Hjálmur - 19.01.1967, Síða 2
illllllllllllllllll............................................................................................................................................................Illllllllllllllllllllllllllllllllllll.Illllllllllllllllllllll.Illlll
2
HJÁLMUR
III..........llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll...llllllll.....Illllllllllt..............
HAFNFIRZKIR
VERKAMENN!
Kaupfélag Hafnfirðinga sendir ykkur beztu árnaðar-
óskir í tilefni af 60 ára afmæli félags ykkar, Hlífar. Hafn-
firzkir verkamenn hafa með starfi félagsins í 60 ár sýnt,
að þeir kunna að meta gildi samtakanna fyrir hið vinn-
andi fólk. Öflugt verkalýðsfélag er virki, sem það getur
ekki án verið í lífsbaráttunni.
Hafnfirzkir verkamenn hafa einnig sýnt, að þeir vilji
ekki aðeins ná árangri í sjálfri kjarabaráttunni, heldur
og tryggja kaupmátt launanna með því að stofna og
styðja sitt eigið kaupfélag, en Kaupfélag Hafnfirðinga
er arftaki pöntunarfélags Hlífar og stofnað af Hlífar-
mönnum. Ef verkamannafjölskyldur halda áfram að
styrkja kaupfélagið sitt með ráð og dáð, mun það halda
áfram að eflast og veita félagsfólki sínu enn betri kjör
en hingað til.
Kaupfélag Hafnfirðinga
........................................iiiiiiiiiiiiiiiiii.....................................................................