Hjálmur - 19.01.1967, Side 10
10
HJALMUR
Stjói'n Hlífar 1951.
Standandi frá
vinstri Jens Run-
ólfsson, Þorsteinn
Auðunsson, Bjarni
Erlendsson. Sitjandi
frá vinstri: Sigurður
Þórðarson, Olafur
Jónsson, Hermann
Guðmundsson,
Pétur Kristhergsson.
Þó varð félagið stundum að heyja
allharða baráttu, áður en samningar
tækjust. Lengsta verkfall, sem félagið
hefur átt í.: varð árið 1955. Stóð það
um sex vikna skeið, frá 18. marz til
28. apríl, og var eitthvert hið lengsta
og harðasta, sem háð hefur verið hér
á landi.
Félagsstarfsemi. A þessu tímabili
voru gerðar ýmsar tilraunir til að efla
starfsemi félagsins inn á við. Gáfu
sumar þeirra allgóða raun, þótt for-
ustumönnum þætti við ramman reip
að draga, þar sem var skortur á al-
mennum áhuga. Nokkrir menn innan
félagsins, einkum úr hópi yngri kyn-
slóðarinnar, beittu sér um skeið fyrir
skemmti- og fræðslufundum að vetr-
inum. Sérstök nefnd hafði þessa starf-
semi með höndum.
Gerðar voru nokkrar tilraunir til að
halda uppi málfundastarfsemi innan
félagsins, en sú viðleitni átti erfitt
uppdráttar.
Stjórn „Hlífar“ var frá upphafi
skipuð 5 mönnum, kosnum á aðal-
fundi. Sú skipan hélzt til ársins 1943.
Þá var stjórnarmeðlimum fjölgað í 7,
og skyldu þeir kosnir við allsherjar-
atkvæðagreiðslu fyrir aðalfund.
Árið 1953 voru lög félagsins tekin
til gagngerðrar endurskoðunar og ný
lög samþykkt árið eftir. Fólu þau í
sér ýmsar breytingar, þar á meðal um
kosningu trúnaðarmanna á vinnustöð-
um.
Eins og fyrr er frá sagt, hófst um-
rætt tímabil í sögu „Hlífar á því, að
nýir menn tóku við stjórn félagsins.
Auk Hermanns Guðmundssonar, sem
verið hefur formaður félagsins frá
1940, að árunum 1952 og 1953 undan-
teknum, skulu hér nefndir eftirtaldir
forystumenn frá þessum árum: Olafur
Jónsson (formaður 1952 og 1953, sat
1. maí. Hátíðarhöld.