Hjálmur - 19.01.1967, Blaðsíða 9

Hjálmur - 19.01.1967, Blaðsíða 9
HJÁLMUR 9 Stjórn Hlífar á 40 ára afmæli félagsins í janúar 1947 (félagsstjórn 1946— 1950). — Sitjandi, talið frá vinstri: Grímur Kr. Andrés- son, Sigurður T. Sigurðsson, Hermann Guð- mundsson, Ólafur Jónsson. — Standandi, talið frá vinstri: Bjarni Erlendsson, Helgi Jónsson, Jens Runólfsson. bilsins komu nýir menn til áhrifa í félaginu, Þórður Þórðarson, Helgi Sigurðsson, Ólafur Jónsson o. fl. Arið 1939 varð mjög viðburðarríkt í sögu „Hlífar“, deilur miklar og við- sjár með mönnum. Attu þau átök rót sína að rekja til deilna þeirra, sem þá voru uppi um skipulag alþýðu- samtakanna og afstöðu stjórnmála- flokka til þeirra. „Hlíf“ klofnaði um skeið, og sögðu sig úr félaginu um 160 menn, er stofnuðu nýtt félag, „Verkamannafélag Hafnarfjarðar“. Þessari orrahríð lauk þó á þann veg, að „Hlíf“ stóðst eldraunina, hafnfirzk- ir verkamenn sameinuðust aftur í sínu gamla félagi, er var að þessum átök- um loknum sterkara en áður. Tímabilið 1940—1956. I ársbyrjun 1940 tóku nýir menn við stjórnartaumunum í „Hlíf“. For- maður félagsins varð Hermann Guð- mundsson, sem jafnan síðan, að tveim árum undanteknum, hefur verið þar í fylkingarbrjósti og gegnt formanns- störfum miklu lengur en nokkur mað- ur annar. Þetta tímabil var næsta við- burðaríkt í sögu félagsins, þótt hér sé ekki rúm til að geta nema fárra atriða. Allt frarn á árið 1941 voru það at- vinnumálin, sem örðugast var við að glíma, enda beindist starf félags- stjórnar og barátta félagsins mjög að því, að knýja á um úrbætur í þeim efnum. Segja má, að allan fjórða tug aldarinnar hafi hið erfiða atvinnu- ástand verið hafnfirzkri alþýðu þyngst í skauti. En árið 1941 varð mikil breyting á i því efni. Kom þar brátt, að eftirspurn eftir vinnuafli varð meiri en framboðið. Olli því bæði hin mikla setuliðsvinna stríðs- áranna, og aukið fjör í atvinnulífi landsmanna sjálfra, einkum sjávarút- vegi og iðnaði. Við þetta urðu stór- felld umskipti á hag alls almennings. Hafði það mikil áhrif á störf „Hlífar, og viðfangsefni félagsstjórnar tóku eðlilega verulegum breytingum. Að vísu hélt félagið áfram að hafa all- mikil afskipti af atvinnuframkvæmd- um og eflingu atvinnulífs í bænum. En nú gafst hins vegar betra tæki- færi en áður til að efla almenn rétt- indi verkamanna og vinna að ýmsum umbóta- og menningarmálum. Félag- ið tók meðal annars að leggja veru- legt lið íþróttamálum kaupstaðarins, gerði ályktanir um íþróttasvæði, stuðl- aði að byggingu sundlaugar og ræddi ýmsar framkvæmdir á sviði íþrótta í blaði sínu. Þá beitti „Hlíf“ sér fyrir því, að barnaleikvellir væru gerðir í bænum. Kaupgjaldsmál og önnur réttinda- mál verkamanna tóku miklum breyt- ingum til bóta á þessu tímabili. „Hlíf“ hefur jafnan síðan um 1940 verið í röð fremstu verkalýðsfélaga um gerð hagkvæmra kjarasamninga. Arið 1941 náðust samningar við atvinnurekend- ur um sumarleyfi verkamanna. Var þar merkilegum áfanga náð og mun vafalaust, að þessi réttarbót „Hlífar“ hefur undirbúið jarðveginn fyrir or- lofslöggjöfina, sem síðar var samþykkt á Alþingi. Þá mun „Hlíf“ hafa verið fyrsta verkalýðsfélag á landinu, sem fékk framgengt kröfunni um 8 stunda vinnudag. Náðist sú mikilvæga rétt- arbót til handa hafnfirzkum verka- mönnum með samningum árið 1942. Alloft tókst „Hlíf“ að ná viðhlítandi samningum um kaup og kjör, án þess að til verkfallsátaka þyrfti að koma.

x

Hjálmur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjálmur
https://timarit.is/publication/1567

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.