Börn og menning - 2016, Blaðsíða 35

Börn og menning - 2016, Blaðsíða 35
Umhverfis jörðina á 110 mínútum Hjörvar Pétursson Leikhús Umhverfis jörðina á 80 dögum Höfundar: Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Þjóðleikhúsið Jules Verne er eitt af stærstu nöfnum bók- menntasögunnar. Fyrir utan það að eftir hann liggur fjöldinn allur af metsölubók- um, þá bjó hann til heila bókmenntagrein sem varla er hægt að segja að hafi verið til áður, vísindaskáldskapinn. Hátt á aðra öld hefur arfur hans verið náma fyrir seinni kynslóðir að leita í, hvort sem það hefur verið leik- og kvikmyndagerðir á verkum hans, frekari framþróun á hugmyndum sem fyrst var varpað fram í bókum hans, og jafnvel sem innblástur til raunverulegra tæknifram- fara. Einnig má nefna að fagurfræði sem kennd er við gufupönk (steampunk) og byggir á því að tefla saman tísku Viktoríutímans og vísindaskáldskap á Jules Verne og skáldskap hans mikið að þakka. Meðal þekktustu verka Jules Verne má nefna Leyndar- dóma Snæfellsjökuls, (eða Ferðina að miðju jarðar, eins og hún var víst kölluð á frummálinu – alltaf skulu þessir útlendingar spila niður íslensku náttúruna), Ferðina til tunglsins og Sæfarann (öðru nafni Tuttugu þúsund míl- ur neðansjávar). Umhverfis jörðina á 80 dögum er ein af frægustu bókum Jules Verne og segir sitt um hana að þótt liðin séu 143 ár frá útgáfu hennar (hún kom fyrst út í Frakklandi í ársbyrjun 1873) skuli enn vera sótt í hana sem brunn fyrir sviðslistir og skemmtun. Í henni segir frá ríkisbubbanum Fílíasi Fogg og nýráðnum einkaþjóni hans, Passepartout, og ævintýrunum sem þeir lenda í á ferðalagi sem þeir leggja í umhverfis jörðina vegna veðmáls Foggs við karlaklúbbsfélaga sína um það hvort almenningssamgöngur um heiminn séu orðnar það góðar að slík reisa sé möguleg á ekki lengri tíma. Svo bland- ast inn í söguna kynni þeirra af ýmsu fólki á leiðinni, þar á meðal lögreglumanninum Fix, sem er sannfærður um að Fílías Fogg sé bankaræningi á flótta undan réttvísinni. Skáldaleyfi og gufupönk Í janúar síðastliðnum var frumsýnt leikrit Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar, Umhverfis jörðina á 80 dögum, sem unnið var upp úr samnefndri bók Jules Verne. Ágústa Skúladóttir leikstýrir uppfærslunni og ferst það vel úr hendi. Högni Sigurþórsson hann- aði leikmynd og Leila Arge sá um búninga, og leyndi sér ekki að hvort tveggja sótti innblástur í fagurfræði gufupönksins. Tæki og tól voru skreytt krúsidúllum og nostrað við útlit allra búninga af smekkvísi. Það væri synd að segja að þeir Karl Ágúst og Sigurður fylgi forskrift bókar Verne af fullkominni trúmennsku, þeir taka sér þvert á móti ýmis skáldaleyfi við leik- gerðina og fylgja þar ríkri og frjórri hefð í leik- og kvik- myndagerðum þar sem bækur Jules Verne eru oftar en ekki endurtúlkaðar á hinn frjálslegasta máta. Sem dæmi má nefna að þótt loftbelgur hafi í sögu Jules Verne ein- göngu verið ræddur sem möguleiki til þess að vera svo afskrifaður sem of óáreiðanlegur ferðamáti, þá virðist vera regla frekar en undantekning að honum bregði fyrir í leik- og kvikmyndagerðum eftir bókinni. Í sýn- ingu Þjóðleikhússins fara Fílías Fogg og Passepartout einmitt á loftbelg yfir Alpana. Seinna í sýningunni, á leið yfir Kyrrahafið, berst ferðalagið svo jafnvel yfir í allt

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.