Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 83
Ídag, laugardaginn 1. maí, kl. 12-17 verður opnuð sýning á verkum Errós, Ferðagarpurinn
Erró, í Listasafninu á Akureyri. Á
sýningunni má sjá verk sem tengjast
ferðalögum.
Verkin á sýningunni eru hluti af
Erró-safneign Listasafns Reykja-
víkur og sýningarstjóri er Dani-
elle Kvaran Erró – sérfræðingur
safnsins. Sýningin stendur til 12.
september og er samstarfsverkefni
Listasafnsins á Akureyri og Lista-
safns Reykjavíkur.
Erró á Akureyri
Verk Errós, Mercury Astronauts.
Óperan La Traviata eftir Verdi verður sýnd í Menningar-húsinu Hofi 13. nóvember
næstkomandi.
Samkvæmt Þorvaldi Bjarna Þor-
valdssyni, tónlistarstjóra Menn-
ingarfélags Akureyrar, er þetta í
fyrsta sinn sem óperusýning er flutt
í Hofi. „Hof er alvöru nútíma sviðs-
listahús og fullkomið fyrir f lutning
á óperum, ballett, söngleikjum og
tónleikum af öllum stærðum og
gerðum. Og í nóvember verður þar
óperulist í hæsta gæðaflokki,“ segir
Þorvaldur Bjarni.
Aðalhlutverkið verður sem fyrr
sungið af Herdísi Önnu Jónasdóttur
sem fékk frábæra dóma og hlaut
Grímuverðlaunin sem söngvari
ársins fyrir túlkun sína á hlutverki
Víólettu.
Þetta mun verða í fyrsta sinn sem
Íslenska óperan og Menningarfélag
Akureyrar stofna til formlegs sam-
starfs varðandi óperuuppfærslur.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
mun sjá um hljómsveitarleik á
öllum sýningunum undir stjórn
Bjarna Frímanns Bjarnasonar, tón-
listarstjóra Íslensku óperunnar.
Fyrsta óperusýningin í Hofi
Herdís Anna
Jónasdóttir
syngur í Hofi í
nóvember.
Á Sígildum sunnudögum í Norðurljósasal Hörpu 2. maí nk. kl. 16.00 verður frumflutt
verkið Corona eftir Hrólf Sæmunds-
son, Söknuður eftir Kristínu Lárus-
dóttur og Elegy eftir John Speight.
Flytjendur eru Ármann Helga-
son klarínett, Kristín Lárusdóttir
kvæðakona, Hrólfur Sæmundsson
baríton og Íslenskir strengir, sem er
strengjasveit skipuð fiðlum, víólum,
selló og kontrabassa.
Corona og Söknuður
Hrólfur Sæmundsson tónskáld.
Miðstöð íslensk ra bók-mennta hefur úthlutað 55 útgáfustyrkjum. Bækur
um bókmenntir, náttúru, bygginga-
list, sagnfræði, hönnun, þjóðmál,
tungumál og ýmislegt f leira hljóta
útgáfustyrki í ár. Meðal bókanna
eru Í leit að listrænu frelsi / Ævi
og listsköpun Muggs, Guðmundar
Thorsteinssonar. Aðalhöfundur
er Kristín Guðnadóttir. Alls konar
íslenska - Málstefna fyrir 21. öldina.
Höfundur: Eiríkur Rögnvaldsson.
Skáldkonur. Höfundur: Guðrún
Ingólfsdóttir. Skrímsl. Jöðrun og
afmennskun í íslenskum miðalda-
bókmenntum. Höfundur: Arn-
grímur Vídalín.
Alls konar íslenska
Eiríkur Rögnvaldsson prófessor.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 51L A U G A R D A G U R 1 . M A Í 2 0 2 1
Herdís Anna
& Bjarni Frímann
7. maí 2021
kl. 20 í Norðurljósum
Takmarkað sætaframboð · Tryggið ykkur miða á harpa.is
Söngskemmtun
Íslensku
óperunnar
f wg
g
.
I
U
M W
W
T
p
ww n
g b .
w
w g b
pw
w
ng b .
p
w
w ng b .