Rit Mógilsár - 2015, Síða 7

Rit Mógilsár - 2015, Síða 7
Rit Mógilsár 33/2015 7 AÐALBREYTUR Fyrir utan skráningarbreytuna reitanúmer og stærðarbreytuna flatarmál eru aðalbreyturnar sem gögnum er safnað um sjö talsins; gróðurhverfi, gróðurþekja, halli, hallaátt, jarðvegsdýpt, grýtni og undirlag. Þar að auki bætist við athugasemdadálkur. Samtals eru því breyturnar 10 talsins. 1. Reitanúmer (heiti í fitjuskrá 510 Skógrækt: svaediID4) Skráð er númer reitsins sem lýst er. Oftast eru notuð hlaupandi númer frá einum og upp úr. Ef búast má við að reitirnir verði á seinni stigum klofnir niður í deilireiti er ágætt að nota t.d. tugakerfi fyrir upphaflegu reitina, þ.e. 10, 20, 30 o.s.frv. 2. Flatarmál Nota skal eininguna hektara (ha) með einum aukastaf. Ef unnið er beint í LUK birtist flatarmálið oft sjálfvirkt við myndun reitsins á kortinu í viðhengdri töflu (attribute table). 3. Gróðurhverfi (heiti í fitjuskrá 510 Skógrækt: grodurhverfi) Segja má að gróðurhverfið sé aðalbreyta kortlagningarlykilsins. Breyting frá einu gróður- hverfi yfir í annað leiðir vanalega til reitaskiptingar, þ.e. ef viðkomandi svæði eru nógu stór til að mynda reit (ekki minni en 0,5 ha). Notast er við skilgreiningu Steindórs Steindórs- sonar á gróðurfélögum fyrir gróður kortagerð Rannsóknastofnunar landbún aðarins (RALA) (Steindór Steindórsson 1980). Fyrir skóglendi er notuð lýsing á flokkun botngróðurs birkiskógar eftir grósku í Hallormsstaðaskógi (Haukur Ragnarsson og Steindór Steindórsson 1963). Í gróðurfélagalýsingu Steindórs eru fleiri flokkar fyrir gróðurhverfi á skóglausu landi og færri á skógi klæddu landi en notaðir eru hér. Eftir því sem gróðurkortagerð RALA þróaðist voru gerðar breytingar á upphaflegum gróðurhverfa - lista Steindórs. Þá var verið að bæta við gróðurhverfum innan gróðurfélaga eða að sameina gróðurhverfi. Núverandi kortlagningarlykill við gróðurkortagerð sem unnin er á Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) hefur að geyma 103 lykla fyrir gróðurhverfi sem nú eru kölluð gróðurfélög (Landmælingar Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands 2013). Upphaflegur listi Steindórs var aftur á móti með 121 lykill. Einn flokkur gróðurhverfa sem var í lista Steindórs og var fljótt felldur úr gróðurkortlagningu var snjódældagróður sem einkenndur var með bókstafnum J og hafði að geyma sjö gróðurhverfi. Hann er því ekki til í gróðurhverfalýsingu NÍ en nokkrir flokkar snjódældagróðurs voru fluttir í aðra flokka, m.a. tveir hélumosaflokkar, A9 og A10, og grasvíðir D6 sem settir voru undir yfirflokk hélumosagróður, rjúpustarmói (G4) sem fluttur var undir yfirflokk starmóa. Gerðar eru nokkrar breytingar á gróður- hverfalistanum sem hér er kynntur og þá í samræmi við uppfærðan lista NÍ. Helsta breytingin er að flokkur fyrir nýgræður (K) er felldur út en hann kemur ekki fyrir í núverandi lykli NÍ. Vatnagróður (VV) var líka felldur í burtu þar sem tjarnastör er ekki lengur flokkuð undir vatnagróður en er greind undir tjarnarstararflóa (VT). Eftirfarandi gróðurhverfum er bætt við frá síðustu útgáfu listans BA: aðalbláberjalyngmói, HM: melgresi og S0: botngróður skógar sem ekki er hægt að flokka í gróskuflokk. Lúpínu hefur einnig verið skipt niður á tvo flokka, LúU lúpína ung og LúG lúpína gömul. 3.1. Mólendi eða heiði 3.1.1. Mosaþembur (eða mosi) Einkennisstafur er A A mosaþemba: Mosi þekur meira en 50% af gróðurþekju. Þar sem jarðvegur er lítill, eru vaxtarskilyrði mjög óhagstæð. Þurrasta og rýrasta gróðurhverfi mólendisins. Algengt um allt land og með mikla útbreiðslu. Í lista Steindórs eru 8 gróðurhverfi (A1-A8) undir mosaþembu með mismunandi samsetningu af hágróðri, s.s. grösum, stinnastör, smárunnum eða þursaskeggi. Í núverandi gróðurlykli NÍ eru sömu gróðurhverfi og hjá Steindóri (A1-A8). 3.1.2. Lyngmói (eða lyngheiði) Einkennisstafur er B B lyngmói (eða lyngheiði): Önnur lyngmóa­ gróðurhverfi en bláberjalyngmói (BB) og aðal bláberja lyngmói (BA). Ríkjandi tegundir þessara gróðurhverfa eru: Krækilyng, beitilyng, sortulyng eða rjúpnalauf (holtasóley). Aðrar tegundir geta verið: Fjalldrapi, sauðamergur, víðir. Þurrt og rýrt gróðurhverfi með óhagstæð

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.