Hjálmur - 19.01.1967, Page 11

Hjálmur - 19.01.1967, Page 11
HJÁLMUR 11 Stjórn Hlífar (1957): A 'fimmtíu ára afmælinu. Sitjandi, frá vinstri: Helgi S. Guðmunds- son, Hermann Guð- mundsson, Ragnar Sigurðsson, Pétur Kristbergsson. Standandi, frá vinstri: Sveinn Sveinsson, Bjarni Rögnvaldsson, Ingvi Jónsson. alls 14 ár í stjórn), Jens Runólfsson, Pétur Kristbergsson, Sigurður T. Sig- urðsson, Bjarni Erlendsson og Sigur- björn Guðmundsson. Síðustu tíu árin (1957—1966). Enda þótt hér verði fljótt yfir sögu farið og á fátt eitt drepið að því er varðar starfsemi „Hlífar“ síðasta ára- tuginn, stafar það fremur af takmörk- uðu rúmi blaðsins en hinu, að ekki sé allmargra tíðinda að minnast frá þessu tímabili. En þetta er það skeið í sögu félagsins. sem mönnum ér eðli- lega í ferskustu minni. Einnig má á það benda, að félagsstarf allt hefur nokkuð lengi verið í töluvert föstum skorðum, enda sömu menn í forystu að verulegu leyti. Itarleg félagssaga þessara ára verður því að bíða seinni tíma. Kaupgjalds- og kjarabarátta hefur að vanda verið stærsta viðfangsefni félagsins þessi árin. Þær breytingar hafa orðið á baráttuaðferðum verka- lýðshreyfingarinnar í kaupgjaldsmál- um, að í stað þess að hvert félag um sig eða nokkur félög á samliggjandi svæðum stæðu í þeirri baráttu út af fyrir sig þá er á seinni tímum um stór- um meiri samvinnu og víðtækari sam- stöðu að ræða meðal verkalýðsfélaga en áður var. Hefur ,,Hlíf“ tekið þátt í þeirri samvinnu og átt sinn þátt í því að koma á hinu breytta skipulagi. Með stofnun Verkamannasambands Islands vorið 1964 var stigið stærsta skrefið til að samstilla verkamanna- og verkakvennafélög um land allt til sóknar í kaupgjalds- og kjaramálum. Frumkvæðið kom frá „Hlíf“, en á fundi félagsins 10. desember 1962 var gerð samþykkt þess efnis, að skora á Alþýðusamband íslands að hafa for- göngu um stofnun sambands allra verkalýðsfélaga innan þess. Alyktun þessi hlaut góðar undirtektir. For- göngu um stofnun sambandsins höfðu þrjú stærstu verkalýðsfélög landsins, „Hlíf“ í Hafnarfirði, Dagsbrún í Reykjavík og Eining á Akureyri. — Stofnfélög voru 23, með samtals um 8500 félaga. Hefur Hermann Guð- mundsson, formaður „Hlífar“, átt sæti í stjórn Verkamannasambandsins frá upphafi. Verkfallsverðir á eftirlitsferð.

x

Hjálmur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjálmur
https://timarit.is/publication/1567

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.