kjól og bleikum háhæluðum skóm svo kynið er skemmtilega tvírætt eins og í fyr- irmyndinni. En líkt og fyrrnefnd kvæði Þórarins eru myndir Sigrúnar gott dæmi um menningarlega tilvísun og endursköpun. Hvort tveggja, kvæðin og myndirn- ar, gefa þeim sem til þekkja auka vídd og kitlar hlátur- taugarnar. Og grínið afvopnar allar óvættir. „Ég veit að ég verð hrædd, en ég veit líka að ég ræð við það“ Það er langt frá því að hræðsluáróður sé horfinn úr barnauppeldi enda er margt að varast í umhverfinu til sjávar og sveita, að ekki sé nú minnst á stórhættulega barnaperra þótt þeir séu sem betur fer ekki á hverju horni. En áróðurinn er falinn í fræðslu og börn eru alla jafna ekki hrædd vísvitandi. Hræðsla er meðfædd og ósjálfráð tilfinning sem fylgir okkur alla ævi, þótt það sem við hræðumst breytist með auknum þroska og aldri. Hræðslan er gagnleg að því marki sem hún varar okkur við hugsanlegri hættu. Ungbörn hræðast ókunnuga og þau hræðast aðskilnað. Við tveggja ára aldur byrjar barnið að hræðast myrkrið og nokkru síðar vaknar hræðslan við algengar hræðslu- vættir svo sem drauga og skrímsli. Við fimm ára aldur byrjar barnið að verða meðvitað um dauðann og þá ógn sem hann er. Fyrst er það hræðslan við að foreldrarnir deyi, en síðar fara börn að hræðast eigin dauða. Frá sjö til átta ára verður hræðsla barna meira bundin við raun- verulegar ógnir eins og stríð, náttúruhamfarir og slys (King ofl. 1997:431−432; Tamm 2003:12−14). Enda þótt foreldrar hræði börn sín ekki lengur með hefðbundnum hræðsluvættum er ljóst að börn á öllum aldri njóta þess að upplifa spennu og hræðslu, svona mátulega mikla eftir aldri og þroska. Börn leita hvert til annars til að upplifa spennu og framkalla hræðslu, í þeim tilgangi að læra á hræðsluviðbrögð sín, og vinna Hræðsla er meðfædd og ósjálfráð tilfinning sem fylgir okkur alla ævi, þótt það sem við hræðumst breytist með auknum þroska og aldri.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.